Fréttatíminn - 28.10.2016, Page 4
4 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 28. október 2016
Verkalýðsmál Fram-
kvæmdastjóri SGS vill
taka upp kynjakvóta
í ASÍ. Konur eru nær
helmingur félags-
manna, samt sem áður
eiga þær einungis 12
prósent stjórnar-
manna í landssam-
böndum hreyfingar-
innar og 27 prósent
fulltrúa í miðstjórn.
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir
tka@frettatiminn.is
„Verkalýðshreyfingin er leik-
völlur karla og óárennileg fyr-
ir konur.“ segir Drífa Snædal
framkvæmdastjóri Starfsgreina-
sambandsins. „Það gengur of
hægt að breyta því og for-
ystan þarf að hugsa sinn
gang.“ Hún segir að það
þurfi að skoða hvort ekki
eigi að beita handafli
eins og kynjakvóta til
að rétta af þennan halla.
Drífa segir að það sé því
miður staðreynd að konur
sækist síður eftir forystu-
störfum innan hreyf-
ingarinnar. „Það getur
ASÍ fulltrúar Konur Karlar
Alþjóðamál 9 2 7
Efnahags- og skattamál 8 3 5
Jafnréttismál 6 4 2
Mennta- og menningarmál 114 39 75
Umhverfismál 1 1 0
Velferðarmál 45 17 28
Vinnumarkaðsmál 60 14 46
Samtals 243 80 163
Aðalfulltrúar 159 54 105
Varafulltrúar 84 26 58
Tilnefningar ASÍ í nefndir og ráð 2016
Hlutfall kvenna af
félagsmönnum, í
stjórnum aðildar-
félaga og deilda, í
stjórnum landssam-
banda, í miðstjórn og
í stjórn ÁSÍ-UNG
Karlar
Konur
46%
31%
Félagsmenn Stjórnir aðildar-
félaga og deilda
Stjórnir
landssambanda
Miðstjórn
13%
27%
Stjórn ASÍ-UNG
43%
Skattamál Tugir einstaklinga á
Íslandi létu erlend skattaskjóls-
félög greiða kredikortareikn-
inga sína. Bryndís Kristjáns-
dóttir skattrannsóknarstjóri
segir aðferðina þekkta við að
taka fé út úr aflandsfélögum.
Ingi F. Vilhjálmsson
ingi@frettatiminn.is
Bryndís Kristjánsdóttir skattrann-
sóknarstjóri segir að embættið hafi
fengið mörg mál inn á borð til sín
þar sem fyrirtæki í skattaskjólum
voru látin greiða kreditkortareikn-
inga fyrir Íslendinga. Í Frétta-
tímanum í dag er fjallað um að
aflandsfélög á Tortólu hafi greitt
kreditkortareikninga fyrir einstak-
linga í fjölskyldunni sem áttu út-
gerðina Sjólaskip, meðal annars
Marinellu Haraldsdóttur og Guð-
mund Jónsson. Kreditkortin voru
þá gefin út af erlendum bönkum og
tengd við erlenda bankareikninga
sem voru skráðir á aflandsfélögin
eða á einstaklingana sjálfa.
„Þetta þekktist vel, að þetta hafi
verið gert með þessum hætti. Það
eru dæmi um að þetta hafi ver-
ið rétt gert skattalega en það eru
fleiri dæmi um að þetta hafi ekki
verið rétt gert,“ segir Bryndís.
Hún segir að embætti skattrann-
sóknarstjóra reyni oft að fá gögn
og upplýsingar um fjármunina fá
einstaklingum sem hafa notað
þessa aðferð. „Vandamálin í þess-
um málum, almennt séð, er skortur
á gögnum. Menn vilja almennt séð
ekki leggja fram upplýsingar um
kredikortin eða þá bankareikninga
sem kreditkortið er tengt við. Það
heyrir til algjörra undantekninga
að fólk geri það. Þá þurfum við að
reyna að afla gagna frá öðrum lönd-
um, yfirleitt Lúxemborg.“
Bryndís segir að nokkur slík mál,
þar sem einstaklingur lét aflands-
félag greiða kreditkortareikn-
ing fyrir sig, hafi farið til yfir-
skattanefndar og eins fyrir dóm.
„Það er auðvitað alþekkt að fólk
noti þessa leið til að ná peningum
út úr aflandsfélögum.“
Eigendur Sjólaskipa eru bara
tvö dæmi um einstaklinga í
Panamaskjölunum sem fóru þessa
leið við notkun á aflandsfélögum
sem Mossack Fonseca stofnaði.
