Fréttatíminn - 08.10.2016, Blaðsíða 53
Einn grænn
og góður
Það er fátt betra en að byrja
daginn á hollum og góðum
smoothie.
Einfaldur og bragðgóður spínat-
smoothie sem tekur aðeins fimm
mínútur að útbúa. Uppskriftin er
fyrir einn.
Innihald:
1 boll græn steinlaus vínber
1 bolli spínat
½ bolli klakar
¼ bolli kókosmjólk
Setjið öll hráefnin í blandara og
blandið saman þangað til þetta
orðið silkimjúkt og freyðandi.
Hitaeiningar: 232
Varstu að borða þetta
fyrir svefninn?
Ýmislegt sem þú borðar getur haft neikvæð áhrif á nætursvefninn.
Það eru ansi margir sem eiga
við ýmis konar svefnvandamál
að stríða. Að eiga erfitt með að
sofna á kvöldin er líklega eitt það
algengasta. Margar ástæður geta
verið fyrir því að við liggjum and-
vaka, jafnvel tímunum saman, og
náum engan veginn að festa svefn.
Áhyggjur og stress hafa sín áhrif
en það sem við borðum á kvöldin
getur líka haft sitt að segja. Hér
eru nokkur matvæli sem þú ættir
ekki að leggja þér til munns að
minnsta kosti þremur tímum fyrir
svefn ef þú vilt draga úr líkum á
því að vera andvaka.
Dökkt súkkulaði
Það getur verið mjög freistandi
að fá sér nokkra bita af dökku
súkkulaði til að slá á mestu
sætindaþörfina á kvöldin, en
súkkulaðið inniheldur koff-
ín og hefur sömu áhrif á svefn-
inn og kaffibolli. Því dekkra sem
súkkulaðið er því meira koffín
inniheldur það.
Steik
Feitur og próteinríkur matur er
ekki sniðugur skömmu fyrir svefn-
inn. Hann er tormeltur og það er
ekki gott að fara í rúmið saddur og
uppþemdur. Það er ávísun á and-
vöku og byltur.
Áfengi
Margir fá sér einn drykk fyrir
svefninn til að ná sér niður eftir
daginn og slaka á fyrir svefninn.
Áfengi getur vissulega hjálpað
þér að sofna hraðar en á sama
tíma getur það haft neikvæð áhrif
á svefnmynstrið og dregið úr
djúpsvefni, sem líkaminn þarf til
að ná almennilegri hvíld.
Kryddaður matur
Að leggjast niður eftir að hafa
borðað kryddaðan mat getur fram-
kallað brjóstsviða og svefnlausar
nætur. Rannsóknir hafa sýnt fram
á að það að borða kryddaðan mat
fyrir svefninn dregur ekki bara úr
fjölda svefnstunda heldur hækkar
það líka líkamshitinn sem gerir
það verkum að gæði svefnsins
verða minni.
Koffínlaust kaffi
Margir halda að það sé óhætt að fá
sér einn koffínlausan kaffibolla á
kvöldin án þess að það hafi áhrif á
nætursvefninn. En raunin er sú að
kaffi sem sagt er koffínlaust inni-
heldur yfirleitt eitthvert koffín,
sem er oft nóg til að trufla svefn-
inn. Sérstaklega hjá þeim sem eru
viðkvæmir fyrir koffíni.
Brokkolí og blómkál
Það er fátt hollara en þetta tvennt
og um að gera að borða nóg af því.
En ekki á kvöldin samt. Grænmeti
sem inniheldur tormeltanlegar
trefjar, líkt og brokkolí og blómkál,
heldur nefnilega meltingarstarf-
seminni gangandi í ansi langan
tíma eftir að það er innbyrt. En
það viltu ekki þegar þú ert að
reyna að sofna.
…heilsa9 | amk… LAUGARDAGUR 8. OKTÓBER 2016
Hrönn Hjálmarsdóttir
Heilsumarkþjálfi
• Kúrkúmín – bólgueyðandi
og gott fyrir liði og vöðva.
