Fréttatíminn - 28.10.2016, Blaðsíða 6
Ógeðsleg ör sem minna á ógeðslega tíma
„Mér finnst þetta hræðilegt þegar ég horfi til baka.
Núna sé ég hvað þetta var tilgangslaust og heimsku-
legt,“ segir Bjarney Þórarinsdóttir sem hefur glímt við
sjálfsskaða. Hún segist hafa byrjað að fikta við að skaða
sig í grunnskóla, en það hafi verið grunnar rispur með
gömlum ryðguðum skærum í tvígang. „Mér fannst tilf-
inningin ólýsanlega góð, ég skar í sköflunginn á mér og
var brosandi og hlæjandi á eftir.“
En eftir að í menntaskóla var komið byrjaði hún að
skera sig fyrir alvöru: „Ég var sautján ára og nýflutt
frá Kirkjubæjarklaustri til að fara í Fjölbrautarskólann í
Breiðholti. Það voru mikil viðbrigði, að fara úr 50 manna
skóla í 1000 manna skóla og ég bjó alein í leiguherbergi
í Reykjavík. Ég réði bara alls ekki við þetta. Ég var svo
hrædd að ég sat ein á bekk fyrir utan skólann þegar það
voru eyður í stundatöflunni. Ég skar mig með dúkahníf-
um og brenndi mig með kveikjara. Mér fannst ég vera
lifandi, þegar ég gerði það, að ég væri til í raun og veru.“
Bjarney leitaði sér ekki hjálpar þrátt fyrir þessa erf-
iðleika, en eftir að hún fór í viðtöl vegna þunglyndis og
kvíða kom þetta upp á yfirborðið. „Ég er hætt að skera
mig, það hefur komið tvisvar fyrir undanfarið ár en ég
lít svo á að þetta sé búið. Það hefði hjálpað mér ef það
hefði verið einhver fræðsla, spjallsíða eða hjálparsími
en það var ekkert,“ segir hún. Hún segir að eina mann-
eskjan sem hún ræddi við um sjálfsskaðann hafi verið
önnur stelpa sem glímdi við sama vanda en þær sýndu
hvor annarri myndir af áverkunum. „Ég hafði einfaldlega
engan til að tala við. Í dag er auðvelt að sjá hvað þetta
var andstyggilegt, Maður fær ógeðsleg ör á líkamann
sem minna stöðugt á ógeðslega tíma,“ það er það sem
þetta skilur eftir,” segir Bjarney.
Kostnaður vegna rekstur
grunnskóla hefur hækkað
mikið síðasta áratug á sama
tíma og grunnskólabörnum
fer aftur samkvæmt Pisa-
-könnuninni.
Mynd | NordicPhotos/GettyImages
Grunnskólarnir orðnir dýrari
en námsárangur verri
Menntamál Kostnaður vegna
reksturs sveitarfélaga á
grunnskólum hefur stóraukist
á einum áratug á sama tíma og
grunnskólabörn koma verr út
úr Pisa-könnunum. Þetta er
meðal þess sem fram kemur í
rannsókn Vífils Karlssonar, dós-
ents við Háskólann á Akureyri,
og Sveins Agnarssonar, dósents
við Háskóla Íslands.
„Stóru tölurnar eru áhyggjuefni,“
segir Vífill en rekstur grunnskóla er
langstærsti kostnaðarliður sveitar-
félaga hér á landi. Árið 2014 námu
útgjöld vegna grunnskóla samtals
73,7 milljörðum og á föstu verð-
lagi hafa útgjöld á hvern grunn-
skólanemanda hækkað úr 1,1 milljón
króna árið 2002 í rúmlega 1,4 millj-
ónir króna árið 2014. Þetta þykir
nokkuð mikið að sögn Vífils. „Og á
sama tíma fer okkur aftur ef horft er
til Pisa-könnunarinnar, sem er auð-
vitað ekki yfir gagnrýni hafin,“ seg-
ir Vífill. „En þetta er það sem okkur
fannst nokkuð sláandi.“
Spurður hvaða kenningar Vífill
hafi um ástæður aukins kostnaðar,
segist hann hafa sínar kenningar,
en það sé ekki mikið meira en það.
Þannig nefnir hann skóla án að-
greiningar, og svo einsetningu skóla.
Einnig kemur fram í rannsókn-
inni að stærð grunnskóla, er ekki
alltaf hagkvæm, en það sé kostnað-
arsamt að hafa færri í bekk, viðmið-
ið eru um 20 nemendur á kennara
auk þess sem stærri skólar eru hag-
kvæmari. Langflestir skólar á Íslandi
eru þó litlir.
Þá vekur athygli að kostnaður
vegna grunnskóla minnkaði lítið
eftir bankahrun, eða eingöngu um
2,6%.
„Það staðfestir þann vilja sveitar-
stjórnarmanna, að þrátt fyrir niður-
skurð, stóðu þeir vörð um grunn-
skólana,“ segir Vífill.