Áður hefur verið greint frá því að
fjárfestarnir Magnús Ármann og
Sigurður Bollason hafi einnig gert
þetta.
Greiðsla skattaskjólsfélaga á
kortareikningum oft lögbrot
Bryndís Kristjánsdóttir segir að það heyri til undantekninga að fólk
afhendi gögn um kredikortaviðskipti sín í gegnum skattaskjólsfélög.
Vill kynjakvóta í ASÍ
Drífa Snædal segir að
konur sækist síður
eftir forystustörfum
innan ASÍ.
verið að ásýnd hreyfingarinnar
sé fráhrindandi fyrir konur og
menningin innan hennar. Síðan
er þetta líka skipulagslegt atriði,
atvinnugreinarnar eru mjög
kynjaskiptar, og starfsgrein-
ar eru rétthærri en kyn þegar
kemur að því að velja fulltrúa.“
En ASÍ tilnefnir einnig full-
trúa í fjölmörg ráð og nefnd-
ir á vegum hins opinbera. Þar
er konum ekki gert hátt und-
ir höfði. Konur hafa einung-
is vinninginn þegar kemur að
nefndum um jafnréttismál.
Þannig er hlutfall kvenna sem
ASÍ skipaði í nefndir um al-
þjóðamál 22 prósent, Konur
eru 23 prósent þeirra sem ASÍ
tilnefndi til að fjalla um vinnu-
markaðsmál og svo mætti lengi
telja.
Stjórnsýsla Nýsköpunarsjóður
atvinnulífsins birti ekki árs-
reikninga ríkisstofnunarinnar
á heimasíðu sinni. Sjóðurinn
stýrir almannaeignum upp á
milljarða króna og fékk meðal
annars hluta af Símapeningun-
um árið 2005. Sjóðurinn hefur
fengið aukafjárveitingar frá
ríkinu upp á nærri 300 milljón-
ir hið minnsta út af taprekstri á
liðnum árum.
Ingi F. Vilhjálmsson
ingi@frettatiminn.is
Ríkisendurskoðun gagnrýnir rík-
isstofnunina Nýsköpunarsjóð fyr-
ir að birta ekki ársreikninga sína á
heimasíðu sjóðsins. Ársreikningar
flestra, ef ekki allra ríkistofnana, er
að finna á heimasíðum þeirra. Rík-
isendurskoðun telur sig hins vegar
ekki getað afhent fjölmiðlum, eða
öðrum aðilum, ársreikninga Ný-
sköpunarsjóðs og segir að sjóður-
inn þurfi að gera það sjálfur. „Rík-
isendurskoðun telur svo eðlilegt að
ríkisstofnanir og stofnanir ríkisins
birti ársreikninga sína á heimasíðu
sinni,“ segir í svari frá Ríkisendur-
skoðun, við fyrirspurn Fréttatím-
ans.
Helga Valfells, framkvæmdastjóri
Nýsköpunarsjóðs, segir að heima-
síðu sjóðsins hafi verið breytt ný-
lega og að hún sé nú alfarið á ensku
og að ársreikningar sjóðsins hafi
ekki verið settir inn á nýju heima-
síðuna þar sem slíkt hafi verið talið
óþarfi. Hún segir að bætt verði úr
því og ársreikningar sjóðsins gerðir
aðgengilegir á heimasíðu sjóðsins.
Sjóðurinn á hluti í nýsköpunar-
fyrirtækjum upp á um 80 milljónir
dollara, rúma níu milljarða króna.
Nýsköpunarsjóður er fjármagnaður
af íslenska ríkinu og var stofnaður
á á grunni Iðnlánasjóðs, Fiskveiða-
sjóðs Íslands og Iðnþróunarsjóðs
rétt fyrir aldamótin síðustu.
Tveir af fimm stjórnarmönnum
sjóðsins eru skipaðir af ráðherrum
ríkisstjórnarinnar hverju sinni. Nú
sitja Ásta Þórarinsdóttir, fjárfest-
ir hjá lækningafyrirtækinu EVU
Consortium og stjórnarformað-
ur Fjármálaeftirlitsins, og Gunn-
laugur Sighvatsson, yfirmaður hjá
útgerðarfélagi Kaupfélags Skag-
firðinga FISK Seafood, í stjórn sjóðs-
ins fyrir hönd ráðherra.