• Engifer – hjálpar til við að
halda liðunum „smurðum“.
• Chondroitin – er í öllum
brjóskvef hjá mönnum og
dýrum.
• C-vítamín – stuðlar að eðlilegri
myndun kollagens sem er
mikilvægt fyrir heilbrigt brjósk.
• D-vítamín – fyrir heilbrigð
bein og bandvef.
• Kopar – varðveitir heilbrigðan
bandvef.
• Mangan – stuðlar að eðlilegri
myndun bandvefs og viðhaldi
heilbrigðra beina.
Free Flex inniheldur:
Sykurneysla
hefur sérlega
slæm áhrif á liðina
og eins getur lágt
hlutfall af Omega-3
fitusýrum haft mikil
áhrif þar á.
Free Flex – nýtt fyrir liðina
Free Flex frá Mezina er nýtt á íslenskum markaði og ekki óskylt Nutrilenk Gold liðbætiefninu
sem flestir kannast við. Free Flex inniheldur náttúrulegu efnin engifer, kúrkúmin og chondroitin.
Unnið í samstarfi við Artasan
Mjög margir þjást vegna eymsla og stirðleika í liðum og jafn-vel verkja.
Orsakavaldarnir eru
margvíslegir og er
t.d. algengt að fólk
sem hefur hreyft
sig mikið gegnum
tíðina finni fyrir
eymslum í liðum
vegna álags. Hjá
sumum er það matar-
æðið sem spilar inn í og
svo verðum við víst að sætta
okkur við það að með hækkandi
aldri, dregur úr liðleika og brjó-
skeyðing verður algengari.
Sykurneysla hefur sér-
lega slæm áhrif á liðina
og eins getur lágt
hlutfall af Omega-3
fitusýrum haft mik-
il áhrif þar á. Rétt
mataræði og góð
bætiefni eins og Free
Flex geta þá hjálpað
mikið.
Gegn verkjum og bólgum
Free Flex inniheldur mikið magn
af engifer og túrmerik en þessar
rætur hafa lengi verði notaðar
innan óhefðbundinna lækninga
og eru mikið notaðar í hinum
indversku Ayurveda-fræðum-
við verkjum og bólgum vegna
meiðsla, slits, tognunar og fleira.
Kúrkúmín, sem er virka efnið í
túrmerik, hefur einstök andoxun-
aráhrif, verndar liðina, minnkar
magn histamíns og eykur
náttúrulega framleiðslu
kortisóns sem hefur
bólgueyðandi áhrif.
Engifer er blóð-
þynnandi, mjög
gott fyrir blóðflæð-
ið og einnig er það
bjúglosandi og getur
dregið úr bólgum.
Saman hafa þessi efni
mjög góð áhrif á liðina.
Byggingarefni
Chondroitin er eitt aðal bygging-
arefni brjósks, sina og
beina. Liðverkir orsak-
ast oftast af rýrnun
í brjóskvefnum og
eru einkennin m.a.
brak í liðamót-
um þegar risið er
upp, stirðleiki eða
sársauki þegar
gengið er niður í
móti. Í Free Flex er
þetta efni að finna sem,
ásamt öðrum völdum efn-
um, hjálpar til við að halda liðun-
um okkar heilbrigðum.
Free Flex
inniheldur
mikið magn
af engifer og
túrmerik.
Chondroitin
er eitt aðal
byggingarefni
brjósks, sina
og beina.
Sölustaðir: Apótekarinn,
Lyf og heilsa, Garðs
Apótek, Apótek
Hafnarfjarðar,
Urðarapótek, Lyfsalinn
Glæsibæ, Farmasía,
Apótek Ólafsvíkur,
Apótek MOS, Apótek
Vesturlands, Iceland
Engihjalla, Fræið
Fjarðarkaup og allar
Hagkaupsverslanirnar.