Fréttatíminn

Issue

Fréttatíminn - 08.10.2016, Page 2

Fréttatíminn - 08.10.2016, Page 2
2 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 8. október 2016 Bókaðu núna á baendaferdir.is Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 RVK Jólaferð til Brussel & Brugge Fararstjóri: Aðalheiður Jónsdóttir Í Brussel og Brugge ríkir hátíðleg jólastemning á aðventunni. Báðar borgirnar eru með einstaklega huggulega jólamarkaði innan um virðulegar gamlar byggingar og hefur jólamarkaður Brussel verið tilnefndur sá frumlegasti í Evrópu. Belgískar vöfflur, súkkulaði og annað góðgæti heimamanna sjá til þess að allir njóti aðventunnar. Verð: 109.900 kr. á mann í tvíbýli. Skoðunarferð til Brugge er innifalin! 24. - 27. nóvember NÝ FE RÐ Leynd yfir stórum kaupanda 500 ríkiseigna á varnarliðssvæðinu Stjórn Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar selur eignir ríkisins á varnarliðssvæðinu eftir að þær hafa verið auglýstar til sölu. Sigurður Kári Kristjánsson, fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins, er formaður stjórnarinnar. Viðskipti - Stjórn Þróunar- félags Keflavíkurflugvall- ar gengur nú frá stórri eignasölu fyrir hönd ríkisins. Innan við tíu fasteignir á varnarliðssvæðinu verða í eigu ríkisins ef af henni verður. Sala eigna ríkisins á svæðinu hefur verið umdeild í gegnum árin en bæjarfull- trúi Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ keypti meðal annars 22 eignir á undir- verði. Ingi F. Vilhjálmsson ingi@frettatiminn.is Þróunarfélag Keflavíkurflugvall- ar vinnur nú að síðustu stóru eignasölunni á svæði varnarliðsins við Keflavíkurflugvöll. Viðræður standa yfir við fjárfesti sem ætlar sér að kaupa um 500 fasteignir á svæðinu á einu bretti, segir Kjart- an Eiríksson, framkvæmdastjóri félagsins. Um er að ræða rúmlega 500 eignir af ýmsum stærðum og gerðum og getur ein eign jafnvel verið lítið herbergi í fjölbýlishúsi. Kjartan segir að um innlenda að- ila sé að ræða en vill gefa ekki upp hverjir þeir eru þar sem ekki sé búið að ganga frá kaupsamningi í viðskiptunum. Hann segir að þessi viðskipti verði líklega kynnt opin- berlega þegar þar að kemur en um er að ræða um 1/6 af öllum eignun- um á varnarliðssvæðinu. Eftir þá eignasölu verða einung- is örfáar fasteignir eftir – innan við tíu – sem íslenska ríkið á í gegnum Þróunarfélag Keflavíkur. „Þetta eru bæði einstaka eignir sem við höfum verið að selja til einstaklinga og svo stærri eignir sem við höfum verið að selja til fyrirtækja eins og WOW air og Icelandair sem hafa keypt af okkur blokkir. Wow hefur gert hótel í tveimur blokkum.“ Bandaríska varnarliðið gaf ís- lenska ríkinu þessar eignir, meðal annars nokkur fjölbýlishús, þegar herinn fór frá Íslandi árið 2006 eft- ir 55 ára veru á Íslandi. Síðan hef- ur legið ljóst fyrir að íslenska ríkið þyrfti að selja eignirnar og var þetta gert að hluta til strax eftir að banda- ríski herinn gaf eignirnar. Svo kom íslenska efnahagshrunið árið 2008 og hafði slæm áhrif á söluferli en nú sér fyrir endann á því. „Við erum búin að selja mjög mikið af eignum á þessu ári,“ segir Kjartan. Hann segir að á síðastliðnu ári hafi verið seldar rúmar 500 eignir fyrir samtals rúma fimm milljarða króna. Fyrirkomulagið við eignasöluna á varnarliðssvæðinu er þannig, segir Kjartan, að fasteignir félagsins eru auglýstar og svo geta áhugasamir aðilar gert tilboð í þær. Stjórn fé- lagsins, sem valin er af Bjarna Bene- diktssyni fjármálaráðherra, tekur svo ákvörðun um hvort gengið er að tilboðunum sem borist hafa. Stjórn- arformaður Þróunarfélagsins er Sig- urður Kári Kristjánsson, fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi aðstoðarmaður Bjarna Benediktssonar, Sigrún Árnadótt- ir, bæjarstjóri í Sandgerði, og Fjóla Hrund Björnsdóttir, varaþingmaður Framsóknarflokksins. Salan á eignum varnarliðsins hef- ur oftsinnis verið til umræðu í sam- félaginu. Árið 2007 var til dæmis fjallað um það að fyrirtæki bæjar- fulltrúa í Reykjanesbæ, Steinþórs Jónssonar, hefði keypt 22 eignir af Þróunarfélaginu fyrir 600 milljónir króna þrátt fyrir að verðmat eign- anna hafi verið 1200 milljónir. Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanes- bæ, sat þá í stjórn Þróunarfélags- ins. Umræður um þessi viðskipti rötuðu meðal annars inn á Alþingi þar sem Atli Gíslason, þingmaður Vinstri grænna, sagði að viðskipti með eignirnar á varnarliðssvæðinu væru brot á stjórnsýslulögum. Ríkis- endurskoðun taldi hins vegar ekkert athugavert við viðskiptin í skýrslu um þau. Viðlíka hörð umræða hefur ekki verið um eignasölu Þróunarfélags- ins síðustu ár þar sem ekkert hefur komið fram að misjafnlega hafi verið staðið að henni. Auk fasteignanna sem Þróunarfélagið er með í sölu- ferli hefur fyrirtækið líka til umsýslu og þróunar 50 ferkílómetra svæði í nágrenni flugvallarins þar sem mögulegt er að byggja nýjar fast- eignir, segir Kjartan. „Við erum búin að selja mjög mikið af eignum á þessu ári.“ Dómsmál Mál erfingja Ingv- ars Helgasonar var þingfest í gær en þar var deilt um það hvort dánarbúið eigi að standa straum af kostnaði vegna rannsókn ráðgjafafyr- irtækisins Kroll. Þinghaldi í máli dánarbús Ingvars Helgasonar var lokað fyrir mistök en málið var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Þar deila afkom- endur um það hvort dánarbúið eigi að standa straum af kostnaði vegna rannsóknar ráðgjafafyrir- tæksins Kroll. Afkomendur óttast að varasjóðir Ingvars Helgasonar séu á forræði Júlíusar Vífils Helga- sonar, fyrrverandi borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, en upp komst um leynifélag á vegum Júlíusar í Panamaskjölunum fyrr á árinu. Allir fjölskyldumeðlimir nema Júlíus og bróðir hans, Guðmund- ur Ágúst, vilja að dánarbúið standi straum af kostnaði vegna rann- sóknarinnar. Að sögn lögmanns Júlíusar Vífils og Guðmundar er þó fyrirséð að upphæðin sem hefur ver- ið nefnd, fimm milljónir, geti hækk- að verulega ef rannsóknin dregst á langinn. Því hafna bræðurnir að dánarbúið standi straum af kostn- aðinum. Samkvæmt heimildum Fréttatím- ans er ekki aðeins deilt um meinta leynisjóði, heldur einnig hvort erfða- skrá Ingvars og eiginkonu hans sé yf- irhöfuð lögleg. Líklega þarf að reyna á lögmæti hennar fyrir dómstólum, þó talið sé að slíkt hafi ekki nein úr- slitaáhrif í málinu. Þegar blaðamaður hugðist sitja dómshaldið í gær fengust þau svör að það væri lokað þinghald. Engin lögmaður kannaðist þó við það eft- ir þinghaldið og kom í ljós að þing- haldið var skráð lokað fyrir mistök, að því er fram kemur í svari Þórhild- ar Líndal, aðstoðarmanns dómara. | vg Þinghald í erfingjamáli lokað fyrir mistök Viðskipti Eigendur upplýs- ingasímanúmersins 118 hafa malað gull síðastliðin ár í skjóli gamallar ríkiseinokun- ar sem nú hefur verið afn- umin. Eigandi fyrirtækisins, sem meðal annars er í eigu lífeyrissjóða, lánaði því 261 milljón í fyrra en sama ár var greiddur út 250 milljóna arður til hluthafa. Eigendur Já hf., fyrirtækis sem rek- ur upplýsingasímanúmerið 118, greiddu sér 250 milljóna króna arð í fyrra. Þetta kemur fram í árs- reikningi félagsins fyrir árið 2015 sem skilað var til ársreikningaskrár í lok ágúst síðastliðins. Athygli vekur að hluthafi félags- ins, Eignarhaldsfélagið Njála ehf. sem meðal annars er í eigu lífeyrissjóða í gegnum fagfjárfestasjóðinn Auði I, lánaði fyrirtækinu 261 milljón króna í fyrra. Aðrir hluthafar Njálu eru fram- kvæmdastjórinn, Sigríður Margrét Oddsdóttir, og stjórnarformaðurinn, Katrín Olga Jóhannesdóttir. Þjónusta Já hf. í 118 var áður ríkis- varin þegar þjónustan var veitt í rík- isfyrirtækinu Símanum hf. Síminn hf. var einkavæddur árið 2005. Já hf. var svo selt út úr Símanum til núver- andi hluthafa árið 2010 en ríkisvar- in einokun fyrirtækisins, til að veita upplýsingar um símanúmer, hélst til sumarsins 2015. Með þessari arðgreiðslu í fyrra nema samanlagðar arðgreiðslur til eigenda Já hf. 1650 milljónum króna síðastliðin sex ár. | ifv Júlíus Vífill Ingvarsson leggst gegn því að dánarbúið greiði fyrir rannsókn. Eigendur 118 hafa greitt út 1650 milljóna króna arð Eigandi Já hf. lánaði félaginu 261 milljón króna í fyrra en félagið greiddi tæplega sömu upphæð, 250 milljónir króna, í arð til hluthafans. Katrín Olga Jóhannesdóttir er stjórnarformaður Já hf. og hluthafi í félaginu. Bjarni Benediktsson, fjármálaráð- herra og Hjörleifur B. Kvaran, lög- maður landeigenda, undirrituðu í gær samning um kaup ríkisins á öll- um eignarhluta landeigendafélags- ins innan girðingar á Geysissvæðinu. Ekki kemur fram í tilkynningu sem birtist um málið hvert kaup- verðið sé en samkvæmt samningn- um verður kaupverð eignarhlutans lagt í mat þriggja dómkvaddra mats- manna. | vg Ríkið keypti Geysi í gær. Viðskipti Ríkið kaupir Geysi

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.