Fréttatíminn - 28.10.2016, Side 52
Biðin er á enda!
STÓRA BÓKIN UM VILLIBRÁÐ
EFTIR ÚLFAR FINNBJÖRNSSON ER KOMIN AFTUR
Bókaútgáfan Salka | Suðurlandsbraut 4, 2. hæð | 108 Reykjavík | Sími 522 2250 | salka@salka.is | www.salka.is
Sannkölluð biblía veiðimanna og matgæðinga
Mikið aukin og endurbætt
Nýr kafli um ferskvatnsfiska
alla föstudaga
og laugardaga
„Það situr enn í mér að eitt miðvikudagskvöldið
þá mátti ég ekki horfa á Simpson-þáttinn eins og
allir í bekknum því ég þurfti að vinna“
Sigyn Blöndal er í viðtali í amk á morgun
Jimmy Fallon skipað að drekka minna
Grínistinn gjarn á að skella sér út á lífið eftir vinnu.
Spjallþáttastjórnandinn og grínist-
inn Jimmy Fallon er að sögn farinn
að seilast svo djúpt ofan í bokkuna
að yfirmenn hans hjá NBC hafa
áhyggjur af honum. Hermt er að
þeir hafi lesið honum pistilinn fyr-
ir skemmstu og heimtað að hann
minnkaði drykkjuna.
„Þeir óttuðust að Fallon væri
stjórnlaus og eitthvað gæti hent
hann þegar hann fer út á lífið. Um
tíma var meira að segja talið að
hann væri að skilja við eiginkonu
sína út af drykkjunni, en þau náðu
sáttum,“ segir heimildarmaður
Page Six.
Heimildarmaður nátengdur
Fallon staðhæfir þó að hann sé á
réttri leið. „Hann veit að hann þarf
að sýna ábyrgð. Hann á tvö börn.
Jimmy hefur minnkað drykkjuna.“
Sopinn góður Jimmy Fallon finnst gott að skella sér út á lífið og leiðist ekki að skemmta sér.
Hér er hann með Guy Fiery fyrir nokkrum árum. Mynd | Getty
Húsnæði Laundrom-
at Café komið á sölu
Útlit er fyrir að ekkert verði af
því að The Laundromat Café verði
opnað við Laugarásveg í Reykja-
vík. Húsnæðið þar sem staðurinn
átti að vera hefur nú verið auglýst
til sölu á tæpar 40 milljónir króna.
Eins og kom fram í Fréttatímanum
í september lögðust nágrannar
gegn opnun staðarins, neituðu að
veita samþykki fyrir loft-
ræstistokki og hjólastólaaðgangi.
Jóhann Friðrik Haraldsson, einn
eigenda staðarins, sagði í sam-
tali við blaðið að eigendur hefðu
verið tilbúnir í viðræður við ná-
granna um breyttan opnunartíma
en talið var að hann hefði staðið
í þeim. Þeir hafi hins vegar ekki
sýnt neinn sáttavilja og því hafi
verið ákveðið að auglýsa húsnæð-
ið til sölu. Eigendur hafi þó ekki
útilokað að opna veitingastað í
einhverri mynd en vilji láta reyna
á söluna, enda hafi þeir þegar lagt
20 milljónir króna í endurbætur á
húsnæðinu.
Vantar fyrirtækið þitt gæða
prentefni? Við bjóðum fjöl-
breyttar lausnir hvort sem er í
offset eða stafrænt. Komdu við
í kaffisopa og við finnum leið
sem hentar best hverju sinni.
PRENTVERK
Högni Egils og
Andri Snær í Nepal
Lista-
mennirnir Andri
Snær Magnason
og Högni
Egilsson eru nú
staddir í
Katmandú í
Nepal en þar
verða á morgun
haldnir tónleikar
sem eru liður í vitundarvakningu
um geðsjúkdóma. Skipuleggjandi
tónleikanna er Anna Tara
Edwards sem alin er upp bæði á
Íslandi og í Nepal að því er Andri
Snær greinir frá á Facebooksíðu
sinni. Þar kemur fram að hrein-
skilni Högna í umræðu um
veikindi sín hafi orðið Önnu Töru
hvatning til að láta gott af sér
leiða í Nepal. Frægt varð þegar
Högni opinberaði í viðtali í
Fréttatímanum árið 2012 að hann
glímir við geðhvörf.
„Anna Tara steig fram í vikunni
og ritaði kjarkmikla grein í The
Himalayan Times um geðhvörf sín
þar sem hún fjallar um sína sögu
og þær leiðir sem hún notar til
að halda sjúkdómnum í skefjum,“
segir Andri Snær en auk hans
eru í föruneyti Högna í Nepal
þær Anni Ólafsdóttir kvikmynda-
gerðarkona og Ásta Fanney Sig-
urðardóttir listakona.