Fréttatíminn

Issue

Fréttatíminn - 13.05.2016, Page 33

Fréttatíminn - 13.05.2016, Page 33
Borcht; Rússnesk rauðrófusúpa. Til að styrkja námsferð til Brussel ákváðu Mar- ina og samstarfskona hennar, Marta Sigríður Pétursdóttir, að búa til litla matreiðslubók og selja áhugasömum um heilnæma matargerð með rússneskum áhrifum. Þar er að finna gómsætar en einfaldar uppskriftir sem Marina hefur gert að sín- um, eins og þessa austur- -evrópsku Borscht súpu. Bókin kostar 1500 krónur og er hægt að nálgast hana á Vinnustofu Áss. Kraftmikið kjötsoð: 1 kg Osso buco (nautaskanki á beini) 2-3 lárviðarlauf Piparkorn 1 laukur Látið sjóða í 3 tíma. Sigtið svo í gegnum klút, takið kjötið af beininu og skerið í bita og setjið til hliðar. 1 meðalstór rauðrófa 3 laukar 4 stórar gulrætur 2 paprikur 1 kg kartöflur Hálfur haus af meðalstóru hvítkáli Einn heill hvítlaukur Alt, pipar 2 lárviðarlauf Hakkaðir tómatar ( ½ dós) 1/2 dós tómatpúrra Borðedik 1 msk hveiti Fersk steinselja Aðferð: Skerið rauðrófur í strimla og steikið við meðalhita upp úr matarolíu þar til þær brúnast aðeins. Bætið við 2-3 msk. af borðediki, því næst kjöt- soðinu og látið malla þar til rauðrófan breytir um lit. Skerið gulrætur, lauk, paprikur og steikið þar til brúnast. Stráið 1 mat- skeið af hveiti yfir og hrærið saman. Bætið við hökkuðum tómöt- um, tómatpúrru og smá soði þar til áferðin verðu grautarkennd. Látið malla á pönnunni. Bætið skrældum og niðurskornum kartöflum í rauðrófusoðið þegar rauðrófurnar eru orðn- ar brúnar. Látið malla í 5 mínútur og bætið þá steikta grænmetinu út í. Smakkið til með salt og pipar. Bætið heilum pipar- kornum og lárviðarlaufum við súpuna. Skerið hvítkál í strimla og bætið í súpuna. Þegar það er meyrt smakkið þá til með salti og pipar. Ef súpan er súr má bæta sykri við. Að lokum er kjötbitum bætt við og súpan soðin þar til kjötið er heitt í gegn. Þá er slökkt undir súpunni og hvítlaukurinn pressaður út í. Fínsaxið steinselju og blandið við súpuna og látið svo standa í 15 mín- útur. Borið fram með sýrðum rjóma, ferskri steinselju og súrdegisbrauði. BAKARÍ Í Fjarðarkaupum færðu allt á einum stað. Í bakaríinu okkar færðu daglega ilmandi nýbökuð brauð og bakkelsi. Áhersla er lögð á góða þjónustu og fjölbreytt úrval. Hvort sem smyrja á nesti í skólann eða ferðalagið eða gera sér dagamun þá er bakaríið okkar góður staður til að byrja á. Við tryggjum þér ferskleika, gæði og úrval. Verið velkomin í Fjarðarkaup Nýbakað á hverjum degi • Kökur og bakkelsi • Súrdeigsbrauð OPIÐ mánudaga - miðvikudaga frá 09:00 - 18:00 / fimmtudaga 09:00 - 18:30 föstudaga 09:00 - 19:00 / laugardaga 10:00 - 16:00 / lokað sunnudaga. www.fjardarkaup.is En svo höguðu örlögin því þannig að ég giftist ung og flutti til Þýska- lands með mann- inum mínum. Og svo fluttum við hingað |33FRÉTTATÍMINN | FÖSTUDAGUR 13. MAÍ 2016

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.