Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 08.10.2016, Blaðsíða 32

Fréttatíminn - 08.10.2016, Blaðsíða 32
32 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 8. október 2016 Steinarnir tala að sinni biblíu og gáfu bókina út aftur,“ segir Helena og biðst afsökunar á tímaflakkinu: „Nú kem ég aftur til baka, má ég hoppa svona á milli?“ Hanastél og Kundera í felum Helena hefur þýtt fjölda íslenskra höfunda í gegnum árin. En hvað var erfiðast? „Auðvitað er Laxness erfiðastur. Það er svo margt á milli línanna og málið er svo skrítið. Það er svo mikill munur á málskilningi Tékka og Íslendinga. Ég tel Laxness vera besta Norðurlandahöfundinn á 20. öld. Það er svo margt skemmti- legt hjá honum sem er ekki hægt að skilja þegar maður er bara að lesa, en þegar þú þýðir þá færðu svo miklu meira. Til dæmis var setning þar sem orðið hanastél var í skrítnu samhengi og ég bara ...“ segir hún og fórnar höndum. „Þrátt fyrir að ég viti hvað cocktail er á ensku þá datt mér aldrei þetta í hug.“ Hún þekkti Halldór Laxness ágæt- lega. „Mér fannst alltaf pínulítið leiðinlegt hvernig Íslendingar töl- uðu um hann. Einu sinni fór ég heim með skipi, með Gullfossi, hann var samferða, sem ég vissi ekki. Hann fór að leita að mér á skipinu og fann mig og kom með bók handa mér sem mér fannst voðalega elskulegt. Við sátum þarna, svo kom fólk, Ís- lendingar, spásséraði í kring og all- ir heilsuðu Halldóri, en mér fannst hann samt einmana. Hann var eig- inlega þakklátur að við værum tvö saman – þetta var svo sterk tilfinn- ing.“ Sú þýðing Helenu sem fór víðast, þótt óbeint væri, var líklega þýðing hennar á Svaninum. „Guðbergur var góður vinur minn, en það var næstum ómögulegt að þýða hann. Ég reyndi einu sinni að þýða Tómas Jónsson – Metsölubók, en það var al- veg ómögulegt. En svo loksins þegar Svanurinn kom, þá þýddi ég hana – og hún kom á tékknesku fyrst. Þetta var á þeim tíma sem Kundera kom oft til Íslands. Hann vildi ekki tala við blaðamenn og kom því til Íslands til að fela sig. Þýðandi Kundera á Ís- landi gaf honum Svaninn á tékk- nesku og hann lét alltaf konuna sína lesa það sem hann nennti ekki að lesa sjálfur. Konan var mjög hrifin, Bréf frá Þórbergi Þórbergur Þórðarson ritaði Helenu nokkur bréf sem geymd eru á Landsbókasafni. Hér eru nokkur brot úr einu þeirra, skrifuðu 1962. Kæra Helena! Nú sezt ég niður að pára þér línur, eins og íslenzkt sveitafólk komst að orði í ungdæmi mínu. Margrét mun hafa hripað þér seðil einhverntíma í vetur. *** Lífið í landi voru gengur svipað- an gang og þegar þú fórst héðan og þó með sífellt nýjum tilbrigð- um, enda kemur díalektík Guðs almáttugs og díalektík Karls Marx saman um það, að lífið sé rennandi straumur, ýmist sem hjalandi lækur í brekkukorni, ýmist sem drynjandi Skeiðará í hlaupunum miklu. Guð verndi oss fyrir lífsfölsun statismans. *** Ánægjulegt er að heyra frétt- irnar frá Rússlandi. Þar hafa vísindamenn séð tvö skrímsli í tveimur fjallavötnum í Austur- -Asíu, og annað át hund. *** Rússneskum vísindamanni, Semyon Kirlian og konu hans Valentinu hefur tekist með hjálp hátíðnigeisla að ná myndum af hinum ósýnilega geislabaug, sem umlykur allar lifandi verur og alla „dauða“ hluti. Þarna opnaðist þeim furðulegt útsýni, sem þau segja, að enginn vís- indamaður hefði haft hugmynd um að væri til allt til þessa. Þau eru í nokkuri óvissu um, hvað þau eigi að kalla þetta undur, en kalla það til bráðabirgða „lif- andi rafmagn“. Fleiri vísinda- menn í Ráðstjórnarríkjunum hafa sannprófað