Eigið fé sjóðsins skal alltaf vera
3.5 milljarðar króna samkvæmt
lögum um hann og fékk sjóður-
inn meðal annars um 2.5 milljarða
króna árið 2005 eftir sölu ríkisins
á Landsímanum. Sjóðurinn er ekki
á fjárlögum en ætlast er til þess að
rekstur hans standi undir sér eins
þótt einnig sé ljóst að tap kunni að
verða af sumum fjárfestingum eins
og gengur í nýsköpunargeiranum
og fjallað er um greinargerð fjárlaga
á hverju ári: „Nýsköpunarsjóður at-
vinnulífsins fjárfestir í vænlegum
nýsköpunar- og sprotafyrirtækjum
og tekur því meiri áhættu en aðr-
ar lánastofnanir ríkisins. Fjöldi ára
getur liðið þar til fjárfestingar sjóðs-
ins taka að skila arði og eðli málsins
samkvæmt endurheimtast sumar
fjárfestingar ekki.“
Í fjárlagafrumvörpum ríkis-
stjórna kemur alltaf fram rekstrar-
áætlun fyrir sjóðinn sem miðar að
hagnaði. Rekstur Nýsköpunarsjóðs
hefur hins vegar ekki alveg gengið
sem skyldi á síðustu árum og færði
ríkið til að mynda niður eignarhlut
sinn í sjóðnum um fimm milljarða
króna árið 2011 eins og sagði í til-
kynningu frá fjármálaráðuneytinu
sumarið 2012 þegar í ljós kom að
tekjujöfnuður ríkissjóðs var ekki
mínus einn milljarður króna eins
og gert hafði verið ráð fyrir heldur
mínus 43 milljarðar. „Mest munar
um gjaldfærslur vegna SpKef spari-
sjóðs upp á 20 milljarða króna. Þá
námu niðurfærslur eignarhluta
hjá Byggðastofnun um 7 milljörð-
um króna og Nýsköpunarsjóði at-
vinnulífsins um 5 milljörðum króna
en þær skýrast af afskriftum vegna
tapreksturs þeirra undanfarin ár.“
Helga Valfells segir að þessi niður-
færsla á eignum sjóðsins hafi verið
gamlar syndir að mestu.
Þótt Nýsköpunarsjóður sé ekki á
fjárlögum þá hefur ríkið þurft að
leggja sjóðnum til fé á liðnum árum
út af taprekstri hans. Árið 2012 voru
það 214 milljónir króna og árið 2013
voru sjóðnum lagðar til 57 milljón-
ir króna vegna taprekstrar. Eftir
að Fréttatíminn hafði samband við
Nýsköpunarsjóð til að spyrjast fyrir
um ársreikninga sjóðsins, og benda
á gagnrýni Ríkisendurskoðun-
ar, setti sjóðurinn ársreikningana
á heimasíðuna um hádegisbilið á
fimmtudaginn.“
Nýsköpunarsjóði ber
að birta ársreikninga
Stjórn Nýsköpunarsjóðs er pólitísk skipuð að hluta en tveir af
stjórnarmönnunum eru útnefndir af ráðherrum ríkisstjórnarinnar
hverju sinni. Helga Valfells, sem sést hér á mynd á hlutabréfamark-
aðnum í New York, er framkvæmdastjóri sjóðsins og segir hún að
ársreikningar sjóðsins verði settir á heimasíðu hans sem fyrst.
ZENDIUM STYRKIR
NÁTTÚRULEGAR
VARNIR MUNNSINS
FÉLAG ÍSLENSKRA
TANNFRÆÐINGA MÆLIR
MEÐ ZENDIUM TANNKREMI
Sakamál Hæstiréttur Íslands
staðfesti í gær niðurstöðu
Héraðsdóms Vesturlands um að
dæma Gunnar Örn Arnarson í
16 ára fangelsi fyrir manndráp.
Gunnar Örn varð manni að bana
í heimahúsi á Akranesi í október
í fyrra. Gunnar Örn var sakfelld-
ur fyrir að kyrkja fórnarlamb sitt
með belti og fatareim en hann var
í óminnisástandi vegna neyslu
áfengis og lyfja þegar hann framdi
verknaðinn. Maðurinn lést ekki
strax heldur varð hann fyrir alvar-
legum heilaskaða sem dró hann til
dauða fimm dögum síðar. Gunnar
Örn er ekki sagður eiga sér neinar
málsbætur. Gunnari er svo gert að
greiða útför mannsins og miskabæt-
ur til aðstandanda.| vg
Dæmdur fyrir morð
Hæstiréttur Íslands staðfesti úrskurð
Hérðasdóms Vesturlands í gær.