Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 08.10.2016, Blaðsíða 6

Fréttatíminn - 08.10.2016, Blaðsíða 6
Saga Daníels dæmigerð Guðrún Harpa Heimisdóttir, formaður Hugarfars, segir sögu Daníels lýsandi fyrir aðstæður fólks með ákominn heilaskaða á Íslandi. „Það hefur lengi ríkt algjört úrræða- leysi fyrir þetta fólk og engin langtíma endurhæf- ing er í boði. Hugarfar og fjölmargir fagaðilar berjast því fyrir að koma á fót endurhæf- ingar- og fræðslumiðstöð fyrir fólk með ákominn heilaskaða. Grensás og Reykjalundur eru sammála um að úrræðið verði að opna. Baráttan fyrir með- ferðarúrræði hefur staðið yfir í rúm tuttugu ár. Í fyrra komu 1400 manns á bráðamóttöku Landspítalans vegna höfuð- höggs. Samkvæmt upplýsing- um sérfræðinga má áætla að um 500-600 manns af þeim hafi hlotið heilaáverka eða skaða en lítill hluti af þeim fer í endurhæfingarmeðferð. „Það er fullt af fólki sem hefur fengið höfuðáverka, kannski í slysi en einnig eru mörg ofbeldismál, sem greinist ekki. Við höfum ekki greiningartæki sem eru nægilega næm til að greina þá í bráðafasanum. Svo kemur það ekki í greiningu fyrr en of seint. Það þarf ekki mikið höfuðhögg til að vera mjög hættulegt,“ seg- ir Stefán Ingvason, yfirlæknir á Grensási. | þt 6 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 8. október 2016 Daníel Þór Sigurðsson slasaðist alvarlega þegar bíll keyrði yfir höfuð hans, þegar hann var fimm ára gamall. Hann var hinsvegar orðinn fullorðinn þegar hann komst að því að slysið olli heilaskaða sem hefur litað allt hans líf síðan. Ef heilaskaðinn hefði uppgötv- ast fyrr hefði hann fengið allt aðra meðhöndlun. Þóra Tómasdóttir thora@frettatiminn.is „Ég virðist vera heilbrigður, eins og ekkert sé að mér. Það er svolítið skrítið að átta sig allt í einu á því að maður sé fatlaður og búinn að vera það öll þessi ár,“ segir Daníel. „Það getur verið mjög snúið að lifa með fötlun sem háir manni svona mikið en er algjörlega ósýnileg utan frá. Hvað þá þegar maður veit ekki af henni sjálfur.“ Daníel Þór Sigurðsson var fimm ára gamall þegar bíll ók á hann fyr- ir utan heimili hans við Bröttukinn í Hafnarfirði árið 1996. Bíllinn keyrði yfir höfuðkúpu hans svo hún brotn- aði. Daníel missti meðvitund og var haldið sofandi í öndunarvél á gjörgæslu í einhverja daga á eftir. „Ég man þegar ég rankaði við mér skyndilega inn á spítala. Ég var með slöngu ofan í hálsinum og reyndi að toga hana út úr mér. Mér fannst ég ekki þekkja þá sem voru þarna hjá mér, mömmu og pabba og fjöl- skylduna mína. Ég man þegar ver- ið var að plokka saumana úr hár- sverðinum á mér. Svo var ég bara sendur heim, allt önnur manneskja en sú sem varð fyrir bílnum.“ Daníel segir foreldra sína ekki hafa verið upplýsta um afleiðingar af heilaskaðanum. „Eftir þetta var okkur kastað á milli í kerfinu árum saman. Ég var settur á lyf og fékk óþarfar greiningar eins og athyglis- brest. Þrátt fyrir að læknarnir eigi að vita betur þá var mér hent út í óvissuna. Óupplýstum um stöðuna og úrræðalaus. Sá heilaskaddaði hefur jafnvel ekki vitneskju um að hann sé með fötlun sem líklegast á eftir að fylgja honum til æviloka.“ Endurhæfing í lamasessi Þó Daníel hafi leitað sér hjálpar hjá Hugarfari, félags fólks með ákom- inn heilaskaða, telur hann að endurhæfing heilaskaddaðra sé í lamasessi. Málið sé alþekkt í heilbrigðiskerf- inu og hafi verið vanrækt í árar- aðir. Algengt sé að þeir sem ný- lega hafa greinst með heilaskaða séu sendir í sjúkraþjálfun en lítið sé rýnt í andleg áhrif skaðans. „En svoleiðis er staðan enn í dag, öll áhersla er á líkamlegt ástand en það er ekkert pælt í vitrænum, hug- rænum, geðrænum og félagslegum áhrifum heilaskaðans.