þetta. Þarna er með öðrum orðum fundin „áran“, það er ósýnilegt geisla- útstreymi frá mönnum, dýrum, jurtum og einnig „dauðum“ hlut- um, sem dulskyggnir menn hafa sagt frá og lýst greinilega. Nú eiga þessir rússnesku vísinda- menn aðeins eftir eitt stutt skref til að geta ljósmyndað framliðið fólk. Sagði ég þetta ekki fyrir í Kompaníinu? Það er hægur vandi að segja fyrir óorðna hluti, ef manni er gefin sú gáfa, af heiminum fyrirlitin, að geta hugsað eins og nýfæddur kálfur. *** Laugardaginn 3. marz var hingað boðinn slatti af útlend- um háskólastúdentum: Japani, tveir Kínverjar, sænsk stúlka, færeyskur piltur og stúlka og finnsk stúlka (sú sem fór með þér á andatrúaróperuna til Hafsteins). Þar að auki voru þrír íslenzkir gestir: Tómas nokk- ur óperumaður og kona hans og Bidda systir. Allir sungu lög frá sínum löndum og óperu- maðurinn spilaði undir á gítar. Ég stjórnaði músikinni. Tólf þriggjapelaflöskur af Þorláks- dropum drukknar upp. *** Fjórtán flöskur drukknar í botn. Samt enginn fullur. Þýzka stúlkan sagði við mig, þegar hún kvaddi mig í stiganum: „Hafðu sona aftur næsta vetur.“ *** Nú er 5. maí. Enni Petro kom hér í gær og sat í sófanum þínum góða stund. *** Gráskinna er ekki ennþá komin út, en kemur væntanlega í haust. Flaskan bíður. Svo bið ég þennan miða að flytja þér kveðju mína. Þess hins sama biður Margrét. Bréfið má í heild sinni lesa í 4. hefti Tímarits máls og menningar frá árinu 2000. þannig að Kundera las Svaninn líka. Hann var líka hrifinn og útveg- aði þýðingu á frönsku, hjá Galimard, svo Svanurinn kom út á frönsku – og svo fleiri og fleiri málum. Þetta get- ur gerst svona, bara einn lesandi ...“ Vorið og Brekkukotsannáll Eftir Íslandsárin fór Helena að vinna sem kennari í norrænudeild Karls- háskóla, elsta háskóla Mið-Evrópu. Þetta var í aðdraganda vorsins í Prag, en svo rúlluðu skriðdrekarnir inn í borgina og allt breyttist. Þýðingarnar hjálpuðu henni að lifa af, segir hún. „Ég mátti ekki ferð- ast, ég mátti ekki neitt, bara kenna og svo þýða.“ En þá kom Laxness til bjargar á ný eins og hún greindi frá í grein í Ritmennt árið 2002: „Hinir nýju stjórnarherrar hertu tökin á öllum sviðum mannlífsins, og ástandið í háskólanum þar sem ég kenndi Norðurlandabókmennt- ir varð óbærilegt. Nýir yfirmenn, strangt eftirlit. Aldrei hafa vonbrigði þjóðarinnar orðið sárari og siðleysið meira í þjóðfélaginu. Nú var ekki til umræðu að fara til Íslands né neitt annað. Um þetta leyti hóf ég að þýða Brekkukotsannál. Efni bókarinnar var eins og smyrsl á opin sárin, og þýðingarstarfið stóð eins og bjarg upp úr gráum veruleikanum. Sam- búð mín við þessa skáldsögu var hjá- kátleg samkvæmt þeim kenningum sem þá voru í tísku hjá bókmennta- fræðingum í hinum svokallaða frjálsa heimi. Þeir héldu því fram að ekkert nema textinn sjálfur hefði gildi við faglegan lestur bókmennta- verka, en hérumbil allt sem ég las í skáldsögunni vakti hins vegar með mér hugmyndir, ótengdar bók- menntunum, og þær voru fullkom- lega persónulegar.