Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 08.10.2016, Blaðsíða 46

Fréttatíminn - 08.10.2016, Blaðsíða 46
…fólk 2 | amk… LAUGARDAGUR 8. OKTÓBER 2016 Mig hefur lengi langað að gefa út förðunar-bók fyrir venjulegar konur á öllum aldri. Þarna get ég svarað öllum þeim spurningum sem ég fæ daglega í starfi mínu,“ segir Harpa Káradóttir förðunarfræðingur sem undirbýr nú útgáfu veglegrar förðunarbókar. Bókin kallast And- lit og kemur út í lok nóvember. Um þessar mundir er verið að taka myndir fyrir bókina. Myndirn- ar tekur Snorri Björnsson sem er ein helsta snapchat-stjarna landsins um þessar mundir en hefur einnig getið sér gott orð fyrir myndir sín- ar fyrir Húrra Reykjavík og fleiri. „Við Snorri höfum þekkst í nokkur ár og unnið saman í auglýsingaver- kefnum. Hann er mjög flinkur og við vinnum mjög vel saman,“ seg- ir Harpa. Sjálf er Harpa þrautreynd í förðunarfræðum þrátt fyrir að vera aðeins 29 ára. Hún er skóla- stjóri MOOD Make Up förðunar- skólans og hefur unnið að auglýs- ingum, tónlistarmyndböndum, sjónvarpsþáttum og fleiru auk þess að hafa starfað á RÚV undanfar- in ár. „Ég vinn með mjög fjölbreyttu fólki og að fjölbreyttum verkefn- um. Ég vinn mikið í sjónvarpi, við auglýsingar og fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Því þarf ég reglulega að gefa hinum og þessum ráð og veit að það eru margir sem vilja fá útskýringar á venjulegum hlutum tengdum förðun á íslensku. Þetta verður ekki bók fyrir förðunar- fræðinga. Þetta verður bók fyrir alla, bæði byrjendur og lengra komna. Þarna verður allt það besta sem ég hef gert síðustu tíu árin auk þess að ég svara öllum algengustu spurningum sem ég fæ,“ segir Harpa. Hún segir jafnframt að í bókinni verði að finna ráð við kvillum og ýmsum aðstæðum sem kunna að koma upp, fjallað um mismunandi húðtýpur, um tæki og tól og ýmis vinsæl lúkk sýnd. Bókin verði mjög myndræn og förðunin útskýrð skref fyrir skref. Harpa segist hafa verið að pæla í útgáfu bókarinnar síðustu þrjú ár en ekki verið tilbúin að taka skrefið fyrr en nú. Hvatning Björns Braga Arnarssonar, vinar hennar, hafi hjálpað mikið til. „Margir höfðu sagt við mig í léttu gríni að ég ætti að gera bók á íslensku því það sé svo erfitt að skilja ensku heitin. En svo fór ég að heyra þetta oftar og oftar og þá kitlaði þetta aðeins meira. Ég hef sjálf mjög gaman af svona „coffee table“-bókum, ljósmyndabókum og fleiru slíku. Mér leist í fyrstu ekkert á þessa bókaútgáfu enda voru margir bún- ir að segja mér að það væri ekki þess virði, þetta væri mikil vinna og maður fengi ekkert út úr þessu. Björn Bragi gaf út fótbolta- bók í fyrra og hann gaf mér ýmsar hugmynd- ir og var tilbúinn að gera þetta með mér. Þetta er reynd- ar heljarinnar mál en Bjössi gaf mér vítamínsprautuna sem ég þurfti til að framkvæma þetta,“ segir Harpa en það er útgáfufélag Björns Braga, Fullt tungl, sem gefur bókina Andlit út. Hægt er að fylgjast með tilurð bókarinnar á Instagram og víðar í gegnum myllumerkið #mittandlit. Gott teymi Ljósmyndarinn Snorri Björns tekur myndirnar í bók Hörpu og Björn Bragi Arnarsson, uppistandari með meiru, gefur hana út. Harpa Kára, Snorri Björns og Björn Bragi gera förðunarbók Förðunarfræðingurinn Harpa miðlar af reynslu sinni í glæsilegri bók sem Björn Bragi gefur út. Snapchat-stjarnan Snorri tekur myndirnar. Þrautreynd Harpa Káradóttir notar reynslu sína frá síðustu tíu árum við gerð nýrrar förðunarbókar sem kemur út í lok nóvember. Brugguðu bjór með ösku úr Eyjafjallajökli Íslenskir bruggarar áberandi í Noregi um helgina. „Við ákváðum upphaflega að brugga saman einhvern vetrar- voða. Crow-bar strákarnir spurðu síðan hvort við gætum reddað ösku úr jöklinum „sem enginn getur borið fram og setti allt á hliðina á sínum tíma,“ en þá höfð- um við verið að ræða einhverja eldfjallanálgun með reykbragði og dökkum lit. Við tókum með okk- ur ösku sem við notuðum síðan í bjórinn. Þar sem bjórinn verður aðallega seldur í Osló enduðum við á að nefna hann Eyjafjallajökull sem virtist merkilega ferskt í eyr- um Norðmanna,“ segir Árni Long, bruggmeistari í Borg. Árni og félagar hans í brugg- húsinu Borg munu kynna nýjan bjór sem þeir gerðu í samstarfi við kollega sína á Crow-bar í Osló