Fréttatíminn - 08.10.2016, Qupperneq 6
Saga Daníels dæmigerð
Guðrún Harpa Heimisdóttir,
formaður Hugarfars, segir sögu
Daníels lýsandi fyrir aðstæður
fólks með ákominn heilaskaða
á Íslandi. „Það
hefur lengi
ríkt algjört
úrræða-
leysi fyrir
þetta fólk
og engin
langtíma
endurhæf-
ing er í boði.
Hugarfar og
fjölmargir fagaðilar berjast því
fyrir að koma á fót endurhæf-
ingar- og fræðslumiðstöð fyrir
fólk með ákominn heilaskaða.
Grensás og Reykjalundur eru
sammála um að úrræðið verði
að opna. Baráttan fyrir með-
ferðarúrræði hefur staðið yfir
í rúm tuttugu ár. Í fyrra komu
1400 manns á bráðamóttöku
Landspítalans vegna höfuð-
höggs. Samkvæmt upplýsing-
um sérfræðinga má áætla að
um 500-600 manns af þeim
hafi hlotið heilaáverka eða
skaða en lítill hluti af þeim fer
í endurhæfingarmeðferð. „Það
er fullt af fólki sem hefur fengið
höfuðáverka, kannski í slysi en
einnig eru mörg ofbeldismál,
sem greinist ekki. Við höfum
ekki greiningartæki sem eru
nægilega næm til að greina þá í
bráðafasanum. Svo kemur það
ekki í greiningu fyrr en of seint.
Það þarf ekki mikið höfuðhögg
til að vera mjög hættulegt,“ seg-
ir Stefán Ingvason, yfirlæknir á
Grensási. | þt
6 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 8. október 2016
Daníel Þór Sigurðsson
slasaðist alvarlega þegar
bíll keyrði yfir höfuð hans,
þegar hann var fimm ára
gamall. Hann var hinsvegar
orðinn fullorðinn þegar
hann komst að því að slysið
olli heilaskaða sem hefur
litað allt hans líf síðan. Ef
heilaskaðinn hefði uppgötv-
ast fyrr hefði hann fengið
allt aðra meðhöndlun.
Þóra Tómasdóttir
thora@frettatiminn.is
„Ég virðist vera heilbrigður, eins
og ekkert sé að mér. Það er svolítið
skrítið að átta sig allt í einu á því að
maður sé fatlaður og búinn að vera
það öll þessi ár,“ segir Daníel. „Það
getur verið mjög snúið að lifa með
fötlun sem háir manni svona mikið
en er algjörlega ósýnileg utan frá.
Hvað þá þegar maður veit ekki af
henni sjálfur.“
Daníel Þór Sigurðsson var fimm
ára gamall þegar bíll ók á hann fyr-
ir utan heimili hans við Bröttukinn í
Hafnarfirði árið 1996. Bíllinn keyrði
yfir höfuðkúpu hans svo hún brotn-
aði. Daníel missti meðvitund og
var haldið sofandi í öndunarvél á
gjörgæslu í einhverja daga á eftir.
„Ég man þegar ég rankaði við mér
skyndilega inn á spítala. Ég var með
slöngu ofan í hálsinum og reyndi
að toga hana út úr mér. Mér fannst
ég ekki þekkja þá sem voru þarna
hjá mér, mömmu og pabba og fjöl-
skylduna mína. Ég man þegar ver-
ið var að plokka saumana úr hár-
sverðinum á mér. Svo var ég bara
sendur heim, allt önnur manneskja
en sú sem varð fyrir bílnum.“
Daníel segir foreldra sína ekki
hafa verið upplýsta um afleiðingar
af heilaskaðanum. „Eftir þetta var
okkur kastað á milli í kerfinu árum
saman. Ég var settur á lyf og fékk
óþarfar greiningar eins og athyglis-
brest. Þrátt fyrir að læknarnir eigi
að vita betur þá var mér hent út í
óvissuna. Óupplýstum um stöðuna
og úrræðalaus. Sá heilaskaddaði
hefur jafnvel ekki vitneskju um að
hann sé með fötlun sem líklegast á
eftir að fylgja honum til æviloka.“
Endurhæfing í lamasessi
Þó Daníel hafi leitað sér hjálpar hjá
Hugarfari, félags fólks með ákom-
inn heilaskaða,
telur hann að
endurhæfing
heilaskaddaðra
sé í lamasessi.
Málið sé alþekkt
í heilbrigðiskerf-
inu og hafi verið
vanrækt í árar-
aðir. Algengt sé
að þeir sem ný-
lega hafa greinst
með heilaskaða
séu sendir í sjúkraþjálfun en lítið
sé rýnt í andleg áhrif skaðans. „En
svoleiðis er staðan enn í dag, öll
áhersla er á líkamlegt ástand en
það er ekkert pælt í vitrænum, hug-
rænum, geðrænum og félagslegum
áhrifum heilaskaðans.“
Áhrif framheilaskaðans á líf
Daníels eru margþætt. Hann geri
það að verkum að hversdagslegir
hlutir flækist fyrir honum og hann
mæti hindrunum við minnstu litlu
athafnir. „Fólk með framheilaskaða
er oft með skert innsæi í eigin
vandamál og það getur tekið langan
tíma að átta sig á þeim, jafnvel þó
maður sé meðvitaður um að mað-
ur sé með heilaskaða. Þess vegna
get ég lent í því að haga mér eins
og hálfviti þegar ég held að ég sé að
haga mér eðlilega. Mér finnst samt
innsæi mitt vera að smám saman að
aukast með tímanum.“
Hann segir heilaskaðann einnig
valda vanvirkni, alvarlegu þung-
lyndi og hann hafi oft glímt við
sjálfsvígshugsanir. Hegðunarvanda-
málin sem fylgi séu einnig erfið og
kvíðinn lamandi.