“ Eftir flauelsbyltinguna 1989 fóru hlutirnir þó að glæðast. „Þá var gam- an, þá gat ég ferðast og ég fór til Ís- Helstu þýðingar Helenu af íslensku: Steinarnir tala, eftir Þórberg Þórðarson Brekkukotsannáll, Paradísarheimt og Kristnihald undir jökli, eftir Halldór Laxness Litbrigði jarðarinnar og Mýrin heima, þjóðarskútan og tunglið, eftir Ólaf Jóhann Sigurðsson Draumur til kaups, eftir Halldór Stefánsson Svanurinn, eftir Guðberg Bergsson Á meðan nóttin líður, eftir Fríðu Á. Sigurðardóttur Dagur vonar, eftir Birgi Sigurðsson Snorra-Edda Ynglingasaga Íslendingaþættir Völsungasaga og fleiri fornaldarsögur Sumarljós og svo kemur nóttin, eftir Jón Kalman Stefánsson Afleggjarinn eftir Auði Övu Ólafsdóttur Sandárbókin eftir Gyrði Elísson Mánasteinn eftir Sjón Hálendið er fyrsta bókin sem mætir blaðamanni – þýdd af fyrrum nemanda Helenu. Steinarnir tala eftir Þórberg voru kveikjan að þessari lofgjörð, Lof- gjörð um flakk. Nýjasta þýðing Helenu var þessi verðlaunabók Sjóns. Helena hittir hér Gyrði Elísson, en hún þýddi Sandárbókina árið 2013. lands á hverju ári og fékk styrki og var í lengri tíma þar og gat lesið.“ En hvernig finnst Helenu þróunin hafa orðið síðan? „Allir verða fyrir vonbrigðum. Nú sér maður gallana á því sem stjórnin gerði. Auðvitað er frelsi, en maður veit ekki hvað á að gera með frelsi, engin skilur það, hvað frelsi er. Það er tilfinningin sem margir hafa, ekki bara í Tékklandi, alls staðar í heiminum.“ Börn og sendinefndir Árið 1964 kom tékknesk sendinefnd til Íslands og Helena var með í för sem túlkur. Það voru ótal fréttir skrifaðar um þetta en þegar ég spyr Helenu út í þetta segist hún muna lítið eftir þessu. „Þarna komu saman íslenskir pólitíkusar, sem ég þekkti bara úr dagblöðum, ég fékk Þjóð- viljann öll árin, sem var eiginlega and-kommúnískt blað í mínum aug- um, hér í Tékklandi. Þeir skömmuðu hver annan í blöðunum en komu svo saman og voru vinsamlegir við hvor annan.“ Hún man hins vegar miklu betur eftir börnunum. „Af því ég gat ekki ferðast var ég næstum því á hverju sumri túlkur hjá hópum íslenskra skólabarna sem komu hingað í al- þjóðlegar æskubúðir. Það var mjög gaman. Íslensku krakkarnir voru allt öðruvísi en tékkneskir. Svo komu fararstjórar, að mestu leyti konur. Við urðum miklar vinkonur, Vilborg Dagbjartsdóttir, Solla Jónsdóttir, merkilegar konur ... en það var agi þarna, sem íslenskir krakkar þoldu illa. Svo voru fánar reistir og haldnar ræður, ríkisstjórnin stóð fyrir þessu. En í staðinn fyrir að þýða ræðurnar sagði ég bara skrítlur í staðinn.“ Vilborg Dagbjartsdóttir ljóðskáld bjó um skeið í Prag og þær Helena urðu góðar vinkonur. Í borginni bjó þá líka verðandi eiginmaður Vil- borgar, Þorgeir Þorgeirson, skáld og kvikmyndagerðarmaður, sem er einn af fáum sem hefur gefið sig að því að þýða úr tékknesku á íslensku. „Þau urðu ástfangin í Prag, í mínum skugga,“ segir Helena kímin. „Við Vilborg, tvær kellingarnar, vorum á National Cafe, Národní kavárna, spjölluðum saman á íslensku þar. Þá kemur maður á móti okkur, sem var Þorgeir, hann var við nám þá í kvik- myndafræði. Svo mæltu þau sér mót um kvöldið og þar byrjaði þetta.“ Hin fagra og forna Albanía. Albanía hefur nú loksins opnast fyrir erlendum ferðamönnum. Enn hefur alþjóðavæðingin ekki náð að festa þar rætur og er lítt sjáanleg. Þar má sjá ævaforna menningu, söguna á hverju horni, gríðarfallega náttúru og fagrar strendur og kynnast einstakri gestrisni heimamanna þar sem gömul gildi eru í hávegum höfð. Verð 344.900 per mann i 2ja manna herbergi Innifalið. Flug hótel í London, hótel m/hálfu fæði í Albaníu, allar skoðunarferðir, ísl. fararstjóri, skattar og aðgangur þar sem við á. Upplýsingar í síma 588 8900 Albanía 4. - 15. október Í borginni bjó þá líka verðandi eiginmaður Vil- borgar, Þorgeir Þorgeir- son, skáld og kvikmynda- gerðarmaður, sem er einn af fáum sem hefur gefið sig að því að þýða úr tékk- nesku á íslensku. „Þau urðu ástfangin í Prag, í mínum skugga.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.