Fréttatíminn - 13.05.2016, Blaðsíða 33
Borcht; Rússnesk
rauðrófusúpa.
Til að styrkja námsferð
til Brussel ákváðu Mar-
ina og samstarfskona
hennar, Marta Sigríður
Pétursdóttir, að búa til
litla matreiðslubók og
selja áhugasömum um
heilnæma matargerð með
rússneskum áhrifum. Þar
er að finna gómsætar en
einfaldar uppskriftir sem
Marina hefur gert að sín-
um, eins og þessa austur-
-evrópsku Borscht súpu.
Bókin kostar 1500 krónur
og er hægt að nálgast
hana á Vinnustofu Áss.
Kraftmikið kjötsoð:
1 kg Osso buco
(nautaskanki á beini)
2-3 lárviðarlauf
Piparkorn
1 laukur
Látið sjóða í 3 tíma. Sigtið
svo í gegnum klút, takið
kjötið af beininu og skerið
í bita og setjið til hliðar.
1 meðalstór rauðrófa
3 laukar
4 stórar gulrætur
2 paprikur
1 kg kartöflur
Hálfur haus af meðalstóru
hvítkáli
Einn heill hvítlaukur
Alt, pipar
2 lárviðarlauf
Hakkaðir tómatar ( ½ dós)
1/2 dós tómatpúrra
Borðedik
1 msk hveiti
Fersk steinselja
Aðferð:
Skerið rauðrófur í strimla
og steikið við meðalhita
upp úr matarolíu þar
til þær brúnast aðeins.
Bætið við 2-3 msk. af
borðediki, því næst kjöt-
soðinu og látið malla þar
til rauðrófan breytir um
lit.
Skerið gulrætur, lauk,
paprikur og steikið þar til
brúnast. Stráið 1 mat-
skeið af hveiti yfir og
hrærið saman. Bætið
við hökkuðum tómöt-
um, tómatpúrru og smá
soði þar til áferðin verðu
grautarkennd. Látið malla
á pönnunni.
Bætið skrældum og
niðurskornum kartöflum
í rauðrófusoðið þegar
rauðrófurnar eru orðn-
ar brúnar. Látið malla í
5 mínútur og bætið þá
steikta grænmetinu út í.
Smakkið til með salt og
pipar. Bætið heilum pipar-
kornum og lárviðarlaufum
við súpuna.
Skerið hvítkál í strimla og
bætið í súpuna. Þegar það
er meyrt smakkið þá til
með salti og pipar.
Ef súpan er súr má bæta
sykri við.
Að lokum er kjötbitum
bætt við og súpan soðin
þar til kjötið er heitt í
gegn. Þá er slökkt undir
súpunni og hvítlaukurinn
pressaður út í.
Fínsaxið steinselju og
blandið við súpuna og
látið svo standa í 15 mín-
útur.
Borið fram með sýrðum
rjóma, ferskri steinselju
og súrdegisbrauði.
BAKARÍ
Í Fjarðarkaupum færðu allt á einum stað. Í bakaríinu okkar færðu daglega
ilmandi nýbökuð brauð og bakkelsi. Áhersla er lögð á góða þjónustu og
fjölbreytt úrval.
Hvort sem smyrja á nesti í skólann eða ferðalagið eða gera sér dagamun
þá er bakaríið okkar góður staður til að byrja á.
Við tryggjum þér ferskleika, gæði og úrval.
Verið velkomin í Fjarðarkaup
Nýbakað á hverjum degi • Kökur og bakkelsi • Súrdeigsbrauð
OPIÐ mánudaga - miðvikudaga frá 09:00 - 18:00 / fimmtudaga 09:00 - 18:30
föstudaga 09:00 - 19:00 / laugardaga 10:00 - 16:00 / lokað sunnudaga. www.fjardarkaup.is
En svo höguðu
örlögin því þannig
að ég giftist ung og
flutti til Þýska-
lands með mann-
inum mínum. Og
svo fluttum við
hingað
|33FRÉTTATÍMINN | FÖSTUDAGUR 13. MAÍ 2016