Fréttatíminn - 08.10.2016, Blaðsíða 56
Kjósum heilbrigðara samfélag
Kjósum Samfylkinguna
Allt of margar
ölskyldur eru fastar á ótryggum leigumarkaði og ungt
fólk á í vanda við að koma sér upp þaki yfir höfuðið. Við ætlum að veita
þeim sem ekki eiga íbúð og ættu rétt á vaxtabótum forskot á
fasteignamarkaði, sem nemur allt að þremur milljónum króna.
3 milljónir kr. fyrir fólk í sambúð
2,5 milljónir kr. fyrir einstætt foreldri
2 milljónir kr. fyrir einstaklinga
4.000 almennar leiguíbúðir
1.000 námsmannaíbúðir
Þriggja milljóna
króna forskot á
fasteignamarkaði
Jöfnum leikinn. Nýtum fyrirframgreiddar
vaxtabætur til að fjármagna útborgun við
húsnæðiskaup, fyrir þá sem ekki eiga.
alla föstudaga
og laugardaga
Kíktu í bíó
Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni RIFF lýkur um helgina og því síðustu forvöð að
sjá úrval mynda sem eru í boði.
Beint úr lyfjameðferð í ræktina
Shannen Doherty segir það hjálpa til í bataferlinu að halda daglegri
rútínu og hreyfa sig ef hún getur.
Hannar eigin
íþróttafatnað
Snapchat-stjarnan, lífsstíls-
bloggarinn og einkaþjálfarinn Lína
Birgitta Sigurðardóttir er um
þessar mundir að hanna sína eigin
línu af íþróttafatnaði sem
væntanleg er í búðir í janúar á
næsta ári. Lína gat ekki setið á
sér og opinberaði tíðindin á
snapchat í vikunni. Þá sýndi hún
fallegan íþróttatopp úr línunni til
að gefa smá hugmynd af því
hvers má vænta. Hún ætlar að
leggja áherslu á þægilegan og
fallegan fatnað svo konum líði vel
í ræktinni. Þá notaði hún tækifær-
ið til að hvetja fólk að elta drauma
sína og sagði að aldrei ætti að
hlusta á neikvæðnisraddir í
öðrum.
Leikkonan Shannen Doherty, sem
margir muna eftir úr þáttunum
Beverly Hills 90210, lætur ekki lyf-
jameðferð við krabbameini stoppa
sig í að lifa sínu daglega lífi. Hún
birti myndir og myndband af sér á
instagram þar sem hún útskýrði af
hverju hún fór beint í ræktina daginn
eftir að hún lauk síðustu lyfjameð-
ferð. Doherty sagði að það hjálpaði
sér svo mikið í bataferlinu að halda
daglegri rútínu. Þá sagði hún hreyf-
inguna hjálpa til við að losa líkamann
við eiturefnin úr lyfjameðferðinni.
Hún viðurkenndi þó að suma daga
væri þetta mjög erfitt og að hún gæti
varla hreyft sig, en aðra daga væri
orkan meiri. Þá væri gott að hreyfa á
sér rassinn. Hún mælti líka með því
að fólk í svipaðri stöðu og hún ráð-
færði sig við lækni áður en það færi
að hreyfa sig, líkt og hún gerði.
Doher t y g re i nd is t með
brjóstakrabbamein á síðasta ári og
fór í brjóstnám en síðar kom í ljós að
meinið hafði náð að dreifa sér og því
þurfti hún að gangast undir krabba-
meinsmeðferð.
Stundum erfitt Doherty gengst nú undir krabbameinsmeðferð eftir að hún greindist með brjóstakrabbamein á síðasta ári.
Kósýkvöld Birgittu
Haukdal
Söngkonan geðþekka Birgitta
Haukdal er komin í hóp afkasta-
meiri rithöfunda landsins. Birgitta
sendir fá sér tvær nýjar bækur nú
fyrir jólin, rétt eins og hún gerði í
fyrra. Það gerir fjórar bækur á
tveimur árum og geri aðrir betur
– sér í lagi meðfram barnauppeldi
en Birgitta eignaðist sitt annað
barn á síðasta ári. Rétt eins og
fyrir ári sendir Birgitta frá sér
barnabækur og aftur er sögu-
persónan hin unga og geðþekka
Lára. Fyrri bækurnar tvær, Lára
fer í flugvél og Lára lærir að hjóla,
fengu afar góðar viðtökur og
búast má við viðlíka viðbrögðum
þegar bækurnar Lára fer á skíði
og Kósýkvöld með Láru renna úr
prentsmiðjunni á næstu vikum.