Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 28.10.2016, Blaðsíða 1

Fréttatíminn - 28.10.2016, Blaðsíða 1
frettatiminn.is ritstjorn@frettatiminn.is auglysingar@frettatiminn.is 69. tölublað 7. árgangur Föstudagur 28.10.2016 Sjö ára börn læra kínversku Þorgerður Anna lætur börn leika og læra á kínversku 20 14 6 2 KRINGLUNNI ISTORE.ISSérverslun með Apple vörur Fisléttir, klárir og öugir Forpöntun á Mavic drónum. iStore Kringlunni er viðurkenndur sölu- og dreifingaraðili DJI á Íslandi DJI Mavic Pro 179.900 kr. Krassaði á eins árs afmæli sonarins Steinunn Edda segir frá kvíða og læknamistökum amk fylgir Fréttatímanum HEFUR ÞÚ PRÓFAÐ? KÖFLÓTT PILS JAKKAR SMÁRALIND Ársreikningar eignarhalds- félags Þorsteins Más Baldvinssonar sýna ævintýralegan hagnað hans á Samherja. Samherji borgaði 729 milljónir króna í veiðigjöld en félag Þorsteins Más Baldvinssonar sem á hlutabréf í útgerðinni borgaði 660 milljónir króna til hluthafa. Félag Þorsteins Más á 2,8 milljarða og skuldar ekkert. Ef félagið hefði ekki greitt 3,5 milljarða út úr félaginu ætti það um 6,3 milljarða. Ingi F. Vilhjálmsson ingi@frettatiminn.is Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri og annar aðaleigandi Samherja, og fyrrverandi eiginkona hans, Helga S. Guðmundsdóttir, hafa á síðustu sex árum fengið rúmlega 3,5 millj- arða greidda út úr eignarhalds- félaginu sem heldur utan um hluta- bréf þeirra í Samherja. Þetta kemur fram í ársreikningum Eignahalds- félagsins Steins síðastliðin án en ársskýrslu félagsins síðastliðið ár var nýlega skilað til embættis ríkis- skattstjóra. Upphæðin nemur tæpum 6,5 pró- sentum af heildartekjum Landspít- alans í fyrra, tæplega 65 prósentum af rekstrarkostnaði Ríkisútvarpsins og tæplega 13.500 lágmarkslaunum á vinnumarkaði árið 2016. Peningarnir hafa verið teknir út úr félaginu þannig að fyrirtækið, Eignarhaldsfélagið Steinn ehf., hef- ur keypt hlutabréf í félaginu af þeim Þorsteini og Helgu og svo fær félag- ið undanþáguheimild frá efnahags- og viðskiptaráðuneytinu til greiða hlutafé út úr félaginu til þeirra. Þannig geta þau tekið fjármuni út úr félaginu án þess að greiða sér arð. Þetta kemur fram í ársreikningum Eignarhaldsfélagsins Steins síðast- liðin ár. Í fyrra keypti félagið eigin hluti fyrir 660 milljónir króna sem greiddar voru til Þorsteins Más og Helgu. Þetta var hærri upphæð en þær 534 milljónir sem fyrirtækið fékk í arð frá Samherja en hagn- aður félagsins nam sömu upphæð. Síðastliðin ár hefur félagið greitt út nokkurn veginn sömu upphæð til Þorsteins og Helgu og fyrirtækið hef- ur fengið í arð frá Samherja. Samherji er langstærsta útgerðar- félag landsins og er annar stærsti handhafi kvóta á Íslandi á eftir HB Granda. Stærsti hluti starfsemi Sam- herja fer hins vegar fram erlendis. Í fyrra greiddi Samherji 729 millj- ónir króna í veiðigjöld til ríkisins fyrir afnot af aflaheimildum sínum, aðeins 69 milljónum meira en Þor- steinn Már og Helga greiddu út úr eignarhaldsfélagi sínu. Í árslok í fyrra átti félagið reiðufé upp á rúmlega 2,8 milljarða króna en þegar sú upphæð er lögð saman við þá upphæð sem tekin hefur ver- ið út úr fyrirtækinu síðastliðin ár þá nemur heildarupphæð þess fjár sem félagið hefur átt rúmum 6.3 milljörðum króna. Þar að auki eru eignarhlutirnir í Samherja sem bók- færðir eru til eignar á einungis hluta af raunverulegu verðmæti sínu, 2,8 milljarða krona. Félagið skuldar lítið sem ekkert. Ekki náðist í Þorstein Má við vinnslu fréttarinnar. Þorsteinn Már og Helga hafa fengið 3,5 milljarða frá Samherja Tóku að sér 15 ára afganskan dreng Svanhildur Guðlaugsdóttir og Sverrir Hjörleifsson buðust til að hýsa fylgdarlaust barn á flótta í kjölfar Kæra Eygló átaksins. Alisina Haidari, eða Ali, flutti inn til þeirra eftir margra mánaða ferðalag frá Afganistan. Eftir sex mánaða sambúð kom ekki annað til greina en að Ali yrði hjá þeim til frambúðar og hafa hjónin tekið hann í varanlegt fóstur. Bls. 8 Mynd | Rut Hvað myndi Jón kjósa? Kynjamisrétti í íþróttum Könnun afhjúpar misrétti í íþróttahreyfingunni 120 á sjúkrahús vegna sjálfsskaða Sjálfsskaði vaxandi vandi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.