Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 08.10.2016, Blaðsíða 42

Fréttatíminn - 08.10.2016, Blaðsíða 42
Ný plata bandarísku tónlist- arkonunnar Solange, A seat at the table, hefur vakið mikla og góða athygli í tónlistar- pressunni á síðustu dögum. Sunna Sasha Larosiliere hef- ur hrifist að nýju plötunni. „Ég er búin að hlusta stanslaust á þessa plötu síðustu daga, frá því að hún kom út,“ segir Sunna Sasha Larosiliere. „Ég er búin að fylgjast með Solange í nokkur ár og finnst hún algjörlega frábær. Það er alltaf verið að bera þær systur saman en fólk gleymir því þá að þær eru gjörólíkar í því hvernig þær nálgast tónlistina. Samanburðurinn gengur ekki upp, enda er þetta allt önnur manneskja.“ Solange er undir mikl- um áhrifum frá soultón- list og arfi Motown- útgáfunnar. „Þarna er hún líka að vinna með ótrúlega spennandi, sjálfstæðum og frumleg- um listamönnum eins og Raphael Saadiq og André 3000 úr Outkast.“ Eig- inmaður Solange er leik- stjórinn Alan Ferguson og myndböndin sem þau hafa gert í sameiningu við lögin af nýju plöt- unni og hann leikstýrir eru glæsileg, frumleg og falleg. Sunna Sasha segir að það sé mikið stolt í þessari tónlist. „Solange talar inn í Black Lives Matter hreyfinguna sem hefur verið svo áberandi í Bandaríkjunum síðustu mánuði. Hún vitnar til dæmis með hljóðupp- tökum í mömmu sína í lögunum um að það sé sjálfsagt að fagna menningu svartra í samfélaginu og með því sé maður ekki endilega að líta nið- ur á menningu annarra þjóðfélagshópa. Þessum skilaboðum kemur hún vel frá sér á tímum þegar kynþáttaólgan er mikil í landinu.“ Sunna Sasha, með sitt hrokkna hár líkt og Solange, segist hafa tengt sérstaklega við eitt lag- anna á nýju plötunni. „Það heitir Don’t Touch My Hair og ég skil það vel. Ég lendi oft í því að fólk vilji snerta hárið mitt, án þess að fyrir því sé nokkur ástæða. Það er ekkert endilega alltaf eðlilegt ef fólk þekkir mann ekki, en Solange talar um að fólk eigi líka að láta sig í friði með sitt stolt og sína sál. Hún er sín eigin manneskja. Ég bara þarf þessa fallegu, svörtu tónlist þessa dagana og hlusta alla daga. Þetta er mikilvæg plata, ég held að hún verði það áfram og vona að hún nái til sem flestra.“ | gt Solange vill fá sæti við borðið 42 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 8. október 2016 Fyrsta ástin Fréttatíminn talaði við nokkra einstaklinga um fyrstu ástina. Birna Guðmundsdóttir birna@frettatiminn.is Helga Dögg Ólafsdóttir helga@frettatiminn.is Sunna Sasha Larosiliere segist strax hafa orðið háð hljómnum og boðskapnum á nýju plötunni hennar Solange. Tónlistin á nýjustu plötu Solange, A seat at the table, er vel heppnað bland af R&B samtímans og áhrifum frá eldri soultónlist. Arna Beth leyfði Fréttatímanum að sjá hvað er í draslkassanum sín- um. „Ég er ekki með neina skúffu á litla heimilinu mínu þar sem það kemst varla fyrir nema ein fatakommóða þannig að ég geymi allt drasl og svoleiðis í litlum kassa upp á hillu. Er búin að vera grisja rosa mikið heima hjá mér undan- farið, eftir að hafa horft á mikið af Marie Kondo myndböndum á Youtube svo ég á ekkert svo mikið af dóti lengur. En í þessum kassa er eftirfarandi: Draslskúffa Örnu Flestir eiga eina skúffu sem allt drasl heimilisins lendir í. Allskonar gersemar geta leynst í skúffunni. Arna á ekki draslskúffu heldur kassa. Myndir | Rut Superia filmu- pakki, fyrir þær 5 filmuvél- ar sem ég á. HENTAI BABES zines sem kærastinn minn gerði þegar við vorum ein að vinna upp í Gallery Gallera. Mjög sexí. Pokemon Black og Nintendo DS original: Eitt af fáum gjöf- um sem ég á frá pabba mínum