Fréttatíminn - 13.05.2016, Blaðsíða 30
Lilja er mikill listaverkasafnari
en þessi mynd á baðherbergis-
veggnum er eftir hana sjálfa,
kolamynd frá því hún var í námi
í Parsons-skólanum í New York.
Islanders.is er vefsíða þar sem ís-
lensk heimili og eigendur þeirra
eru í forgrunni. Með síðunni vilja
upphafskonur hennar, innan-
húsarkitektinn Auður Gná og ljós-
myndarinn Íris Ann, veita innsýn
í líf ólíkra Íslendinga í gegnum
heimili þeirra og miðla því hvernig
ólík, falleg og sérkennileg heimili
endurspegla skapara sína. „Okk-
ar áhugasvið eru hönnun og listir
en við erum líka að velta því fyrir
okkur af hverju fólk býr eins og það
býr, næstum eins og mannfræðing-
ur myndi gera og grafa aðeins ofan
í sálfræðina á bak við híbýli hvers
og eins. Við höfum áhuga á að fjalla
um alls konar fólk og fá að vita af
hverju það kýs að búa eins og það
býr og reyna að skilja af hverju
heimili eru stundum svona mikil
framlenging af persónu og lífsstíl
eigandans. Við erum að vinna með
hugmyndina um að heimilið sé
í raun paradís þess sem þar býr,
griðastaður þar sem fólk kýs að
endurspegla ákveðnar hugmyndir
um lífið og hvernig það vill lifa því,“
segir Auður Gná. Islanders-síðan
er verk í stöðugri vinnslu og stefna
þær Auður Gná og Íris Ann á að
gefa innlitin út í fallegri bók. Þær
deila hér heimsókn sinni í gestahús
og griðastað Lilju Pálmadóttur, Hofi
í Skagafirði, með lesendum Frétta-
tímans. | hh
Griðastaður
Lilju Pálma
í Skagafirði
Listakonan og hrossarækt-
andinn Lilja Pálmadóttir
hefur komið sér vel fyrir í
Skagafirði, þaðan sem hún
er ættuð. Á ættarjörðinni
hefur hún byggt fjölskyldu
sinni nýtt og fallegt hús sem
er löngu orðið þekkt út fyrir
landsteinana, var teiknað af
Studio Granda og hlaut með-
al annars Arkitektaverðlaun
Evrópusambandsins. Færri
vita þó að í grennd við húsið
stendur Hof, ættaróðal Lilju,
sem hún hefur gert upp í
sínum persónulega stíl til að
hýsa gesti sína.
Listakonan og hrossaræktandinn
Lilja Pálmadóttir hefur gert ættaróðal
sitt Hof á Höfðströnd að gestahúsi
fjölskyldunnar.
Persónulegt eldhús.
Öll endurgerð gamla hússins var
í höndum smiða sem búa í Skaga-
firðinum. Eldhúsinnréttingin er
síðan smíðum úr gömlum spýtum
úr húsinu sem varð að fjarlægja
þegar það var gert upp. Verkið á
veggnum er frá foreldrum Lilju
og er eftir Temmu Bell sem er
dóttir Louisu Matthiasdóttur og
Lelands Bell mannsins hennar.
Temma er gift Ingimundi Kjarval
og búa þau í New York fylki.
Okkurguli liturinn fannst á eld-
húsinu eftir að búið var að fjar-
lægja mörg lög af málningu, Lilja
fann svo sama litinn frá norskum
málningarframleiðanda.
Þessi fallega lokrekkja er upprunaleg. Þegar húsið var tekið í
gegna lét Lilja smíða aðra nákvæmlega eins í sama herbergi.
Tvær stofur
Nær allir munirnir í húsinu koma
annars vegar frá ömmu og afa Lilju og
hins vegar frá foreldrum hennar. Lilja
hefur þó bætt við nokkrum persónu-
legum munum og saman myndar
þetta fallega heild í Hofi í dag.
Hof í Skagafirði
Húsið stóð á jörðinni þegar amma og
afi Lilju keyptu hana. Þetta var alla
tíð þeirra íbúðarhús og þegar Lilja
tók við húsinu fyrir nokkrum árum
gerði hún það allt upp með mikilli
virðingu fyrir sögunni en líka með
sínum persónulega stíl.
Saga í öllum
hornum.
Lilja stund-
aði listnám
í Barcelona
og þaðan
er svarta
jómfrúin frá
Montserrat
komin.
Mikið úrval garðsláttuvéla - með rafmótor eða bensínmótor
Garðsláttuvélar
ÞÓR FH
Akureyri:
Lónsbakka
601 Akureyri
Sími 568-1555
Opnunartími:
Opið alla virka daga
frá kl 8:00 - 18:00
Lokað um helgar
Reykjavík:
Krókháls 16
110 Reykjavík
Sími 568-1500
Vefsíða og
netverslun:
www.thor.is
30 | FRÉTTATÍMINN | FÖSTUDAGUR 13. MAÍ 2016