Fréttatíminn - 08.10.2016, Blaðsíða 4
Neytendur Félag íslenskra
bifreiðaeigenda bíður eftir
aðgerðum systursamtaka
sinna í Evrópu. Volkswagen
viðurkenndi bótaskylda
vegna útblásturssvindls með
bótagreiðslum til Bandaríkj-
anna. Hekla hefur ekki krafist
bóta af Volkswagen.
Íslenskir bifreiðaeigendur gætu
reynt að sækja bætur til þýska bif-
reiðarisans Volkswagen vegna galla
í Volkswagen-bifreiðum sem seldar
hafa verið hér á landi í gegnum bíla-
umboðið Heklu. Þetta segir Run-
ólfur Ólafsson, formaður Félags ís-
lenskra bifreiðaeigenda. Runólfur
var spurður um hver staða íslenska
neytenda væri gagnvart þýska bíla-
fyrirtækinu í ljósi frétta í síðustu viku
um 1800 milljarða skaðabætur sem
Volkswagen hefur greitt til banda-
rískra umboðsaðila sinna vegna
þess að framleiðandinn svindlaði á
útblásturpófum á vissum gerðum
Volkswagen-bíla. Um var að ræða
bætur vegna rúmlega 500 þúsund
bíla sem voru gallaðir.
Runólfur segir hins vegar að fé-
lagið sem hann stýrir muni bíða og
sjá hvað systurfélög þess á Norð-
urlöndunum og í Þýskalandi gera í
kjölfar frétta um skaðabæturnar í
Bandaríkjunum. Félag íslenskra bif-
reiðaeigenda mun svo kannski einnig
krefjast bóta ef aðrir gera það.
Friðbert Friðbertsson, fram-
kvæmdastjóri bílaumboðsins Heklu,
sem flytur inn Volkswagen, segir
að fyrirtækið hafi ekki átt í neinum
samskiptum við Volkswagen um
greiðslu skaðabóta. „Það hefur ekki
neitt svoleiðis kom upp hjá okkur.“
Hann segist ekki vera með á hreinu
hversu marga bíla Hekla seldi sem
eru gallaðir vegna útblásturssvindls
Volkswagen.
Volkswagen hefur því viðurkennt
bótaskyldu sína vegna svindlsins,
bótaskyldu sem ætti þá væntanlega
að ná til allra eigenda hinna göll-
uðu Volkswagen-bíla. Runólfur seg-
ir að Félag íslenskra bifreiðaeigenda
myndi þá reyna að sækja bæturnar
til Heklu sem aftur myndi þá þurfa að
sækja rétt sinn gagnvart Volkswagen.
Boltinn er því hjá Félagi íslenskra bif-
reiðaeigenda að sinni. | ifv
Íslenskir bílaeigendur gætu krafist
bóta vegna Volkswagen-svindlsins
Friðbert Friðbertsson segir að Hekla
hafi ekki rætt við Volkswagen um
bótagreiðslur. Hann sést hér gefa
Volkswagen-bjöllu í páskaleik Smára-
lindar.
„Það er einmanalegt að standa uppi
í pontu og horfa yfir 63 tóma stóla.“
Páll var með fyrstu ræðu um
samgönguáætlun eftir hádegi á
föstudag og enginn þingmaður var
mættur í salinn. „Þetta er alltaf að
gerast,“ segir Páll.sem benti að for-
seti þingsins og starfsmenn hefðu
þó að minnsta kosti verið til staðar.
Formenn og þingflokksformenn
reyna að ná samkomulagi um þing-
lok til að kosningabaráttan geti haf-
ist af krafti en hafa ekki haft erindi
sem erfiði. Stjórnarandstaðan segir
að stjórnarflokkarnir geti ekki náð
saman um hvaða mál skuli setja í
forgang, „Það má segja að það sé
allt uppi í loft og enginn með hug-
ann við þingið,“ segir Páll. | þká
Palli var
einn í
þingheimi
Stjórnmál „Þetta var ósköp
notalegt, en dálítið skrítið,“
segir Páll Valur Björnsson,
þingmaður Bjartrar framtíð-
ar, sem skeggræddi um sam-
gönguáætlun fyrir tómum
þingsal í gær. Páll Valur Björnsson talaði
við tóman þingsal í gær.
Mynd | Ásgeir Ásgeirsson — Press photo
Stjórnmál Formaður Við-
reisnar seldi hlutafé fyrir
130 milljónir í félagi sem
hann var stjórnarformaður,
aðeins viku áður en tilkynnt
var um umtalsverða hluta-
fjáraukningu.
Valur Grettisson
valur@frettatiminn.is
Formaður Viðreisnar sætti rann-
sókn Fjármálaeftirlitsins vegna sölu
á hlutum sínum í Nýherja á síðasta
ári fyrir á annað hundrað milljónir
króna. Rannsókn lauk í febrúar á
þessu ári en í skriflegu svari Fjár-
málaeftirlitsins segir að málið hafi
verið látið niður falla þar sem svör
reguvarðar hafi þótt fullnægjandi.
Það var Óttar Guðjónsson, hag-
fræðingur og framkvæmdastjóri
Lánasjóðs sveitarfélaga, sem vakti
athygli á málinu í aðsendri grein í
Morgunblaðinu á fimmtudag. Fyr-
irsögn greinarinnar var: „Ærandi
þögn um innherjaviðskipti for-
manns Viðreisnar“.
Benedikt Jóhannesson, eiginkona
hans og Talnakönnun ehf., félag í
eigu Benedikts, seldu bréf í Nýherja
í lok nóvember á síðasta ári.
