Fréttatíminn - 19.08.2016, Blaðsíða 44
Gott að hlaupa
Á morgun fer Reykjavíkur-
maraþon Íslandsbanka
fram og því er um að gera
að dusta rykið af hlaupa-
skónum og spretta úr
spori. Þá er einnig hægt að taka þátt í
gleðinni með hlaupurunum og hvetja
mann og annan í mark.
Gott að fara niður í bæ
Menningarnótt er á morgun og
búast má við miklu fjöri. Setning
hennar fer fram í Álftanesgarði
Grjótaþorps á milli Grjótagötu og
Bröttugöt upp úr hádegi. Eftir það má finna
alls kyns skemmtilegt fyrir alla eins og lifandi
tónlist og bryggjuball, karnival á Klapparstíg
og vöfflukaffi í Þingholtunum.
Gott að borða nammi
Allir hafa gott af því að
fá bland í poka. Börn,
fullorðnir, hlauparar og
amma. Fátt er betra en
karamellur, Tyrkisk Pepp-
er brjóstsykur og súkkulaði frá Nóa. Allt
í bland í einum poka. Megrun og aðhald
eru leiðinleg fyrirbæri. Borðum nammi.
GOTT
UM
HELGINA
Fólkið mælir með…
Elísabet
Jökuls dóttir
Morgunmatur: Ætli
ég fái mér ekki bara
bláber með rjóma.
Vonandi borða ég líka
morgunmat með einhverjum. Það
væri náttúru lega toppurinn.
Viðburðir: Ég held að ég fari ekk-
ert niður í bæ en ég hef litið kynnt
mér dagskrá Menningarnætur.
Kannski held ég eitthvað hérna
heima hjá mér en ég er búin að
vera svo leið að vera ekki með
neitt sjálf á Menningarnótt. Áður
var ég með leikrit hérna heima hjá
mér. Kannski geri ég eitthvað með
stuttum fyrirvara; held fyrirlestur
um forsetaframboðið.
Flugeldasýning: Jú, kannski. Mað-
ur verður alltaf að tryllast til að
taka á móti flugeldasýningum.
Árni Heimir
Ingólfs son
Morgunmatur:
Verður maður ekki
að gera vel við sig á
Menningarnótt? Ég held að súr-
deigsbrauðið á Brauð&Co sé mál-
ið. Gott meðlæti og ný pressaður
appelsínusafi með.
Viðburðir: Klárlega tónleikar
Sinfóníunnar sem eru ókeypis
í Hörpu. Pétur og Úlfurinn eru
klukkan tvö með teiknimynd.
Síðan er fiðlukonsert eftir
Tchaikowski klukkan fimm.
Flugeldasýning: Ég held ég fari
örugglega á hana. Annað hvort
fer ég niður í bæ að sjá hana eða
úr Laugarnesinu þaðan sem ég
bý. Þar er oft svo gott útsýni yfir
höfnina.
Salka Guð-
mundsdóttir
Morgunmatur: Ó,
guð. Ég er svo léleg í
morgunmat en metn-
aðarfulli morgunmatur- inn
væri náttúrulega að fá sér hafra-
graut með ávöxtum og fræjum.
Viðburðir: Ég er spennt fyr-
ir að kíkja í Tjarnarbíó þar sem
hljómsveitin Mandólín ætlar að
bjóða gestum og gangandi upp á
bíótónlist. Sprúðlandi skemmtileg
hljómsveit og ef Weill og Piazolla
eru á efnisskránni þá er ég alltaf
geim. Síðkvöldstónleikar eru líka
gott fyrirbæri.
Flugeldasýning: Ég ætla að sjá
flugeldana í einhverju formi. Í
versta falli í sjónvarpinu en það
gæti líka verið að ég fari niður
á Sæbraut. Útsýnið stórgott!
ÓTAKMARKAÐUR
LJÓSLEIÐARI
ÓTAKMARKAÐUR
FARSÍMI + 4GB
WWW.HRINGIDAN.IS - 525 2400
4.5X9MM.indd 1 2.6.2016 13:04:43