þar í borg um helgina. Bjórinn er sannarlega með óvenjulegu sniði, kryddaður með ösku úr Eyjafjalla- jökli og ber hans nafn. Fyrst um sinn verður bjórinn eingöngu fáan- legur á Crow-bar í Osló en að sögn Árna hefur ekki verið ákveðið hvort hann verður fluttur til Ís- lands. Auk þess að kynna þennan nýja bjór munu Borgar-liðar mæta með tíu bjórtegundir sínar til að kynna á barnum. Þetta er þó ekki eina tilefni Nor- egs-ferðarinnar því á mánudag er komið að undanúrslitaviður- eigninni í Bryggeribråk, keppni brugghúsa á Norðurlöndunum í pörun á mat og bjór. Þar mæta Borgar-menn sænska brugghúsinu Stigberget og freista þess að kom- ast í úrslit keppninnar. Keppnin fer fram á veitingastaðnum Håndver- kerstuene. „Við hlökkum mikið til að mæta Svíunum og höfum heyrt góða hluti af Stigberget. Við ákváðum að taka áhættu og mæta eingöngu með bjóra sem við höfum ekki komið með áður í keppnina, þrátt fyrir að vera ennþá ósigraðir og erum afar spenntir fyrir viðureign- inni. Hermann Ingólfsson sendi- herra, eða sendiHermann eins og ég kalla hann, mun mæta og styðja okkur og við kunnum hon- um bestu þakkir fyrir. Við höfum haft af því fregnir að Axel Wern- hoff, sendiherra Svía, mæti einnig – þetta er því orðið hápólítískt mál, á barmi milliríkjadeilu jafnvel. Spurning hvort við eigum að heyra í Lars?“ Herja á Noreg Sturlaugur, Árni Long og Valgeir í Borg brugghúsi freista þess að komast í úrslit Bryggeribråk á mánudaginn. Sagði aðdáanda til syndanna Halle Berry fékk á dögunum nóg af ítrekuðum athugasemdum frá ein- um aðdáanda á Instagram sem gagnrýndi hana fyrir að birta aldrei myndir af andlitum barna sinna. Berry svaraði í löngu máli og útskýrði hvers vegna hún birti myndirnar svona. „Ég skammast mín svo sannar- lega ekki fyrir börnin mín, en ég reyni að finna skapandi leiðir til að birta myndir af þeim án þess að þau þekkist. Þau eru númer eitt í mínu lífi en ég vil vernda friðhelgi einkalífs þeirra. Sem móðir þeirra er það mitt hlut- verk. Þegar þau verða eldri geta þau sjálf birt myndir af sér á samfélgsmiðlum, ef þau kjósa svo,“ skrifaði Berry meðal annars og bað fylgj- anda sinn vel að lifa. Sú svaraði um hæl og sagðist aðeins hafa verið að segja sína skoðun. Hana lang- aði einfaldlega til að sjá meira af lífi Berry. Örugg í LA Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian, sem var rænd í París í vikunni, hefur nú snúið aftur til síns heima Í Los Angeles. Hún hefur látið lítið fyrir sér fara síðan atvikið átti sér stað. Hulið sig vel með stórri hettupeysu utandyra og haldið sig frá samfélagsmiðlum. Ætla má að hún sé enn í sjokki, enda ansi erfið lífsreynsla að vera haldið niðri af vopn- uðum innbrotsþjófum sem ræna skartgripum að andvirði milljarða króna. Hún kom til Los Angeles, ásamt móður sinni og börn- um, í einkaflugvél í vikulok. Henni finnst hún öruggust í borg englanna og er fegin að vera komin heim. Maður hennar, Kanye West, hyggst verja nokkrum dögum með fjölskyldunni áður en hann snýr aftur í tónleikaferða- lag sitt. Eiga von á strák Leikaraparið Ashton Kutcher og Mila Kunis eiga von á sínu öðru barni, en fyrir eiga þau hina tveggja ára gömlu Wyatt. Kutcher missti kynið á barninu út úr sér í viðtali í Today Show í vikunni þegar hann var að segja skemmtilega sögu af dóttur sinni. „Hún bendir á magann á Milu og segir; litli bróðir, svo bendir hún á magann á mér og segir; bjór, þannig að hún veit að það er eitthvað þarna inni, en hvort hún gerir sér grein fyrir því að barnið er ekki dúkka sem hún getur leikið sér með, veit ég ekki alveg. Leikarinn viðurkenndi svo að hann væri svolítið stressaður yfir því að bæta öðru barni við fjölskylduna og gantaðist með ýmsar kenningar og reglur sem breytast þegar annað barn bætist við. Evonia eykur hárvöxt með því að veita hárrótinni næringu og styrk. Evonia er hlaðin bætiefnum sem næra hárið og gera það gróskumeira. Bætiefni ársins í Finnlandi 2012. Evonia www.birkiaska.is www.birkiaska.is Minnistöflur Bætir skammtímaminnið. Nýtist fólki sem er undir álagi og fæst við flókin verkefni. Hentar vel fyrir eldri borgara, lesblinda og nemendur í prófum. Dregur úr streitu, eykur ró og bætir skap.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.