Rannsóknin birtist í dag í Þjóðar-
spegli Háskóla Íslands og verða
rannsóknir kynntar í háskólanum
í dag. | vg
Heilbrigðismál Ekkert íslenskt
fræðsluefni var til um sjálfs-
skaða unglinga fyrr en Geðhjálp
lét þýða ástralskt efni sem hef-
ur nýlega verið gert aðgengilegt
á vefnum. Þrátt fyrir það leita
um 500 til 600 ungmenni til
heilsugæslu á ári hverju vegna
vandans og 120 eru lögð inn á
sjúkrahús vegna líkamlegra
áverka.
Þóra Kristín Ásgeirdóttir
tka@frettatiminn.is
Miðað við erlendar rannsóknir eru
líkur á því þriðjungur ungmenna
eða 17.000 íslensk ungmenni á aldr-
inum 14 til 24 ára hafi skaðað sig
einhvern tíma og 5.000 þeirra hafi
skaðað sig reglulega.
Þeir sem skaða sjálfa sig reyna
langoftast að fela skaðann. Eft-
ir á finnst ungum konum oft mjög
erfitt að sitja upp með ljót ör. Ekkert
forvarnarefni var til um sjálfsskaða
á íslensku áður en Geðhjálp og
Hjálparsíminn létu þýða ástralskt
efni á Útmeð’a vefinn en vefurinn
er forvarnarverkefni Geðhjálpar
og Hjálparsíma Rauðakrossins til
að hvetja ungt fólk til að tjá sig um
vanda sinn og leita sér viðeigandi
hjálpar.
„Í fyrsta lagi er ekki langt síðan
farið var að viðurkenna þetta sem
vandamál en það er líka hræðsla
meðal fagfólks við umræðu um
sjálfsskaða og sjálfsvíg,“ segir
Tómas Kristjánsson sálfræðingur
og ritstjóri vefjarins Útmeð’a.
Hann segir að fólk óttist að ýta
undir þessa hegðun með þvi að tala
um hana en það sé ekki rétt. „Þessi
þögn eykur frekar skömmina og
vanlíðan. Það er fyrsta skrefið að
tala um vandann en næsta skref er
að leita sér hjálpar og við erum að
benda á hvernig aðstandendur geta
brugðist við og hvernig hægt sé að
leita sér hjálpar.“
Hjá f lestum sem skaða sig er
sjálfskaðinn viðbrögð við einhvers
konar andlegum erfiðleikum eins
og sorg, reiði, einmanaleika og leiða
sem þeir telja sig ekki geta ráðið við.
Tómas segir að fæstir vilji stytta sér
aldur þó að fólk sem stundi sjálfs-
skaða sé líklegra heldur en aðrir
til að skaða sig og jafnvel fremja
sjálfsvíg. „Það er yfirleitt ekki ætl-
un þeirra sem skaða sig að fyrir-
fara sér, heldur eru þeir að losa um
spennu og takast á við yfirþyrm-
andi tilfinningar. Þeir eru hinsvegar
miklu líklegri til að falla fyrir eigin
hendi en aðrir síðar meir.“
120 fara á sjúkrahús
vegna sjálfskaða á ári
Ég hafði engan til að hjálpa mér, segir Bjarney Þórarinsdóttir.
Það er yfirleitt ekki
ætlun þeirra sem
skaða sig að fyrirfara
sér, heldur eru þeir
að losa um spennu og
takast á við yfirþyrm-
andi tilfinningar.
Tómas Kristjánsson
sálfræðingur
Mynd | Hari
6 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 28. október 2016
● Auka blóðflæði í
höfði;
● Slaka á vöðvum í
hnakka;
● Bæta öndun með
því að slaka á
axlasvæði;
● Samhæfa ósjálfráða
taugakerfið;
● Slaka á vöðvum í
efri hluta kviðar;
● Bæta virkni
meltingar kerfisins;
● Bæta blóðflæði í
nára.
ÖRVUN MEÐ SVÆÐANUDDS-
INNLEGGI MIÐAR AÐ ÞVÍ AÐ:
FAXAFENI 5
Reykjavík
588 8477
DALSBRAUT 1
Akureyri
588 1100
SKEIÐI 1
Ísafirði
456 4566
SLÖKUN OG VELLÍÐAN
F YRIR ALL AN LÍK AMANN
N ÝJ U N G Í B E T R A B A K I
BYLTING FYRIR
ÞREYTTA FÆTUR
7.900 K R.
Með fimmsvæða nuddinnleggi UNDRA heilsuinni
skónna nærðu slökun og vellíðan sem dregur úr
spennu og örvar blóðflæði. Skórnir
eru fallegir, hlýir og einstaklega
þægilegir. Fáanlegir í dökkgráu eða
ljósu flókaefni.
Komdu og prófaðu!
UNDRI HEILSUINNISKÓR
B Y LT I N G A K E N N T
5 S VÆ Ð A N U D D I N N L E G G