Fréttatíminn

Útgáva

Fréttatíminn - 28.10.2016, Síða 61

Fréttatíminn - 28.10.2016, Síða 61
Fjölbreyttar hágæða vörulínur Kyolic hvítlaukur, Thera Pearl, Swanson og margt fleira Unnið í samstarfi við Heilsuver Heilsuver, sem hefur ver-ið starfandi frá 2009, tekur þátt í sýningunni Heilsa og Lífstíll í Hörpu um helgina. Kolbrún Kjer- úlf heilsuráðgjafi verður þar ásamt fríðu föruneyti að kynna nokkrar af þeim góðu vörulín- um sem fást í Heilsuveri. Þeirra á meðal er Swanson vítamín- og bætiefnalínan. „Við fórum af stað að leita að vörumerkjum sem hentuðu okkar kröfum og duttum niður á Swanson, sem reynd- ar hefur verið ágætlega þekkt vörumerki hér á landi,” segir Kolbrún. „Innan vörumerkisins eru nokkrar vörulínur, svo sem al- menn vitamín, jurtalína, lína með virkari bætiefnum, fyrir þyngdar- stjórnun og Omega fitusýrur svo eitthvað sé nefnt, en þau hjá Swanson leggja mikla áherslu á að bjóða viðskiptavinum sínum hágæða vörur og eru m.a. í sam- starfi við fyrirtæki sem framleiða hágæða virk bætiefni sem þeir nota í margar af vörulínum sín- um“ segir Kolbrún. Kyolic hvítlaukurinn Ein vinsælasta varan í Heilsu- veri er Kyolic hvítlaukurinn sem margir þekkja. Kyolic er fram- leitt af Japanska fyrirtækinu Wakunaga. „Við erum með tólf tegundir af Kyolic bætiefna- blöndum og hefur hver tegund um sig verið þróuð með ákveðna virkni í huga. Hreina hvítlauk- inn og þann sem blandaður er með lecithin, þekkja margir Íslendingar af góðu en færri þekkja allar hinar tegundirnar sem nú eru í boði. Má þar nefna að Wakunaga fékk til liðs við sig þekkta bandaríska lækna til að útbúa blöndur, annars vegar blöndu sem þykir góð fyrir heila- starfsemi og hins vegar fyr- ir blöðruhálskirtilinn en sjón er sögu ríkari og best fyrir fólk að kíkja í Heilsuver að Suðurlands- braut 22 og finna þar sína réttu blöndu,“ segir Kolbrún og bætir við að að baki Kyolic vörulínunni séu meira en 750 vísindalegar rannsóknir á heilsubætandi eig- inleikum hans. Ilmkjarnaolíur fyrir börn Í Heilsuveri fást afar vandað- ar ilmkjarnaolíur sem hafa vakið mikla athygli. „Línan heitir Plant Therapy og kemur frá amerísku fjölskyldufyrirtæki. Þau skipta m.a. við bændur sem rækta jurt- irnar á lífrænan hátt. Hráefnið fer í gegnum viðamiklar gæðapróf- anir áður en það er samþykkt. Þá leggja þau áherslu á að þekkja bakgrunn og orðspor bænda og annarra birgja,“ segir Kolbrún og bendir jafnframt á að sér- staða Plant Therapy felist meðal annars í því að þekktur breskur ilmkjarnaolíufræðingur, Robert Tisserand, var fenginn til þess að útbúa sérstaka ilmkjarnaolíulínu fyrir börn. „Fyrirtækið merkir þá línu alveg sérstaklega til þess að það fari ekki á milli mála hvaða olíur eru taldar henta best fyrir börnin. Plant Therapy vörurn- ar eru hágæðavörur þar sem ekkert er til sparað til að tryggja gæði vörunnar,“ segir Kolbrún. Í Heilsuveri er einnig gott úrval annarra vörumerkja „Við erum líka með lífrænar, glútenfríar og vegan matvörur og að ég best veit eina heilsuvöruverslunin sem býður upp á flestar tegundir óhefðbundinna vörutegunda eins og hómópataremedíur, vefjasölt og blómadropa, svo allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi,” segir Kolbrún. Kælimeðferð Thera Pearl „En við erum líka með sitthvað í kælipokahorninu,“ segir Kolbrún. „Thera Pearl, sem er nýtt á mark- aðnum hér á landi, eru margnota hita- og kælipokar/púðar með ól sem gerir kæli-og hitameðferð mögulega á meðan vinnu eða leik stendur. Púðarnir eru fylltir með gelperlum sem laga sig auðveld- lega að líkamanum. Bæði má nota púðana til kælingar, þá eru þeir frystir. Til hitunar eru þeir hitaðir í potti eða örbylgjuofni,“ segir Kolbrún. Kælimeðferð með TheraPearl er t.d. góð við tognun og eftir æfingar en hitameðferð með TheraPearl örvar blóð- flæði, getur linað vöðvaverki og krampa og hentar einnig prýði- lega til upphitunar fyrir æfingar. Mælt er með 20 mínútna meðferð og hægt að nota púðana aftur og aftur. Síðast en ekki síst bendir Kolbrún á Naturalia hágæða húð- vörurnar. Naturalia eru læknis- fræðilega prófaðar húðvörur án parabena, framleiddar í Valencia á Spáni. Aloe vera gelið sem er notað í framleiðslu Naturalia er lífrænt ræktað og 100% hreint og með vottun. Heilsuver mun kynna þess- ar vörur í Hörpu um helgina, og eru allir hjartanlega velkomnir. 9 FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 2016 HEILSA&LÍFSTÍLL Kyolic Í Heilsuveri fást tólf tegundir af Kyolic hvítlauknum. Mynd | Rut Plant Therapy Innan línunnar eru sérstakar ilmkjarnaolíur sem eru sérstaklega ætlaðar börnum. Mynd | Rut Naturalia Læknisfræðilega prófaðar húðvörur án parabena, framleiddar í Valencia á Spáni. Heilsuver býður upp á fjölbreytt úrval af hágæða vítamínum og bætiefnum frá Swanson Therla Pearl Kælimeðferð með TheraPearl er t.d. góð við tognun og eftir æfingar. Mynd | Rut Heilsuráðgjafi Kolbrún Kjerúlf verður ásamt fríðu föruneyti í Hörpu um helgina. Mynd | Rut

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.