og ég get ekki hugsað mér að losa mig við þó ég spili eigin- lega aldrei lengur á hann. Holographic sticker album sem ég keypti átta ára gömul í Úlfarsfelli „back in the days“. Maður veit aldrei hvenær maður þarf að nota límmiða. Bleikir hitapokar sem kæró gaf mér í jólagjöf því mér er alltaf kalt. Xylocain: Píku- krem fyrir þessa daga þegar sveppa- sýkingin er sér- staklega slæm.Mercilon: Versta getnaðarvarnarpilla í heimi. Ólafía Hrönn Jónsdóttir Fyrsta ástin sem ég varð heill- uð og gagntekin af var maður að nafni Skúli, hann er dáinn. Ég var 5 ára og hann var miklu eldri en ég. Hann var í Stýrimannaskól- anum þegar ég varð ástfangin af honum. Skúli var góður maður og mér fannst hann alveg stórkost- legur. Hann var alltaf að koma í kaffi heima. Ég kveið alltaf fyrir því þegar hann færi, mér fannst það svo leiðinlegt. Einu sinni tók ég skóna hans og faldi þá svo hann kæmist ekki í burtu. Svo var leitað og leitað þegar hann var að fara og enginn skildi neitt. En var mér far- ið að líða svolítið illa því mamma og Skúli skildu ekkert í þessu. Það sem ég hafði gert var að setja skóna út á tröppur sem var svolítið sniðugt hjá mér. Það slæma var að það var rigning. Sigursteinn J. Gunnarsson Fyrsta ástin mín er eina ástin mín. Við byrjuðum saman þegar við vor- um 15 ára þannig við erum búin að vera saman í 12 ár núna. Við kynntumst í Hagaskóla. Ég komst einhvernveginn inn í vina- hópinn hennar, við vorum búin að vera vinir í eitt ár þegar við byrjuðum að tala saman á MSN í marga, marga klukkutíma. Ég ætlaði að bjóða henni í bíó en hún bauð öllum vinum okkar með en þar héldumst við í hendur í fyrsta skipti, það var alveg mögnuð til- finning. Við fórum út í hléi og þá fannst mér eins og ég væri að ganga á skýi, eins og þegar maður er bú- inn að vera hlaupa á hlaupabrettinu í hálftíma og ætlar að reyna að byrja að labba á jörðinni, það var svolítið tilfinningin þegar við héldumst í hendur í fyrsta skiptið. Hvað voruð þið búin að vera lengi saman þegar þið trúlofuðið ykkur? Við vorum búin að vera saman í 5 ár þegar við trúlofuðum okkur, þá vorum við 20 ára. Svo giftum við okkur hálfu ári seinna. Var ekkert ógnvekjandi að gifta sig svona ungur? Nei, þetta var bara eðlilegt. Við vorum búin að vera saman í heila eilífð, að okkur fannst, og það var ekkert að fara breytast. Þetta var aldrei nein spurning einhvernveginn. Anna Gyða Sigurgísladóttir Fyrsta ástin var ást við fyrstu sýn. Ég var 15 ára og sat fyrir utan íþróttahús Garðaskóla með sund- kennaranum mínum. Var að segja henni að ég væri á blæðingum og kæmist því ekki í sund. Lygi þar á ferð enda byrjaði ég ekki á blæð- ingum fyrr en seint á lífsleiðinni. Mér fannst bara réttlætanlegt að ég fengi líka frípassa í sund einu sinni í mánuði eins og hinar stelpurnar. Hvað sem því líður, ég sat með sundkennaranum þegar strákur, sem ég hafði aldrei séð áður, labbar inn með félögum sínum. Strákarnir tala saman og hlæja er þeir labba í átt að sund- klefanum. Augu okkar mættust og tíminn stoppaði. Í minningunni var augnablikið hálftímalangt en hvað veit maður, minningar eru hverfular og skrýtnar. Kannski hef ég búið til meiri sjarma í kringum atvikið með árunum. Ég man þetta þó vel. Þetta var ást við fyrstu sýn. 15 ára og ég hugsaði meira segja: „Ég skil nú hvað er verið að tala um í öllum þessum bíómyndum.“ Hann var fyrsti strákurinn sem ég kyssti og við áttum sætt unglinga- samband sem entist þar til við þroskuðumst í sitt hvora áttina. Heimili & hönnun Heimilistæki Þann 14. október auglysingar@frettatiminn.is | 531 3300
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.