Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 28.10.2016, Blaðsíða 60

Fréttatíminn - 28.10.2016, Blaðsíða 60
8 FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 2016HEILSA&LÍFSTÍLL Addið okkur „HiltonRvkSpa“ og eigið möguleika á að vinna þriggja mánaða kort í stöðina, 50 mínútna nudd, eða andlitsbað. Þrír heppnir vinir verða dregnir út mánudaginn 31. október. HiltonRvkSpa Snapchat leikur: Heilsurækt og spa á besta stað í bænum Sérfræðingur í Kinesio teipingum á staðnum Unnið í samstarfi við Hilton Reykjavík Spa Hilton Reykjavík Spa er heilsurækt og spa á besta stað í bænum. Viðmótið er heimilislegt og markmiðið að láta fólki líða vel í heilsurækt og aðstoða einstak- linga við að ná þeim markmiðum sem þeir setja sér. Innifalið í korti: Handklæði við komu, aðstoð og prógram í tækja- sal frá þjálfara í sal, ástandsmæl- ingar, aðgangur að spa ásamt herðanuddi í pottum. Bæði jóga og fjörugir líkamsræktartímar. Meðlimir fá 10% afslátt af: Meðferðum á nudd- og snyrtistofunni okkar, kinesio teip- ingu og næringarráðgjöf. Næringarráðgjöf Agnes Þóra Árnadóttir er íþróttanæringarfæðingur og tekur að sér að aðstoða bæði íþróttafólk og aðra við að breyta/ bæta mataræðið hjá sér til þess að ná þeim árangri sem leitast er eftir. Stakur tími: 7.900 kr. 3 tímar: 15.500 kr. (2ja vikna eftirfylgni) 5 tímar: 21.500 kr. (4ra vikna eftirfylgni) Kinesio teiping Gabor Réz er sérfræðingur Hilton Reykjavík Spa í Kinesio teipingum sem hafa verið að slá í gegn að undanförnu. Gabor er menntaður í Kinesio teipingum frá Ungverja- landi. Kinesiolgy teipingar koma frá hreyfifræðum og byggja á þeirri trú að vöðvarnir beri ábyrgð á hreyfingu líkamans ásamt því að stjórna öðrum þáttum eins og blóðflæði og líkamshita. Mark- miðið með Kinesio teipingu er að lækna vöðvana til að hjálpa líkamanum að lækna sig sjálfan náttúrulega. Helstu kostir Kinesio teipingar: • Minnka sársauka og bólgur • Bæta blóðflæði og flæði í sogæðakerfinu • Anatómískur stuðningur við liða- og vöðvahreyfingar • Slökun og stuðningur við of- notaða/þreytta/meidda vöðva • Hjálpar líkamanum við að nota rétta vöðva í hreyfingar Kinesio teipið sjálft: • 100% bómull • Ekki ofnæmisvaldandi og inniheldur ekki latex • Hamla ekki hreyfingum • Teygjanlegt og er hannað til að teygjast jafn mikið og húðin Verð 6.900 kr. fyrir fyrstu komu, endurkoma vegna sömu meiðsla 5.900 kr. Snyrtistofan Hilton Reykjavík Spa notar vörur frá vörur frá ítalska hágæðamerk- inu Comfort Zone. Krydd eru allra meina bót Ekki fara sparlega með kryddstaukinn. A lltaf er að koma betur og betur í ljós hversu heilnæm krydd geta verið fyrir heilsuna. Í þúsundir ára hefur krydd verið notað í læknisfræði- legum tilgangi en nýlega hafa komið fram vísindalegar sannanir fyrir virkni þess. Bent hefur verið á að löngum hefur tíðni krabba- meins og hjartasjúkdóma verið lág í Indlandi þar sem krydd eru not- uð í mjög miklu magni en minna af salti og sykri. Eftir því sem vest- rænt mataræði ryður sér meira til rúms hjá þjóðinni hækkar tíðni sjúkdóma og hafa sérfræðingar tengt þetta saman. Krydd geta vissulega ekki lækn- að sjúkdóma en rannsóknir benda til þess að þau geti hjálpað til við að halda niðri ýmsum einkennum. Hér eru dæmi um nokkur dásam- leg krydd sem geta verið prýðileg heilsubót. Við mælum þó með því að fólk fái alltaf álit læknis áður en það fer í það að treysta alveg á kryddin til lækninga. Salvía Jurtasérfræðingar mæla með því að drekka salvíute við ólgu í maga og særindum í hálsi. Ein rannsókn sýndi fram á að salvíulausn sem spreyjað var í kverkarnar létti á sársaukafullri hálsbólgu. Einnig á salvía að hafa góð áhrif á heilann. Rósmarín Í Grikklandi til forna báru nem- endur rósmarínkransa sem þeim fannst hjálpa til við einbeitingu. Rósmarín virðist bæta minni og eftirtekt. Rósmarín gerir máltíðina ekki bara bragðbetri heldur getur marínering með rósmaríni hjálpað til við varðveislu kjötsins þannig að það súrni síður. Túrmerík Það hefur líklega ekki farið fram- hjá neinum hversu mikil vitunda- vakning hefur orðið að undan- förnu varðandi virkni túrmeriks. Á Indlandi er túrmerikmauk borið á sár til þess að flýta bata. Túrm erik-te er víða notað til þess að slá á kvefeinkenni en virka efnið í túrmeriki er curcumin og er það talið hafa mikla andox- unar- og bólgueyðandi eigin- leika. Verið er að rannsaka hvort curcumin geti möguleika minnk- að æxli. Engifer Engifer er bólgueyðandi og getur hjálpað gegn magavandamálum og jafnvel slegið á morgunógleði. Engifer hefur líka mjög góð áhrif á liði og vöðva. Kanill Kanill var notaður meðal Forn- grikkja og Rómverja til þess að auka matarlyst og við meltingar- truflunum. Rannsóknir benda til þess að teskeið af kanil á dag geti jafnað út blóðsykur hjá þeim sem eru með sykursýki, týpu 2. Saffran Í gegnum aldirnar hefur saffran verið notað til þess að auka geð- prýði. Saffran er einnig talið geta slegið á einkenni fyrirtíðaspennu og þunglyndis. Heimild: eatingwell.com
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.