Fréttatíminn - 28.10.2016, Blaðsíða 51
„Já, ég er sérleg áhugamanneskja
um gott sjónvarpsefni,“ segir Alda
Sigmundsdóttir þegar hún er
fyrst spurð hvort hún horfi mikið
á sjónvarp.
Hvers konar sjónvarpsefni er í
uppáhaldi?
„Allt sem er gæða. Ég gef öllu
séns en nenni ekki að sóa tím-
anum mínum í eitthvert rusl og
hætti þá frekar. Horfi þó sjaldan á
grínþætti eða sitcoms. Bestu serí-
ur allra tíma að mínu mati eru The
Wire og Breaking Bad, að öðrum
gæðaþáttum ólöstuðum.“
Hvað hefurðu horft mest á að
undanförnu?
„Ég var að klára seríu sem heitir
The Night Of, sem var eðal. Þar
gekk bókstaflega allt upp - frá-
bær leikur, handrit, leikstjórn og
plott. Á undan því horfði ég á
Narcos, sem eru afar vandaðir
þættir. Sú þáttaröð sem hef-
ur komið mér mest á óvart að
undanförnu heitir Peaky Blind-
ers, breskir þættir um glæpaklíku
sem gerast á sama tímabili og
Downton Abbey þættirnir, en þeir
fyrrnefndu sýna aðstæður undir-
stéttarinnar, sem eru verulega
frábrugðnar yfirstéttarmakkinu.“
Er eitthvert sjónvarpsefni á list-
anum, eitthvað sem þú verður að
sjá?
„Ég hlakka mjög til að sjá ís-
lensku þættina Fangar sem verða
frumsýndir á RÚV á nýársdag. Þar
er nánast allt A-lið landsins í leik
og þáttagerð saman komið og
þeir lofa mjög góðu.“
Sófakartaflan
Alda Sigmundsdóttir
rithöfundur, blaðamaður,
þýðandi og bloggari.
Nenni ekki að sóa tímanum í eitthvert rusl
Ég fyrirverð
mig ekki
fyrir fagnaðar-
erindið. Það
er kraftur
Guðs sem
frelsar hvern
þann mann
sem trúir...
www.versdagsins.is
Gerard Butler leikur
Óperudrauginn
Stöð 2 kl. 21.35 Óperudraug-
urinn
Rómantískur söngleikur með
Gerard Butler og Emmy Rossum
í aðalhlutverkum. Bitur maður
sem hefur verið vanskapaður frá
fæðingu, og þekktur einungis sem
the Phantom, eða Óperudraug-
urinn, býr í ræsinu undir óperu-
húsinu í París í Frakklandi. Hann
verður ástfanginn af sópran-
söngkonunni Christine, og kennir
henni í einkatímum, á milli þess
sem hann hrellir aðra starfsmenn
óperuhússins, og krefst þess að
Christine fái aðalhlutverk. Það
versnar í því þegar Christine
hittir æskuástina Raoul og þau
tvö verða ástfangin. Draugurinn
ákveður að ræna henni og halda
henni fanginni, svo hún verði hans
að eilífu. Raoul er nú sá eini sem
getur stöðvað hann. Leikstjóri:
Joel Schumacher.
Vitgrannir glæpa-
menn ræna banka
Smárabíó, Háskólabíó og
Borgarbíó á Akureyri Masterm-
inds
Ný grínmynd með frábærum hópi
leikara, þeim Zach Galifianak-
is, Kristen Wiig, Kate McKinnon,
Leslie Jones, Owen Wilson og
Jason Sudeikis. David Ghantt
er næturvörður sem vinnur hjá
fyrirtæki sem sérhæfir sig í
brynvörðum bílum í suðurríkj-
um Bandaríkjanna. Líf hans er
tilbreytingarlaust, hann keyrir um
göturnar, dag eftir dag, með millj-
arða af peningum annarra manna
og sér enga undankomuleið frá
þessu leiðindalífi. Hann er hrifinn
af samstarfsaðila sínum, Kelly
Campbell, sem fær hann til að
taka þátt í ótrúlegu ævintýri
sem honum sjálfum hefði aldrei
getað dottið í hug. Þau, ásamt
hópi af vitgrönnum glæpamönn-
um, ákveða að skipuleggja eitt
stærsta bankarán sögunnar.
Horfir á gæðaefni Alda Sigmunds-
dóttir var ánægð með Narcos og
bresku þættina Peaky Blinders.
KJÖTBORÐ
Í Fjarðarkaupum færðu allt á einum stað. Kjötborð okkar er rómað fyrir góða
vöru og framúrskarandi þjónustu. Við bjóðum upp á fyrsta flokks ferskt kjöt,
sérvalið af fagmönnum.
Hjá okkur starfar lærður kjötiðnaðarmaður sem leiðbeinir þér við val á kjöti
og sker eftir þínum óskum. Einnig bjóðum við alltaf upp á sérútbúna rétti
sem þú getur eldað heima.
Við tryggjum þér ferskleika, gæði og úrval.
Verið velkomin í Fjarðarkaup
Ferskt kjöt • Þú ræður magni og skurði • Sérútbúnir réttir
OPIÐ mánudaga - miðvikudaga frá 09:00 - 18:00 / fimmtudaga 09:00 - 18:30
föstudaga 09:00 - 19:00 / laugardaga 10:00 - 16:00 / lokað sunnudaga. www.fjardarkaup.is
NAUTAGÚLLAS
verð áður 2.798 kr./kg
NAUTA RIB EYE
verð áður 4.898 kr./kg
LAMBAINNRALÆRI
verð áður 3.598 kr./kg
HELGARTILBOÐ
2.698
kr./kg
3.998
kr./kg
2.198
kr./kg
…sjónvarp15 | amk… FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 2016