Hlutirnir voru seldir á genginu
14,7 krónur á hlut. Sjálfur seldi
Benedikt fyrir 105,8 milljónir og
Vigdís fyrir rúmar 16 milljónir.
Benedikt var þarna stjórnarformað-
ur Nýherja.
Rúmri viku síðar, eða þann 3.
desember, ákvað stjórn Nýherja að
bjóða út allt að 40 milljónir hluta
í félaginu í lokuðu hlutafjárútboði
til fagfjárfesta. Í umfjöllun DV um
málið á sínum tíma kom fram að
við ákvörðunina varð ljóst að bréf
eigenda Nýherja myndu þynnast
út um 9,76%, en þeir höfðu fallið
frá forgangsrétti að nýju hlutunum
með því að samþykkja heimild fyr-
ir hlutafjárútboðinu á aðalfundi fé-
lagsins 14. mars 2014.
„Þá vaknar spurningin hvort
hlutafjáraukninguna hafi borið að
með svo skyndilegum hætti að for-
maður stjórnar væri fullkomlega
grunlaus um að slíkt stæði til þegar
hann og aðilar honum tengdir seldu
hlutabréf sín,“ sagði Óttar í grein
sinni í Morgunblaðinu og ýjar þarna
að því að Benedikt hafi gerst sekur
um innherjaviðskipti.
Benedikt svarar Óttari fullum
hálsi á Facebook-síðu sinni en þar
upplýsir hann að hann hafi borið
söluna undir regluvörð. Hann bend-
ir ennfremur á að gengið sem hann
seldi á hefði verið 14,7 á hlut, en svo
fór að hlutaféð seldist á genginu
16.0. Því hafi hann í raun tapað á
sölunni.
Benedikt upplýsir einnig á Face-
book að Fjármálaeftirlitið hafi ósk-
að eftir upplýsingum um söluna
hjá regluverði, og það staðfesta
upplýsingar sem FME gefur Frétta-
tímanum. Í svari eftirlitsins segir að
athugun þess hafi lokið í febrúar á
þessu ári og að það taldi skýringar
regluvarðarins á viðskiptunum full-
nægjandi. Benedikt hafði ekki svar-
að fyrirspurn Fréttatímans þegar
þetta var skrifað en hann neitar al-
farið á Facebook, og í viðtali við DV
í desember á síðasta ári, að hann
hafi gert neitt rangt.
Formaður Viðreisnar
sætti rannsókn vegna
innherjaviðskipta
Benedikt Jóhannesson sætti rannsókn vegna innherjasvika. Sú rannsóknar var
látin niður falla í febrúar.
Gullna
kynslóðin
fær mest
Miðað við tillögur ríkisstjórnarinn-
ar um að hækka lágmarksbætur al-
mannatrygginga upp í 300 þúsund
krónur á mánuði munu aldurshóp-
arnir sem fæddir eru 1948 til 1960
koma best út úr þessum breyting-
um. Kynslóðirnar á undan hafa
fengið lægri lífeyrisgreiðslur en
kynslóðirnar á eftir munu í raun
greiða fyrir hækkun lífeyris með
skemmri lífeyristíma, en ráðgert er
hækka lífeyristökualdurinn úr 67 í
70 ár á næstu tólf árum.
Fólk sem er fætt 1961 og síðan
mun fá hærri bætur en um skemmri
tíma. Miðað við 82 ára meðalaldur
munu þau sem fædd eru 1949 fá um
fjórðungi hærri ellilífeyri um sína
daga en þau sem fædd eru í upp-
hafi sjöunda áratugarins. Það má
því segja að kynslóðin frá 1948 til
1960 sé gullkynslóð Íslands, kyn-
slóðin sem fær það besta út úr báð-
um kerfum; hærri bætur og langan
lífeyristíma. | gse
Finnar
deila við
dómarann
Fótbolti Norski knattspyrnu-
dómarinn Svein Oddvar
Moen hefur verið harkalega
dæmdur í fjölmiðlum víða um
Evrópu eftir landsleik Íslands
og Finnlands á miðvikudag.
Fullyrt er í finnskum fjölmiðlum
að Ísland hafi unnið leikinn vegna
dómaraskandals og landsliðsþjálf-
arinn, Hans Backe, sagði í samtali
við finnska sjónvarpið að tapið væri
það sárasta á sínum ferli. Í finnska
sjónvarpinu var einnig sagt frá reiði
finnsku þjóðarinnar út í dómarann
sem birtist í kjölfarið á samfélags-
miðlum.
Hart er deilt um hvort Ísland hafi
komið boltanum inn fyrir marklínu
á fimmtu mínútu í uppbótartíma
leiksins. Svein Oddvar Moen dæmdi
markið gilt og samkvæmt reglum
Knattspyrnusambands Evrópu má
hann ekki tjá sig um ákvörðunina.
Landsliðsþjálfari Finna var brjál-
aður eftir leikinn. „Þetta er umspil
um þátttöku á HM, ekki einhverjir
andskotans Abu Dhabi-leikar,“ sagði
Backe við sænska Aftonbladet. | þt
Norskir fjölmiðlar koma Svein Oddvar
Moen til bjargar og birta ljósmynd þar
sem boltinn virðist hafa farið inn fyrir
markalínu Finna. Mynd | Getty Images
4 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 8. október 2016
Eliza Reid, Ewan Reid og Allison Reid
BLEIKASLAUFAN.IS
Kaupum Bleiku slaufuna #fyrirmömmu
ÞÆR HAFA ALLTAF VERIÐ
TIL STAÐAR FYRIR OKKUR
Ríkisstjórnin vill hækka lífeyri strax
en stytta lífeyristímann seinna. Það
gagnast ekki Sigurði Inga, forsætisráð-
herra, sem er fæddur 1962.