Fréttatíminn - 13.05.2016, Blaðsíða 26
Þó ekki væri nema til að
spara peninga, ættu fyrir-
tæki í ferðaþjónustu að huga
betur að ruslflokkun.
Annars verða allar grundir
og gryfjur fullar af rusli.
Þetta segir Guðlaugur Sæ-
mundsson innkaupastjóri
Íslandshótela sem hefur
staðið að róttækri um-
hverfisbyltingu fyrirtækis-
ins.
Þóra Tómasdóttir
thora@frettatiminn.is
Þær sögur fara af Guðlaugi hjá Ís
landshótelum að hann sé leynt og
ljóst að gera samstarfsmenn sína
gráhærða, með stöðugum úrbót
um á umhverfisstefnu fyrirtæk
isins. Einfaldast fyrir starfsmenn
og gesti hótelsins væri auðvitað að
allt rusl færi í eina tunnu, en það
líðst ekki lengur. Eftir að keðjan
bætti við sig þremur hótelum eru
þau orðin átján talsins og ruslið
sem hótelgestir skilja eftir sig
hleypur á mörg hundruð tonnum
á hverju ári.
Grandhótelið í Sigtúni er það
sem lengst er komið í að fram
fylgja umhverfisstefnu. „Árið 2011
fór allt rusl í sama gáminn. Í fyrra
skilaði þetta hús, Grand hótel,
samtals 190 tonnum af rusli en að
eins 25% af því fór óflokkað beint
í urðun. Við stefnum á að lækka
það hlutfall enn frekar og að
minna en 20% af rusli fari óflokk
að frá okkur. Ég held að þetta sé
árangur sem gæti náðst víðar.“
www.fr.isSylvía G. Walthersdóttir
Löggiltur fasteignasali
Salvör Davíðsdóttir
Nemi til löggildingar
fasteignasala
María K. Jónsdóttir
Nemi til löggildingar
fasteignasala
FRÍTT VERÐMAT
ENGAR SKULDBINDINGAR
HRINGDU NÚNA
820 8081
sylvia@fr.is
Sjöfn Ólafsdóttir
Skrifstofa
Guðlaugur Sæmundsson innkaupastjóri Íslandshótela flokkar rusl í frumeindir
Lítur á rusl sem hráefni
Grand hótel er með svokallaða
Svansvottun og því fylgja ýmsar
kvaðir, svo sem að færa svokallað
grænt bókhald yfir flokkun á rusli.
„Við skráum því hjá okkur hvern
ig ruslið er flokkað og getum líka
notað bókhaldið sem innkaupa
tæki. Svanurinn gerir ákveðnar
lágmarkskröfur eins og að aðeins
10% af hreinsiefnum í þvottahús
inu megi vera óvottuð. Við erum
komin á þann stað að öll hreinsi
efni í eldhúsi og herbergisþrifum
eru vottuð, sama gildir um allar
sápur á herbergjum. Við skiptum
ruslinu okkar niður í 20 flokka
og greinum mjúkt plast frá hörðu
plasti, pappa og bylgjupappa,
lífrænt rusl fer á einn stað og svo
framvegis.“
Guðlaugur lét hótelin fjárfesta
í forláta flokkunartunnum sem
komið var fyrir á herbergjum.
Þær eru þrískiptar, nokkuð fyrir
ferðamiklar og vöktu misjafna
lukku meðal fagurkera. „Aðal
atriðið er að hver hótelgestur
flokki sem mest. Okkur reiknast
til að hver gestur skilji eftir sig
600 grömm af rusli á sólarhring
en okkur tekst að flokka 75% af
því og þá eru eftir 150 grömm.
Mér fannst sniðugt að hafa svona
ruslatunnur á öllum herbergjum,
þá fer það heldur ekkert framhjá
gestinum að við erum að flokka.
Í móttökunni erum við svo með
sérstakar tunnur fyrir rafhlöður
og skilagjaldsumbúðir. Ég er al
veg sannfærður um að við getum
flokkað enn meira.“
Guðlaugur segir að nauðsyn
legt sé að líta á ruslið sem hrá
efni. „Sorphirðufyrirtækin rukka
um 20 krónur fyrir hvert kíló af
óflokkuðu sorpi sem þeir sækja til
okkar. Sömu fyrirtækin eru svo
tilbúin til að greiða okkur fyrir
hluta af sorpinu sem við flokkum
og hægt er að endurnýta. Stór fyr
irtæki geta sparað háar fjárhæðir
með því að standa vel að ruslflokk
un.“
Guðlaugur segir rýnt í hvern
einasta kostnaðarlið hjá hótel
unum og við það hefur ýmislegt
komið í ljós. Til dæmis voru raf
hlöður í dyralæsingum hótel
herbergjanna kostnaðarsamar,
endingarstuttar og afar mengandi.
„Með því að taka í notkun nýjar og
endingarbetri rafhlöður minnk
aði rafhlöðuruslið úr 171 kílói árið
2014 í 16 kíló árið 2015. Þá var
skipt um ljósaperur á hótelunum
og LED perur teknar í notkun. Við
það eitt, lækkaði rafmagnsnotkun
í stóra salnum í Sigtúni um 85%,“
segir Guðlaugur.
Guðlaugur Sæmundsson þykir
nokkuð róttækur í ruslflokkun
Mynd | Rut
Ruslið á Grand hótel vó
190 tonn
í fyrra. Þar af fór aðeins
25%
óflokkað í urðun.
Árið 2014 fóru
171 kíló
af rafhlöðum í ruslið á
Íslandshótelum en með
því að taka í notkun
endingarbetri rafhlöður
fóru aðeins
16 kíló
af þeim í ruslið árið 2015.
Í stærsta sal Grand
hótels lækkaði rafmagns-
reikningurinn um
85%
við að taka í notkun
LED ljósaperur.
26 | FRÉTTATÍMINN | FÖSTUDAGUR 13. MAÍ 2016