Brjálæðisköstin verst
„Alverst eru brjálæðis- og bræðis-
köstin. Þau einu sem vita nákvæm-
lega um hvað ég er að tala eru
foreldrar mínir og ein af systrum
mínum. Ég fékk nefnilega alltaf svo-
leiðis köst þegar ég var yngri. Þau
byrjuðu að mig minnir fljótlega eftir
slysið og versnuðu fram á unglings-
ár. Þau reyndust mínum nánustu
mjög erfið. Í dag næ ég að beisla
þessa bræði og fæ því ekki þannig
köst lengur að ég ógni sjálfum mér
eða öðrum. En ef ég verð fyrir áfalli
þá koma köstin.“
Daníel segist hafa reynt að leita
sér hjálpar, meðal annars hjá sál-
fræðingum. Hann hafi einnig verið
settur á lyf sem að hans mati hjálp-
uðu ekki neitt.
„Því miður er ekki mikið af úr-
ræðum í boði hér á landi. Ef það
væri eitthvað í boði, væri ég að
nýta mér að það akkúrat núna. En
ég finn ekkert!“
Hann nefnir að algengt sé að
heilaskaddaðir fá endurhæfingu á
Grensási en engin langtíma eftir-
fylgni sé til staðar.
„Ég er viss um að ef við fjölskylda
mín hefðum fengið rétta aðstoð frá
upphafi, þá væri ég örugglega í
skóla eða vinnu í dag og hefði betri
tök á lífi mínu. Það er alvitað að
þegar börn fá heilaskaða þá koma
jafnvel verstu einkennin ekki í ljós
fyrr en þau verða fullorðin. Ég bað
ekki um að verða svona en ég varð
svona og ég er svona.“
Greindur með heilaskaða
20 árum eftir slys
Frétt um slysið
birtist í Morgun-
blaðinu 20. apríl
1996.
Daníel fimm ára gamall á spítalanum
eftir slysið
Daníel glímir við margþættar afleiðingar af framheilaskaða sem hann hlaut
í hræðilegu bílslysi árið 1996. Hann segir líf sitt hefði þróast í aðrar áttir ef
heilaskaðinn hefði uppgötvast fyrr. Mynd | Rut
Skelltu þér í sólina um jólin með fjölskyld-unni, makanum eða vinum. Jólaferðir til Gran Canaria hafa verið afar vinsælar
síðustu ár enda frábært að njóta sólarinnar þar
ytra yfir hátíðina. Heimsferðir bjóða úrval gistingar
á frábærum kjörum en Gran Canaria eru einn
alvinsælasti áfangastaður Evrópubúa yfir veturinn,
enda er þar að finna eitt besta loftslag í heimi, milt
og gott veður með jöfnu hitastigi árið um kring. Á
Gran Canaria eyjunni er að jafnaði 20-25 stiga hiti
á daginn.
Frá kr. 145.390
m/ekkert fæði innif.
Netverð á mann frá kr.
135.595 m.v. 2 fullorðna
og 1 barn í íbúð.
Netverð á mann frá kr.
153.795 m.v. 2 fullorðna
í íbúð.
20. desember í 13 nætur.
Frá kr. 184.665
m/allt innifalið
Netverð á mann frá kr.
181.830 m.v. 2 fullorðna
og 1 barn í herb. Netverð
á mann frá kr. 202.535
m.v. 2 fullorðna í
herbergi.
22. desember í 10 nætur.
Frá kr. 174.695
m/morgunmat innif.
Netverð á mann frá kr.
174.695 m.v. 2 fullorðna
og 1 barn í herb. Netverð
á mann frá kr. 217.895
m.v. 2 fullorðna í
herbergi.
22.des í 10 nætur
Don Diego
Barcelo
Margaritas
Maspalomas
& Tabaiba
Princess
Frá kr. 152.990
m/ekkert fæði innif.
Netverð á mann frá kr.
152.990 m.v. 3 fullorðna
í íbúð. Netverð á mann
frá kr. 158.395 m.v. 2
fullorðna í íbúð.
20. desember í 13 nætur.
Roque
Nublo
Bir
t m
eð
fy
rir
va
ra
um
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
r r
étt
til
le
iðr
étt
ing
a á
sl
íku
. A
th
. a
ð v
er
ð g
etu
r b
re
ys
t á
n f
yri
rva
ra
.
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
77
4
2
8
GRAN CANARIA
Frá kr.
145.390
Fá sæti
laus!
20. des.
Aukaferð
22. des.
Um jólin til
20
DES
20
DES
22
DES
22
DES