Fréttatíminn - 28.10.2016, Blaðsíða 44
Lax og sýrður rjómi
Laxinn er eitt af þeim fáu mat-
vælum sem inniheldur D-vítamín
frá náttúrunnar hendi. D-vítamín-
ið er nauðsynlegt fyrir upptöku
kalsíums úr fæðunni, en það er
hægt að fá úr mjólkurvörum, til að
mynda sýrðum rjóma. Vinsælt er
að nota sýrðan rjóma í kaldar sós-
ur með laxi, en þá er nóg að bæta
við sýrðum rjóma og kryddi.
Mjólk og
hunang
Það er
kannski
ekki mjög
íslenskt að
fá sér flóaða
mjólk og
hunang fyrir
svefninn, en
það er engu
að síður
góð blanda.
Mjólkin inniheldur ákveðnar
amínósýrur sem framleiða bæði
seratónín og melatónín í heilan-
um. Kolvetni sem hunangið er ríkt
af, eykur upptöku þessara amínó-
sýra.
Bananar og jógúrt
Jógúrtin er, eins og aðrar mjólk-
urvörur, rík uppspretta kalsíums
sem er nauðsynlegt fyrir bein,
tennur og vöðva. Rannsóknir
hafa sýnt fram á að matur ríkur
af kalsíum sem blandað er saman
við mat ríkan af inúlíni, eykur
upptöku þess síðarnefnda.
Það er ekki nóg að vera meðvitaður um hvaða næringarefni eru í matnum sem maður er að borða, heldur er líka
gott að vita hvernig þessi næring-
arefni nýtast best. Þá getur bæði
skipt máli hvernig maturinn er
matreiddur og samsettur. Það er
nefnilega ekki alltaf tilviljun að
hefðir hafi myndast fyrir því að
ákveðnar tegundir matvæla eða
hráefna eru borðuð saman. Oft er
ástæðan sú að þegar matvælin eru
borðuð saman þá auka þau upp-
töku næringarefna hvors annars.
Sjö samsetningar
sem bæta heilsuna
Ólífuolía og
tómar
Flestir kann-
ast við að
nota þetta
tvennt saman,
að sjálfsögðu
oft með
fjölda annarra
hráefna. En
það að bæta
olíu í hóf-
legu magni
á hráefni sem inniheldur karótín
eykur upptöku þess. Flestir
hugsa kannski um gulrætur þegar
minnst er á karótín, en tómat-
ar eru ríkir af andoxunarefninu
lýkópen, sem tilheyrir karótíni,
en það er talið hafa góð áhrif
á ónæmiskerfið og geti jafnvel
varnað gegn vexti krabbameins-
fruma.
Belgbaunir
og blómkál
Þetta græn-
meti er oft
notað saman,
ásamt mörgu
öðru. En belg-
baunir eru
ríkar af járni
sem er sérstaklega mikilvægt fyr-
ir fólk sem aðhyllist plöntumiðað
fæði, eins og þeir sem eru vegan.
Blómkálið er hins vegar ríkt af
C-vítamíni sem eykur upptöku
járns í líkamanum.
Grænt te og sítrónur
Grænt te er mjög ríkt af andox-
unarefnum og með því að blanda
því saman við sítrónur þá eykst
magnið sem líkaminn tekur upp.
Turmerik og svartur pipar
Curcumin er virka efnið í túrmerik sem talið
er hafa bólgueyðandi eiginleika. Gallinn er
hins vegar sá að líkaminn tekur mjög lítið
upp af efninu sé túrmeriks neytt eins og
sér. Það er hins vegar talið að svartur pipar
auki upptöku curcumins og því eru þessi
tvö krydd gjarnan notuð samhliða.
…heilsa 8 | amk… FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 2016
VIÐ OPNUM
STÓRVERSLUN
Á SMÁRATORGI
Smáratorg 1 · Sími 533-1551 · www. regatta.is · www.facebook.com/regatta.is
Vítamín og bætiefni Gula miðans eru sérstaklega valin og þróuð fyrir
íslenskar aðstæður. Þess vegna hefur Guli miðinn verið hluti af
daglegu lífi Íslendinga í 25 ár. Kynntu þér úrvalið á gulimidinn.is
TVÖ NÝ
frá Gula miðanum