Fréttatíminn - 13.05.2016, Blaðsíða 63
Unnið í samstarfi við Taramar
Taramar húðvörur komu á markað hér á landi fyrir aðeins 5 mánuðum síð-an. Vörurnar hafa fengið
ákaflega góðar móttökur og ryðja
sér nú ört til rúms á íslensk-
um snyrtivörumarkaði. Taram-
ar vörurnar hafa ekki síst vakið
athygli vegna þess hversu með-
vitaðir neytendur eru orðnir um
skaðleg efni sem bæði húð- og
förðunarvörur geta innihaldið
í miklu magni, en Taram-
ar húðvörur eru afburða
hreinar og lífvirkar. Þær
innihalda hvorki skaðleg
né ertandi efni.
Ebba Guðný Guð-
mundsdóttir heilsukokk-
ur hefur notað Taramar
húðlínuna í ár og hrósar
henni í hástert. „Ég gæti ekki
verið ánægðari með Taramar
vörurnar. Þær eru svo lífrænar að
það má borða þær. Það er nefni-
lega gott að hafa í huga að það
sem við setjum á húðina fer inn í
líkamann. Vörurnar innihalda ekki
manngerð lyktarefni, eða erfða-
breytt efni og eru í alla staði eins
hreinar og hægt er að hugsa sér.“
TARAMAR húðvörulínan kall-
ast Emerging Beauty eða Rísandi
fegurð og samanstendur af fjór-
um vörum: Day Treatment, The
Serum, Purifying Treatment og
Night Treatment. Vörurnar eru
alíslenskar og framleiddar hér
á landi. Húðvörulínan byggir á
andoxandi eiginleikum þörunga,
íslenskum lækningajurtum, pept-
íðum og ensímum sem draga
úr sýnilegum áhrifum öldrunar.
Útkoman er afrakstur 9 ára rann-
sókna Dr. Guðrúnar Marteins-
dóttur prófessors og samstarfs-
félaga hennar, bæði hérlendis og
erlendis.
„Vörurnar smjúga vel inn í
húðina og virknin fer ekki á milli
mála. Ég sé mun á húðinni eftir að
ég byrjaði að nota TARAMAR, “
segir Ebba Guðný.
Ebba Guðný kveðst sérstak-
lega hrifin af umbúðunum sem
vörurnar koma í. „Ég hef lengi
predikað að það sé afar hollt
fyrir okkur að borða kaldpress-
aðar gæðaolíur og mikilvægt sé
að kaupa olíur ávallt í dökku gleri
og í þannig umbúðum eru einmitt
Taramar vörurnar. Þær eru í
dökku gleri, af því þær eru svo líf-
virkar og lifandi. Eins eru vörurn-
ar með pumpu, sem er bæði til að
gæta hreinlætis af því að í þeim
er engin hefðbundin rotvörn og til
þess að hindra að súrefni skemmi
þær.“
Húðvörulínan er með lífrænt
vottuðum innihaldsefnum og
samanstendur, eins og áður
sagði, af fjórum vörum:
Day Treatment er andoxandi
lífvirkt dagkrem sem
endurvekur starf-
semi húðfrum-
anna og gefur
húðinni heil-
brigðari blæ.
Kremið hefur
létta áferð
og gengur
fljótt inn í húð-
ina, það hentar
einkar vel undir
farða. Virku efn-
in stuðla að betri efnaskiptum,
draga úr bólgum og styrkja og
jafna húðina. Kremið hentar öllum
húðtegundum.
The Serum byggir á andoxandi
eiginleikum þörunga og peptíðum
sem styrkja collagen-þræði húðar-
innar. Serumið dregur bæði úr fín-
um línum og hrukkum, það myndar
filmu sem hleypir súrefni í gegnum
sig og tryggir þannig viðvarandi
virkni.
The Purifying Treatment er
nærandi og mjúk blanda úr kald-
pressuðum olíum úr þörungum.
Blandan bæði hreinsar húðina og
þéttir hana. Hún hentar til dæmis
vel til þess að hreinsa augnfarða.
The Purifying Treatment hentar
öllum húðtegundum og sérstak-
lega viðkvæmri húð.
The Night Treatment er krem
sem er hannað með það að mark-
miði að endurbyggja, slétta,
styrkja og mýkja húðina á meðan
þú sefur. Kremið inniheldur peptíð
og lífvirk efni úr þörungum sem
draga úr fínum línum og hrukkum
og gefa öfluga vörn gegn oxun
og öldrun húðarinnar. Peptíðin
eru tvö, með sérstaka eiginleika
til þess að efla collagen-búskap
húðarinnar, gera hana þéttari og
frískari.
Útsölustaðir TARAMAR eru í
Hagkaupum Kringlunni og Smára-
lind, Lyf og heilsu, Lyfju, Heilsus-
húsinu, Gló í Fákafeni, Fríhöfninni í
Leifsstöð og í flugvélum WOW Air.
…húðin 18 | amk… FÖSTUDAGUR 13. MAÍ 2016
„Ég sé mun á
húðinni
eftir að ég
byrjaði að nota
TARAMAR.“
Alíslenskar vörur sem byggja
á andoxandi eiginleikum þörunga
Ebba Guðný sér mun á húðinni eftir að hún byrjaði að nota Taramar
Æðislegar húðvörur TARAMAR húðvörulínan samanstendur af fjórum vörum.
Night treatment TARAMAR næturkrem
Virknin fer ekki á milli mála Ebba Guðný Guðmundsdóttir er mjög ánægð með TARAMAR vörurnar