Fréttatíminn

Issue

Fréttatíminn - 28.10.2016, Page 25

Fréttatíminn - 28.10.2016, Page 25
| 25FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 28. október 2016 Filippa, drottning Játvarðar þriðja, biður mann sinn að þyrma lífi borgaranna í Calais. Rannsóknir hafa sýnt að um örlög þeirra var búið að semja fyrir fram. ættir þessara tveggja stórvelda, Englands og Frakklands, háðu bardaga áratugum saman með tilheyrandi blóðsúthellingum. Játvarð konung vantaði höfn til að koma hergögnum sínum heiman frá Englandi og á vígvellina í Frakklandi. Að lokum náði hann borginni á sitt vald og hún var undir ensku krúnunni allt fram til ársins 1558, eða í ríf- lega tvær aldir. Eins og gefur að skilja hafði árs umsátur mikil áhrif líf íbúa borgarinnar, enda voru allir flutningar til hennar stöðvaðir bæði á landi og sjó. Hungursneyð og dauði fylgdu hernaðarbröltinu. Íbúarnir voru þá um átta þúsund, álíka margir og flóttamennirnir sem eru nú í búðunum utan við borgina. Borgararnir Í garði við suðurenda breska þinghússins stendur fræg stytta. Hún var sett upp árið 1914 og afhjúpuð ári síðar um það leyti sem breskir og franskir hermenn börðust hlið við hlið gegn miðveldunum í fyrri heimsstyrjöld. Styttan heitir Borgararnir frá Calais og sýn- ir sex manneskjur sem virka að niðurlotum komnar. Það var Auguste Rodin sem gerði verkið á níunda áratug 19. aldar að beiðni borgaryfirvalda í Calais. Borgararnir sex frá Calais, sem Rodin sýnir hlekkjaða og að niðurlotum komna, voru miklar hetjur. 1. ágúst árið 1347, þegar umsátrið um borgina hafði staðið í ellefu mánuði, voru eldar kveiktir í Calais til merk- is um að íbúar borgarinnar væru tilbúnir að gefast upp. Sagt er að Játvarður Englandskon- ungur hafi þá heitið að þyrma lífi borgarbúa ef að hann fengi lyklana að borginni afhenta úr hendi óvinanna, af fulltrúum borgar- búa sem jafnframt myndu þá láta lífið. Sex einstaklingar, undir forystu eins efnaðasta íbúa borgarinnar, Eustache de Saint Pierre, buðu sig fram til verksins og gengu jafnframt í opinn dauðann. Það er þessi hetjudáð sem Rodin túlkar í verki sínu, en samt voru ekki allir á eitt sátt- ir. Borgararnir í verkinu, sem allir eru í yfir- stærð, þóttu ekki nógu „hetjulegir“ og borg- aryfirvöld í Calais brugðu á það ráð að lyfta verkinu upp á háan stall til að lyfta undir hetjudáðina, þó svo að listamaðurinn hafi sjálfur viljað að íbúar borgarinnar gengu nánast á þessar hetjur fortíðar. Þannig var það von hans að íbúar Calais tengdust betur þeirri staðreynd að þarna var fólk af holdi og blóði, sem gekk út í opinn dauðann. Flóknari saga Lengi vel var því haldið fram að drottning Játvarðar, Filippa að nafni, hefði beðið mann sinn að þyrma lífi borgaranna sex sem buðu sig fram til að ganga í opinn dauðann og það gerði konungur vissulega að lokum. Nýlegar rannsóknir hafa hins vegar sýnt fram á að svo einföld var sagan ekki. Borgararnir voru nefnilega búnir að tryggja líf sitt fyrirfram, ná samningum við Játvarð um að lífi þeirra yrði þyrmt. Það var því ekki svo að þeir hefðu stigið fram úr fjöld- anum til að drýgja sína hetjudáð, heldur til- heyrðu þeir elítu borgarinnar, sem hafði tök á að semja um örlög sín við sjálfan konung Englands. Þrengingar borgaranna sex voru sannar- lega til staðar, þeir voru leiddir í hlekkjum og undir alvæpni út fyrir borgarmúrana til að afhenda lyklana að borginni en sá gjörning- ur var fyrst og fremst táknrænn og ekki jafn hetjulegur og talið var um aldir. Hetjudáðin sem Rodin vann út frá í verkinu, var því ekk- ert nema mýta og tilbúningur þegar til kom. Með tíð og tíma urðu borgararnir samt eins konar erkitýpur fyrir hinn dáðum prýdda franska borgara, en heimildir sýna að leið- toga þeirra Saint-Pierre var meira að segja launaður greiðinn af Játvarði Englandskon- ungi. Við flytjum snilligáfu til þeirra sem rækta hana VIÐ KOMUM ÞVÍ TIL SKILA 16 -2 68 8 – H VÍ TA H Ú S IÐ /S ÍA

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.