Fréttatíminn - 08.10.2016, Blaðsíða 24
Ótti við innflytjendur
frekar en opið stjórnkerfi
Á meðan fáni Pírata í Þýska-
landi mætti með réttu vera
dreginn í hálfa stöng er ann-
ar nýr flokkur, Alternativ für
Deutschland eða AfD, á hraðri
siglingu, en helsta stefnumál
hans er gagnrýni á hina opnu
innflytjendastefnu Angelu Mer-
kel kanslara. AfD er nú með
þingmenn í 10 af 16 sambands-
ríkjum Þýskaland og er Berlín
eitt af þeim. Í kosningum þar í
síðasta mánuði fékk flokkurinn
14 prósent atkvæða, sem er
álíka mikið og Pírataflokkurinn
missti.
Ekki er það þó vegna þessa
að fylgið hafi flust yfir, held-
ur sækir AfD fylgi sitt helst
til þeirra sem ekki hafa kosið
áður og jókst kosningaþátt-
taka um sjö prósent frá því í
síðustu kosningum. Jafnframt
sækir flokkurinn fylgi til óá-
nægðra kjósenda Kristilegra
demókrata, sem er flokkur
Merkel, og eru þeir orðnir
stærri en flokkur kanslarans
í heimafylki hennar Mecklen-
burg-Vorpommern. AfD er þó
ekki nema fimmti stærsti flokk-
ur Berlínar, enn sem komið er,
en forystumenn hanns vonast
til að ná yfir 10 prósenta fylgi í
landskosningunum á næsta ári.
Tveggja flokka stjórn Kristi-
legra demókrata og Sósíalde-
mókrata féll í Berlín, en sömu
flokkar fara nú með völd í
Þýskalandi öllu. Sósíalde-
mókratinn Michael Müller
verður áfram borgarstjóri, en
ekki hefur enn tekist að mynda
nýja stjórn og hefur hann boðið
öllum nema AfD til viðræðna.
Kosningarnar í Berlín eru tald-
ar gefa góða vísbendingu um
hvernig fer í landskosningun-
um að ári.
24 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 8. október 2016
Þetta hefur verið erfitt haust fyrir Pírata í Þýskalandi. Ekki aðeins
töpuðu þeir öllum sætum sínum á héraðsþinginu í Berlín í ný af
stöðn um kosningum, heldur fannst einn helsti talsmaður þeirra lát
inn í íbúð sinni þá sömu helgi. Við hlið hans var lík ungs manns sem
hann er talinn hafa myrt, og síðan flutt líkið 11 kílómetra í hjólbörum
að eigin íbúð.
Valur Gunnarsson
valurgunnars@frettatiminn.is
Pírataflokkurinn í Þýskalandi var stofnaður árið 2006, en fékk í fyrsta sinn sæti á héraðsþingi árið 2011 þegar hann fékk
8.9 prósent atkvæða og 15 manns
kjörna í höfuðborginni Berlín. Vakti
þetta nokkra athygli, þar sem að
eins voru 15 manns á listanum og
fengu þeir því allir sæti. Í kjölfarið
kom flokkurinn mönnum að í fleiri
sveitarstjórnarkosningum, og náði
jafnframt manni inn á Evrópuþing
ið í Strassborg. Um tíma voru þeir
farnir að mælast með 13 prósent
fylgi á landsvísu, en í þingkosning
unum 2013 mistókst þeim þó að ná
því fimm prósenta lágmarki sem til
þarf til að fá þingsetu og var sigur
göngu þeirra lokið í bili.
Meðal stefnumála flokksins eru
endurskoðun á höfundarétti hvort
sem um er að ræða hjá menntastofn
unum, varðandi læknalyf eða líf
rænan mat, gegnsæi hjá yfirvöld
um, beint lýðræði með aðstoð
netkosninga og borgaralaun fyrir
alla. Andúðin á ríkisvaldinu hefur
gert það að verkum að flokkurinn
rúmar bæði frjálshyggjumenn og
anarkista, en sú sambúð hefur ekki
alltaf gengið snurðulaust fyrir sig.
Á undanförnum árum hefur hann
lent í nokkrum hneykslismálum
sem að sjálfsögðu hafa öll fengið
viðurnefni sem enda á „gate.“
Vinstri eða hægri?
Hið svonefnda „Bombergate“ mál
hófst með tveim konum sem tóku
þátt í mótmælum gegn nýnasistum
í borginni Dresden undir merkjum
„femen“ samtakanna. Voru þær
með hulin andlit en berar að ofan
og hafði önnur þeirra skrifað „Takk
fyrir Bomber Harris“ á líkama sinn.
