Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 08.10.2016, Blaðsíða 26

Fréttatíminn - 08.10.2016, Blaðsíða 26
Miklagarðs- bindið „Þetta karrýg- ula bindi vekur upp skemmti- legar minn- ingar frá einu furðulegasta skeiði ævi minnar. Þetta er sjónvarpsbindi sem ég var með í þættinum „Góður dagur“ sem við Edda Hermannsdóttir, vinkona mín, stýrðum á sjón- varpsstöðinni Miklagarði. Ég á fleiri svona taubindi sem lafa enn í tísku en mér finnst frekar leiðinlegt að hnýta bindishnútinn á þau. Við gerðum bara átta þætti af „Góðum degi“ en eftir tvo mánuði lognaðist sjónvarpsstöðin út af. Við Edda nutum hins vegar samstarfsins og hefðum alveg verið til í að þróa þáttinn áfram því að baki var mjög fært fagfólk í fjölmiðlun. Eftir stendur góð vinátta sem rígheldur og við hittumst af og til þessi hópur og rifjum upp þetta ævintýri okkur til skemmtunar.“ Ævisaga í fimm bindum Veiddi eiginmanninn með bindi Guðfinnur Sigurvinsson hefur elskað að lífga upp á lífið með litríkum bindum frá því hann mætti með lakkrísbindi fyrsta daginn sinn í menntaskóla. Halla Harðardóttir halla@frettatiminn.is Sumar- bindið „Mér finnst gam- an að klæð- ast björt- um litum, sér- staklega á sumrin, og þetta bindi finnst mér lífga mikið upp á mig og umhverfið þar sem ég er. Ég var með þetta bindi í afmælisveislu Guðfinns afa míns sem varð 80 ára í sumar og það er til fín ljósmynd af mér með það þar sem ég held ræðu honum til heiðurs. Afi minn er frábær kall, mikill vinur minn, ráðgjafi og fyrirmynd. Hann var alltaf mikið með bindi enda vann hann skrifstofuvinnu og var um tíma bæjarstjóri í Keflavík. Kannski að þaðan komi áhugi minn á að vera með bindi? Ég mætti í það minnsta í Menntaskólann á Akur- eyri haustið 1994, þá 16 ára gamall, með lakkrísbindi og gömlu skjalatöskuna hans afa. Það segir sína sögu.“ Bindið sem veiddi eiginmanninn „Þetta bindi keypti ég á vordögum 2006 og í stíl var neóngræn skyrta. Á þessum tíma var ég fréttamaður á Sjónvarp- inu og í fyrsta sinn sem ég vildi skrýðast þessu á skjánum fékk ég það verkefni að tala við Björn Inga Hrafnsson, þáver- andi oddvita framsóknar- manna í Reykjavík, sem var í kosningaslag og reyndist alveg eins klæddur í viðtalinu þegar á staðinn var komið. Eftir þetta sáust þessi föt lítið á mér á skjánum enda þekkt sem framsóknargallinn á fréttastofunni. Þau reynd- ust hins vegar happadrjúg beita að kvöldi 8. júlí sama ár þegar ég fór með þetta bindi á ball á skemmtistaðnum Nasa við Austurvöll. Það kvöld hitti ég fyrst ungan glæsipilt úr Skagafirði, Símon Ormarsson að nafni, sem rann á græna litinn eins og 18 punda lax á svartan Toby. Við giftum okk- ur sumarið 2011 og hjónabandið heldur enn farsællega.“ Útskriftarbindið „Ég útskrifaðist með þetta bindi þegar ég lauk B.A. prófi í stjórnmálafræði sumarið 2013. Ég var blankur á þessum tíma enda launin hjá RÚV ekki beint feitasti bitinn í bænum. Ég keypti mér því nýtt bindi og skyrtu við eldri jakkaföt sem frískaði mik- ið upp á þau. Bindi og skór geta lyft eldri fötum mikið upp, það þarf ekki alltaf að kaupa allt nýtt frá grunni til að maður sé ferskur. Ég útskrifast næsta sumar með meistaragráðu í opinberri stjórnsýslu og kannski ég noti þetta bindi bara aftur en nú við ný föt? Svo geymi ég það sem út- skriftarbindið, ef mig skyldi langa í dokt- orsnám.“ Glæsimanna- bindið „Þetta er nýjasta bindið mitt og þar af leiðandi það sem ég hef mest dálæti á. Ég keypti það nú í sumar í München í Þýskalandi, að sjálfsögðu í Boss. Ég sá það í búðinni og heillaðist samstundis, það þurfti ekki að hugsa þetta lengi. Ég er hrifinn af þessum 60 ś áhrifum sem sjást víða núna enda hef ég mikinn áhuga á þeim tíma, sérstaklega í banda- rísku þjóðlífi þar sem saman fóru glæsimennska og ægilegir umbrotatímar. Andstæðurnar voru svo hrópandi og heimurinn að breytast á leifturhraða. Þetta er til dæmis bindi sem Frank Sinatra, JFK eða Bobby Kennedy, Martin Luther King jr., eða jafnvel ungur Elvis Presley, hefðu getað notað. Kannski eru þessi áhrif að koma inn núna því um margt stönd- um við á sams konar umbrotatímum, þótt mér finn- ist vera dýpra á glæsimennskunni nú.“ 26 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 8. október 2016 Strikinu 3 • Iðnbúð 2 • Garðabæ • 565 8070 • facebook.com/okkarbakari FLOTTU AFMÆLISTERTURNAR FÁST HJÁ OKKUR Skoðið úrvalið á okkarbakari.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.