Fréttatíminn - 13.05.2016, Blaðsíða 20
20 | FRÉTTATÍMINN | FÖSTUDAGUR 13. MAÍ 2016
Þegar Ísland fer á EM
munu þeir hafa fimm
milljónir norskra stuðn-
ingsmanna að baki sér.
Svíarnir, hins vegar, þurfa
að sjá um sig sjálfir.
Mímir Kristjánsson
ritstjorn@frettatiminn.is
Nú þegar mánuður er eftir í að
EM í fótbolta hefjist í Frakk
landi eru væntingarnar farnar
að stíga, einnig í Noregi. Þótt
norska landsliðið þurfi að sitja
heima í sumar eftir skelfilega út
reið í undankeppninni, þá hafa
flestir Norðmenn fundið sér nýtt
lið til að halda með, nefnilega
Ísland.
Við sem berum íslenskuleg
nöfn í Noregi höfum orðið vör
við hinn mikla áhuga á íslenska
landsliðinu. Auglýsingamynd
band fyrir bensínstöðvar N1
sem sýnir íslensku leikmennina
spila fótbolta á barnsaldri hefur
gengið manna á milli á sam
skiptamiðlum í landi þar sem
fæstir geta stafað nöfnin á leik
mönnunum. Helsta íþróttablað
Noregs, VG, birti strax í septem
ber síðastliðnum fjögurra blað
Hvers vegna halda Norðmenn
alltaf með Íslandi?
síðna umfjöllun um liðið undir
fyrirsögninni „Íslenska undr
ið.“ Verkamannablaðið Klasse
kampen, þar sem ég vinn, ætlar
jafnvel að senda mig á EM til að
fylgjast með Íslandi í sumar. Og
þegar menn tippa í Lengjunni
hér, „Tippeligaen,“ veðja þeir
á Eið Guðjohnsen hjá félaginu
Molde.
Sænski fíllinn í herberginu
Í sjálfu sér er ekkert undarlegt
að Norðurlöndin styðji hvert við
annað á stórum alþjóðlegum
mótum. En hér leynist þó fíll í
herberginu, nánar tiltekið fíll
sem er blár og gulur að lit. Sví
þjóð er líka með á EM í sumar og
þar er sjálfur Zlatan Ibrahimovic
fyrirliði. Noregur og Svíþjóð
deila 1630 kílómetra löngum
landamærum. Vegalengdin á
milli Noregs og Íslands er álíka
löng, eða 1473 kílómetrar. Hvers
vegna eru það þá Íslendingar
sem standa fótboltahjörtum
Norðmanna næst, en ekki Svíar?
Augljósasta ástæðan er sú að
Ísland er lítilmagninn í þessum
leik. Á meðan Svíar spiluðu síð
ast á undanúrslitum í HM árið
1994 eru Íslendingar að taka þátt
í sinni fyrstu bikarkeppni og eru
þeir minnsta land í EM nokkurn
tímann (Lettland, sem fékk að
vera með 2002, hefur næstum
tvær milljónir íbúa). Sagan um
litla þjóð frá veðurbörðum kletti
í NorðurAtlantshafi sem komst á
EM mun heilla marga í sumar –
ekki einungis Norðmenn.
En hvað Norðmenn varðar er
það fleira sem spilar inn í. Alveg
síðan Ingólfur Arnarson sigldi á
brott frá Rivedal í Sognfirði árið
874 hafa böndin á milli Noregs
og Íslands verið þétt. Í norskum
grunnskólum rembast börnin
ennþá við að lesa sögurnar um
Gunnlaug Ormstungu og Gísla
Súrsson. Saga Noregs væri varla
til í bókarformi ef Snorri Sturlu
son hefði ekki skráð konunga
sögur Noregs.
Hinir raunverulegu Norðmenn
Í Noregi hefur sú hugmynd
lengi verið á kreiki að Ísland sé
á einhvern hátt Noregur eins
og landið hefði orðið ef Danirn
ir hefðu aldrei náð yfirráðum.
Á meðan ritmál Norðmanna er
nokkurs konar danska, hafa Ís
lendingar varðveitt hið gamla
fornnorræna mál. Og á meðan
Norðmenn hafa glatað þeirri
hefð að gefa börnum föðurnöfn
hafa Íslendingar haldið í hana.
Áhugi Norðmanna á Ís
landi, íslenskum bókmennt
um og íslenskri tungu er því
ekki áhugi á framandi landi,
heldur áhugi á okkar eigin
týndu sögu. Þessi áhugi er
svo sterkur að hann verður
stundum að hreinum stuldi,
eins og þegar Snorri Sturlu
son var fyrir nokkrum
árum talin með
al „25 helstu
rithöfunda
Norðmanna“
eða þegar
Leifur Ei
ríksson
verð
Aðalfundur
Rauða krossins á Íslandi
Nánari upplýsingar í síma 570 4000
Laugardaginn 21. maí kl. 9.00
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
–
1
6–
14
66
Á Fosshótel Reykjavík,
Þórunnartúni 1
8.30 Skráning
9.00 Setning
9.10 Aðalfundarstörf samkvæmt
lögum félagsins
15.00 Samantekt og áætluð fundarslit