“ Áhrif framheilaskaðans á líf Daníels eru margþætt. Hann geri það að verkum að hversdagslegir hlutir flækist fyrir honum og hann mæti hindrunum við minnstu litlu athafnir. „Fólk með framheilaskaða er oft með skert innsæi í eigin vandamál og það getur tekið langan tíma að átta sig á þeim, jafnvel þó maður sé meðvitaður um að mað- ur sé með heilaskaða. Þess vegna get ég lent í því að haga mér eins og hálfviti þegar ég held að ég sé að haga mér eðlilega. Mér finnst samt innsæi mitt vera að smám saman að aukast með tímanum.“ Hann segir heilaskaðann einnig valda vanvirkni, alvarlegu þung- lyndi og hann hafi oft glímt við sjálfsvígshugsanir. Hegðunarvanda- málin sem fylgi séu einnig erfið og kvíðinn lamandi. Brjálæðisköstin verst „Alverst eru brjálæðis- og bræðis- köstin. Þau einu sem vita nákvæm- lega um hvað ég er að tala eru foreldrar mínir og ein af systrum mínum. Ég fékk nefnilega alltaf svo- leiðis köst þegar ég var yngri. Þau byrjuðu að mig minnir fljótlega eftir slysið og versnuðu fram á unglings- ár. Þau reyndust mínum nánustu mjög erfið. Í dag næ ég að beisla þessa bræði og fæ því ekki þannig köst lengur að ég ógni sjálfum mér eða öðrum. En ef ég verð fyrir áfalli þá koma köstin.“ Daníel segist hafa reynt að leita sér hjálpar, meðal annars hjá sál- fræðingum. Hann hafi einnig verið settur á lyf sem að hans mati hjálp- uðu ekki neitt. „Því miður er ekki mikið af úr- ræðum í boði hér á landi. Ef það væri eitthvað í boði, væri ég að nýta mér að það akkúrat núna. En ég finn ekkert!“ Hann nefnir að algengt sé að heilaskaddaðir fá endurhæfingu á Grensási en engin langtíma eftir- fylgni sé til staðar. „Ég er viss um að ef við fjölskylda mín hefðum fengið rétta aðstoð frá upphafi, þá væri ég örugglega í skóla eða vinnu í dag og hefði betri tök á lífi mínu. Það er alvitað að þegar börn fá heilaskaða þá koma jafnvel verstu einkennin ekki í ljós fyrr en þau verða fullorðin. Ég bað ekki um að verða svona en ég varð svona og ég er svona.“ Greindur með heilaskaða 20 árum eftir slys Frétt um slysið birtist í Morgun- blaðinu 20. apríl 1996. Daníel fimm ára gamall á spítalanum eftir slysið Daníel glímir við margþættar afleiðingar af framheilaskaða sem hann hlaut í hræðilegu bílslysi árið 1996. Hann segir líf sitt hefði þróast í aðrar áttir ef heilaskaðinn hefði uppgötvast fyrr. Mynd | Rut Skelltu þér í sólina um jólin með fjölskyld-unni, makanum eða vinum. Jólaferðir til Gran Canaria hafa verið afar vinsælar síðustu ár enda frábært að njóta sólarinnar þar ytra yfir hátíðina. Heimsferðir bjóða úrval gistingar á frábærum kjörum en Gran Canaria eru einn alvinsælasti áfangastaður Evrópubúa yfir veturinn, enda er þar að finna eitt besta loftslag í heimi, milt og gott veður með jöfnu hitastigi árið um kring. Á Gran Canaria eyjunni er að jafnaði 20-25 stiga hiti á daginn. Frá kr. 145.390 m/ekkert fæði innif. Netverð á mann frá kr. 135.595 m.v. 2 fullorðna og 1 barn í íbúð. Netverð á mann frá kr. 153.795 m.v. 2 fullorðna í íbúð. 20. desember í 13 nætur. Frá kr. 184.665 m/allt innifalið Netverð á mann frá kr. 181.830 m.v. 2 fullorðna og 1 barn í herb. Netverð á mann frá kr. 202.535 m.v. 2 fullorðna í herbergi. 22. desember í 10 nætur. Frá kr. 174.695 m/morgunmat innif. Netverð á mann frá kr. 174.695 m.v. 2 fullorðna og 1 barn í herb. Netverð á mann frá kr. 217.895 m.v. 2 fullorðna í herbergi. 22.des í 10 nætur Don Diego Barcelo Margaritas Maspalomas & Tabaiba Princess Frá kr. 152.990 m/ekkert fæði innif. Netverð á mann frá kr. 152.990 m.v. 3 fullorðna í íbúð. Netverð á mann frá kr. 158.395 m.v. 2 fullorðna í íbúð. 20. desember í 13 nætur. Roque Nublo Bir t m eð fy rir va ra um pr en tvi llu r. He im sfe rð ir ás kil ja sé r r étt til le iðr étt ing a á sl íku . A th . a ð v er ð g etu r b re ys t á n f yri rva ra . E N N E M M / S IA • N M 77 4 2 8 GRAN CANARIA Frá kr. 145.390 Fá sæti laus! 20. des. Aukaferð 22. des. Um jólin til 20 DES 20 DES 22 DES 22 DES
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.