Fréttatíminn - 08.10.2016, Blaðsíða 8
8 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 8. október 2016
BIOPHILIA: FULLKOMIÐ VERKFÆRI
FYRIR BREYTTAN SKÓLA
Breytt samfélag með nýrri tækni kallar á nýja nálgun í menntamálum. Finnar, sem eru með eitt besta menntakerfi
heims, hafa til að mynda nýlega endurskoðað aðalnámskrá sína með það að markmiði að búa nemendur betur undir
breyttan heim. Þeir þurfa til að mynda að geta tileinkað sér upplýsingar og nýtt þær á skapandi hátt og skólakerfið þarf
að stuðla að því. Að loknu þriggja ára tilraunaverkefninu Biophilia, sem öll Norðurlöndin tóku þátt í, segja Finnar að
Biophilia sé fullkomið verkfæri til þess að innleiða nýja námskrá en Biophilia, sköpunarverk Bjarkar Guðmundsdóttur,
snýst um að kenna börnum tónlist og raungreinar á skapandi hátt með hjálp tækni.
Sigríður Dögg Auðunsdóttir
sigridur@frettatiminn.is
Þriggja ára risastóru samnorrænu
tilraunaverkefni um kennslufræði
Bjarkar Guðmundsdóttur, tón-
listarmanns, náttúuunnanda og
frumkvöðuls, Biophilia, er lokið.
Alls tóku 77 skólar á öllum Norður-
löndunum og sjálfstjórnarsvæðum
þeirra, Grænlandi, Færeyjum og
Álandseyjum, þátt og var afrakstur
vinnu þátttakenda gerður upp á
stórum fundi hér í Reykjavík fyrr
í vikunni.
Biophilia menntaverkefnið snýst
um að kenna börnum um tónlist,
náttúrufræði og vísindi á framúr-
stefnulegan hátt með aðstoð tækni
og að veita þeim innblástur við að
vera skapandi í námi sínu í gegnum
hina ólíku miðla. Þá var markmiðið
að stuðla að þverfaglegri samvinnu
kennara og brjóta upp hefðbundn-
ar kennsluaðferðir og var því lagt
upp með í verkefninu að tónlist-
arkennari og raungreinakennari
kenndu Biophiliu í sameiningu
sem eitt teymi. Einnig var verk-
efnið, sem var á forræði mennta- og
menningarmálaráðuneytisins og
norrænu ráðherranefndarinnar,
tilraun til þess að koma á norrænu
samstarfi á sviði menntamála.
Árangur fram úr vonum
Allir þeir þátttakendur sem Frétta-
tíminn ræddi við voru sammála um
að árangur verkefnisins hafi farið
fram úr björtustu vonum, bæði
hvað varðar áhuga nemenda og
kennara sem og afrakstur vinnunn-
ar, jafnt tónlistarlega sem raunvís-
indalega séð. Auk þess hafi það nán-
ast þvingað kennara til að hugsa út
fyrir rammann og endurskilgreina
hvað kennsla felur í sér, hvernig
kennslufyrirkomulagi geti verið
háttað og hvernig hægt sé að tvinna
saman ólíkar námsgreinar á áhuga-
verðan og árangursríkan hátt.
Biophilia Bjarkar kom út árið
2011 og er margslungið marg-
miðlunarverk. Það samanstend-
ur meðal annars af hefðbundinni
breiðskífu, öppum með gagnvirku
kennsluefni tengdum lögunum,
sérsmíðuðum hljóðfærum og sér-
stökum vef (biophiliaeducational.
org). Menntaverkefnið vann Björk
í samstarfi við Háskóla Íslands og
Reykjavíkurborg. Umfjöllunarefni
laganna er náttúran og vísindi,
allt frá vírusum yfir í himingeim-
inn, en tónsmíðarnar sjálfar hafa
það að markmiði að kenna börnum
um tónlist, tónsmíðar, tónfræði og
hljóð. Björk hefur sjálf útskýrt hugs-
unina á bak við sköpunina þannig
að hún sjái oft samhljóm í náttúr-
unni og tónlistinni enda byggjast
lögin oft á tengslum milli tónlistar-
legra og náttúrulegra hugmynda.
Auður Rán Þorgeirsdóttir og Arn-
fríður Sólrún Valdimarsdóttir eru
verkefnisstjórar Biophilia verkefn-
isins. „Niðurstöðurnar sýndu heilt
yfir að kennsluverkefnið hefur já-
kvæð áhrif á kennsluaðferðirnar,“
segir Auður. „Stór hluti af verkefn-
inu er að vinna þvert á námsgrein-
ar og með kennurum í ólíkum fög-
um og það tókst vel,“ segir hún.
„Kennarar voru að vinna saman
þvert á námsgreinar sem hópur í
fyrsta sinn og það var stórkostlegt
að sjá hverju samvinnan skilaði,“
Biophilia Bjarkar er
einstakt verkfæri
fyrir kennara til að
undirbúa nemendur
fyrir veruleika fram-
tíðarinnar. Áhersla
á sköpun, frum-
kvæði, sjálfstæði og
samvinnu verður
sífellt mikilvægari,
að sögn sérfræðinga
í menntamálum,
og hafa Finnar til
að mynda nýverið
breytt aðalnámskrá
sinni til að auka
vægi þessara þátta.
Biophilia æfir nem-
endur einmitt í þeim.
Auður Rán Þorgeirsdóttir og Arnfríður Sólrún Valdimarsdóttir verkefnisstjórar
segja að sjálfstraust nemenda hafi styrkst við að gera hluti sem þeir héldu að þeir
gætu ekki gert, svo sem að semja tónlist.“ Myndir | Hari
Munndreifitöflur
250 mg
Pinex®
Smelt
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
A
ct
av
is
5
1
1
0
7
2