Fréttatíminn

Eksemplar

Fréttatíminn - 13.05.2016, Side 38

Fréttatíminn - 13.05.2016, Side 38
Svanhildur Gréta Kristjánsdóttir svanhildur@frettatiminn.is Þau Elinóra Guðmunds-dóttir og Bragi Marin-ósson búa í 50 fermetra stúdentaíbúð á Egg-ertsgötu. Bæði stunda þau nám við Háskóla Íslands, hann í rafmagns- og tölvuverkfræði og hún í ferða- málafræði. Sonur þeirra Sebastian fagnar í dag tveggja og hálfs árs af- mæli sínu, sáttur með lífið japlandi á snúð með mjólkurglasi. „Við erum hæstánægð hérna, þetta er eins og lítil kommúna þar sem allir hjálpast að. Krakkarnir leika sér á ganginum og heima hjá hvort öðru,“ segir Elinóra og Bragi tekur undir. „Það er auðveldara að vera með tvö börn en eitt, þau dunda sér tímunum saman sem gef- ur okkur svigrúm til þess að læra.“ Þrátt fyrir stofnanalegan brag á stúdentagörðunum, þar sem ekki má hengja myndir á veggina og litaður dúkur liggur á gólfunum, hefur parinu tekist einkar vel að gera rýmið heimilislegt og fallegt. „Þessar íbúðir eru svolítið fyrirfram ákveðnar. Allt er áætlað á ákveðinn stað og lítið hægt að endurraða þeirri uppsetningu. Það er greini- lega búið að stúdera hvernig má nýta þessa 50 fermetra sem best,” útskýrir Bragi. Elinóra og Bragi eru sammála um það að stuðningur við námsmenn með börn sé frábær. LÍN framfær- slan eru rúmar 200.000 krónur á mánuði fyrir foreldra í sambúð með eitt barn. Húsaleigan eru tæp- ar 90.000 krónur svo eftir stendur sæmileg fjárhæð til uppihalds. El- inóra segir þó stuðninginn einkenn- ast af fleiru en framfærslu „Á svæð- inu eru tvær dagvistir, leikskóli og stuðningsnet fólks sem er í sömu stöðu og við. Einnig eru kennarar mjög skilningsríkir gagnvart okkur sem foreldrum. Hins vegar er kerfið afar úrelt á meðan á óléttu stendur og í fæðingarorlofi. Þá miðast fram- færsla frá ríkinu við ákveðið hlutfall af lágmarkslaunum sem er löngu úr- elt upphæð. Það er nánast ómögu- legt að komast af á henni eingöngu því gert er ráð fyrir að það sé ein- hver fyrirvinna.“ Það veldur því fjölskyldunni hugarangri hvað tekur við eftir stúdentagarðana. Reynsla þeirra á leigumarkaðinum vekur ekki upp öryggistilfinningu. „Á tímabili leigð- um við íbúð á Baldursgötu sem var aðeins stærri, en nýttist verr,“ segir Bragi. „Leigan var töluvert hærri og alltaf hætta á að innilokast í sífellt hækkandi verði leigumarkaðarins. Það er staðreynd að margir hérna halda sér við námið til þess eins að halda íbúðunum.“ Fjölskyldan lifir bíllausum lífsstíl og segir Elinóra það ósköp einfalt á svæði þar sem skólarnir og aðr- ar nauðsynjar eru innan seilingar. „Sebastian elskar að fara í strætó og við erum duglega að hjóla. Flest er í göngufæri fyrir utan Bónus.“ Þar kemur samvinna nágranna sterk inn og er Bragi gjarnan samferða nágrönnunum í búðina. „Ég fæ oft- ast far hjá vini mínum sem býr hinu megin við götuna, við förum sam- ferða í Bónus úti á Granda.“  Fleiri myndir á frettatiminn.is KATRÍNARTÚNI 12 WOWAIR.IS WOWAIR@WOWAIR.IS ALICANTE f rá 12.999 kr.* BARCELONA f rá 12.999 kr.* NICE f rá 9.999 kr.* EDINBORG f rá 9.999 kr.* VERTU WOW Í SUMAR *Verð miðast við flug aðra leið með sköttum ef greitt er með Netgíró. maí - okt . jún í - sept . jú l í - okt . jú l í - okt . LYON f rá 9.999 kr.* jún í - sept . Myndir | Hari Garðarnir þar sem foreldrar hjálpast að Hvernig er best að nýta smáhýsi? Litla fjölskyldan á Eggertsgötu, þau Elinóra, Bragi og Sebastian, eru viðmælendur vikunnar í myndaröðinni Stúdentagarðarnir, þar sem litið er inn til námsmanna sem búa á stúd- entagörðum. Skoðað er hvernig ungt fólk nýtir rými þar sem nægjusemi einkennir búskapinn. Leigumarkaðurinn er til umræðu og kynslóðin sem dreymir ekki um einbýlishúsið. Stúdentagarðarnir #2 Bragi, Sebastian og Elínóra búa í 50 fermetra stúdentaíbúð og segja nóg pláss fyrir alla. Í blokkinni hjálpast foreldrar að við innkaupaferðir og barnapössun. Á náttborðinu Galdrar, kúrekatímabilið og Dalton-bræður Freyja Sigrún er 11 ára gömul körfuboltakempa og lestrarhestur: „Uppáhaldsbækurnar mín- ar eru Harry Potter-bækurnar sem Snærós stjúpmamma mín las fyrir mig. Við lásum allar sjö bækurnar á þremur árum. Þær eru í uppáhaldi því ég elska galdra og karakterunum er svo vel lýst í bókunum.“ Þegar Freyja les sjálf segist hún oft lesa teiknimyndasögur á borð við Viggó Viðutan, Tinna, Lukku-Láka og Hinrik og Hag- barð. „Lukku-Láki er samt upp- áhaldið mitt af þessum, því ég er mjög hrifin af kúrekatímabilinu og Dalton-bræðrum: Þeir eru svo fyndnir og vitlausir.“ Þessa dagana eru þær Snærós að lesa saman fyrstu bókina í trílóg- íunni um Hungurleikana: „Hún er um Katniss, stelpu sem á systur sem er valin til að berjast upp á líf og dauða í Hungurleikunum, leik- um sem sá vinnur sem er á lífi við enda þeirra. Katniss býður sig þá fram í staðinn fyrir systur sína. Nú erum við Snærós staddar þar sem hún er að æfa sig fyrir Hungurleik- ana. Þetta er rosalega spennandi bók,“ segir Freyja. |sgþ Lífsstíll fjölskyldunnar er minimalískur þó er alltaf rúm fyrir nýjar vínylplötur. 38 | FRÉTTATÍMINN | FÖSTUDAGUR 13. MAÍ 2016

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.