Harris þessi var yfirmaður breska
sprengjuflugvélaflotans í seinni
heimsstyrjöld og bar meðal annars
ábyrgð á eldsprengjuárásinni á
Dresden sem drap 25.000 óbreytta
borgara. Þótti mörgum þetta því
afar ósmekklegt. Það kom brátt
í ljós að önnur konan var Anne
Helm, sem var í fimmta sæti á lista
flokksins í Evrópuþingskosningun
um. Flokksforustan ákvað að styðja
hana áfram, en helmingur hennar
sagði af sér í kjölfarið og margir
gengu úr flokknum.
Þegar hústökufólk og anarkistar
börðust við lögreglu í Hamborg
árið 2013 studdi flokkurinn hina
fyrrnefndu og þegar önnur kona,
sem var undir merkjum femen
en einnig á framboðslista Pírata í
Berlín, kastaði gervieldsprengju
á rússneska sendiráðið fannst
mörgum frjálshyggjumeð limum
sem flokkurinn væri staddur lengst
til vinstri frekar en fyrir utan
hefðbundið f lokkakerfi eins og
meiningin hafði verið. Í stað hefð
bundinnar forystu er ætlast til þess
að flokksmenn, sem eru um 35.000
talsins, komi saman og ákveði
stefnu f lokksins. Í framkvæmd
hefur þetta hinsvegar reynst erfitt
og er kerfið jafnvel talið hygla þeim
efnameiri sem hafa tíma og fjárráð
til að sækja fundina. Skorturinn á
beinum leiðtogum, sem er reyndar
meðal stefnumála, er jafnframt
talinn hafa leitt til mikilla innherja
átaka sem gjarnan rata í fjölmiðla.
Sjálfsmorð þingmanns og slæm útreið
í kosningum
Morðmál skekur
þýska Pírata
Gerwald Klaus-Brunner, einn helsti talsmaður Pírata í Þýskalandi, fannst látinn
í íbúð sinni. Við hlið hans var lík ungs manns sem hann er talinn hafa myrt.
Klaus- Brunner var áberandi í stjórnmálalífi Berlínar. Hann bar jafnan litríka
höfuðklúta og klæddist bláum eða appelsínugulum vinnusamfestingi.
Sjálfsmorð rétt fyrir kosningar
Hver svo sem meginástæðan er, þá
var niðurstaðan sú að flokkurinn
fékk aðeins 1.7 prósent fylgi í sveit
arstjórnarkosningunum í Berlín
þann 18. september síðastliðinn
og missti þar með alla þingmenn
sína. Þetta var þó ekki versta áfall
flokksins þá vikuna, því daginn eft
ir fannst Gerwald KlausBrunner,
einn helsti talsmaður f lokksins,
látinn og hafði það borið að með
voveiflegum hætti.
KlausBrunner hafði verið
áberandi í stjórnmálalífi borgar
innar, og var auðkenndur af litrík
um höfuð klútum, sem hann bar
ávallt, jafnt sem bláum eða app
elsínugulum vinnusamfestingi
sínum. Klaus Brunner, sem var 44
ára, hafði hagað sér undarlega um
nokkurt skeið, meðal annars hafði
hann talað um yfirvofandi andlát
sitt og mæltist til þess að Berlínar
þingið héldi mínútu þögn honum til
minningar. Maðurinn sem fannst
látinn með honum hét Jan Mirko L
og var 29 ára gamall. Hafði hann
unnið á skrifstofu KlausBrunners
um skeið og í kjölfarið kært hann
sem eltihrelli til lögreglunnar. Til
raunir til að fá KlausBrunner rek
inn úr flokknum voru þó felldar.
Ástarglæpur
KlausBrunner var opinskátt
tvíkynhneigður en þeir eru ekki
taldir hafa átt í ástarsambandi. Á
hinn bóginn hafði KlausBrunnar
tvítað skilaboðum þar sem hann
kallaði Mirko „sinn ástkæra krullu
haus“ og sagðist myndu elska hann
að eilífu. Er talið að Brunner hafi
drepið Mirko í íbúð hins fyrrnefnda
í norður Berlín með bitlausu vopni,
og síðan flutt líkið með hjólbörum í
sína eigin íbúð í suðurhluta borgar
innar. Þar drap hann síðan sjálfan
sig daginn fyrir kosningarnar. Rétt
fyrir andlát sitt sendi KlausBrunn
er öðrum flokksfélaga sínum pakka
með nokkrum persónulegum mun
um ásamt skilaboðum þar sem
hann lýsti morðinu á hendur sér.
Telur þýska lögreglan það þar með
upplýst. Hvort þýski pírataflokk
urinn muni jafna sig eftir áföll þessi
á tíminn eftir að leiða í ljós.
Klaus- Brunner, sem var
44 ára, hafði hagað sér
undarlega um nokkurt
skeið, meðal annars
hafði hann talað um
yfirvofandi andlát sitt
og mæltist til þess að
Berlínarþingið héldi
mínútu þögn honum til
minningar.
OrkupOkinn
Allt sem
þú þArft
HOll
Og góð
OrkA