Fréttatíminn - 23.09.2016, Side 58
○ Ekki fara í matvörubúð þegar
þú veist að það er allt kjaftfullt
ef þú þolir ekki áreiti, mann-
mergð og biðraðir.
○ Verslunarmiðstöðvar geta verið
afar streituvaldandi. Forðastu
þær eins og heitan eldinn.
○ Veldu þrasið þitt vel. Munu
börnin aldrei bíða þess bætur
ef þau horfa einu sinni á sjón-
varpið meðan þau borða kvöld-
matinn eða fá súkkulaðikex í
morgunmat? Líklega ekki.
○ Líður þér eins og þú sért ein/n
í harkinu og áhyggjur heimsins
að sliga þig? Talaðu um það við
einhvern. Stundum er eins og
þungu fargi sé af þér létt þegar
þú segir hlutina upphátt.
○ Taktu þér mínútu í að loka aug-
unum og anda. Alveg ofan í
maga.
○ Ekki einangra þig frá umheimin-
um. Hausinn getur farið með þig
um víðfeðmar lendur áhyggju-
lands ef þú hefur of mikinn tíma
með sjálfri/sjálfum þér. „Mingl-
aðu“ við fólk sem þér líður vel í
kringum og dreifðu huganum.
○ Hættu að hafa áhyggjur af
draslinu á heimilinu. Í guðanna
bænum – það fer ekki neitt.
Áfanganum sem verður náð
þegar þú hættir að pirra þig yfir
ryki og þvottahrúgum verður
ekki öðruvísi lýst en sem al-
sælu.
○ Vertu með stressbolta með-
ferðis þegar þú ert á leiðinni í
uggvekjandi aðstæður. Boltinn
hjálpar þér að dreifa huganum.
○ Hlustaðu á tónlist sem kætir
þig, uppáhaldslagið getur haft
mjög róandi áhrif.
○ Drekktu te. Það er ekkert víst
að það hjálpi sem slíkt en
athöfnin að laga teið og drekka
það hefur slakandi áhrif.
○ Farðu í kvöldsund. Ekkert betra
en að liggja í nuddpottinum láta
stressið sogast inn í háværan
svelginn.
○ Minnkaðu áreitið í kringum þig.
Eru börnin hvert í sínu snjall-
tækinu, kveikt á sjónvarpinu
og makinn að blaðra í símann?
Í öllum bænum skelltu heyrnar-
tólum á börnin, slökktu á sjón-
varpinu og segðu makanum
að tala úti á svölum. Fáðu þér
rauðvínsglas meðan þú eldar
einhvern góðan mat í rólegheit-
um. Spennustigið minnkar til
muna.
Segðu stressinu
stríð á hendur
Æ það er þessi streita og stress sem ætlar allt að yfirtaka á þessum
síðustu og verstu, er það ekki? Er ekki ráð að reyna að slappa svolítið
af og anda rólega? Hér eru nokkur ráð sem hjálpa þér að komast gegn-
um stressandi tímabil með stóískri ró. Það þarf ekki mikið til að minnka
áhrif streituvalda töluvert.
Sumir dagar eru erfiðari en aðrir.
Þannig er lífið bara. Maður hefur
ekki alltaf tök á að forðast erfiðar
og streituvaldandi aðstæður og
þær geta verið yfirþyrmandi. Þá
er gott að kunna góðar möntrur til
að róa hugann og minna sig á það
góða í lífinu. Möntrurnar hljóma
vissulega sumar eins og verstu
klisjur, en hvað sem því líður þá
geta þær virkað, ótrúlegt en satt.
Því oftar sem þú segir jákvæða
setningu, því mun meiri líkur á því
að þú trúir að hún sé sönn.
„Dagurinn á morgun
verður betri.“
„Það er svo margt
sem ég get verið
þakklát/ur fyrir.“
„Ég er heppin/n.“
„Ég er alltaf sigur-
vegari, hvort sem ég
næ markmiðum mín-
um eða ekki.“
„Það er alltaf sól bak
við skýin.“
Lærðu að róa hugann
Þyldu upp möntrur og minntu þig á það góða í lífinu.
Lærðu möntrur Það getur haft góð áhrif á sálartetrið að hugsa eitthvað jákvætt og jafnvel
segja það upphátt.
Bir
t m
eð
fy
rir
va
ra
um
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
r r
étt
til
le
iðr
étt
ing
a á
sl
íku
. A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fy
rir
va
ra
.
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
77
42
6
Frá kr.188.495
m/hálft fæði innif.
Netverð á mann frá
kr.188.495 m.v. 2
fullorðna í herbergi.
7. janúar í 7 nætur.
Hotel
Reslwirt
Frá kr.143.295
m/hálft fæði innif.
Netverð á mann frá
kr.143.295 m.v. 2
fullorðna og 2 börn í
herb. Netverð á mann
frá kr.164.395 m.v. 2
fullorðna í herbergi.
22. desember í 7 nætur.
Skihotel
Speiereck
SKÍÐI
Frá kr.
143.295
m/hálfu fæði
Skelltu þér á
Frá kr.153.495
m/hálft fæði innif.
Netverð á mann frá
kr.153.495 m.v. 2
fullorðna og 2 börn í
herb. Netverð á mann
frá kr.186.995 m.v. 2
fullorðna í herbergi.
28. janúar í 7 nætur.
Hotel
Unterberghof
Heimsferðir bjóða eitt glæsilegasta skíðasvæði Austurríkis, Flachau. Með skíðapassanum er hægt að ferðast á milli 5 svæða með 25
þorpum, 865 km af brekkum og 276 lyftum af öllu tagi.
Brettafólk er líka velkomið á öllu svæðinu en hér er
brettaskemmtigarður og þjónusta við brettafólk. Hér
er flóðlýst skíðabrekka og því hægt að skíða til kl. 21.30
á kvöldin. Skíðarúta fer reglulega á milli svæðanna
Flachau, Wagrain og St. Johan en aðgangur í rútuna
fylgir skíðapassanum.
Lungau skíðasvæðið hefur notið mikilla vinsælda
meðal Íslendinga en þar er m.a. rekið hótel í eigu
Íslendinga. Lungau svæðið er með fjölbreytt úrval af
skíðabrekkum sem henta getu hvers og eins og líka
þeim sem eru á snjóbrettum. Í Lungau er fólksfjöldinn
minni en á mörgum skíðasvæðum og því oftast styttri
bið eftir lyftunni. Skíðaleiðir eru á milli skíðasvæðanna
innan Lungau, t.d. frá Spiereck til Mautendorf eða
frá Katschberg yfir til St. Margarethen, auk þess sem
skíðarúta fer reglulega á milli svæðanna.
…heilsa 10 | amk… FÖSTUDAGUR 23. SEPTEMBER 2016