Fréttatíminn

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttatíminn - 24.11.2016, Qupperneq 4

Fréttatíminn - 24.11.2016, Qupperneq 4
4 | FRÉTTATÍMINN | Fimmtudagur 24. nóvember 2016 Fjölmiðlar Arnþrúður Karls- dóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu, hyggst kvarta til umboðs- manns Alþingis vegna ákvörðun- ar Póst- og fjarskiptastofnunar um að svipta stöðina tíðninni 102,1. Það þýðir að stöðin missir umtalsvert svæði til að útvarpa á, meðal annars Reykjanesið og stóran hluta á höfuðborgar- svæðinu. „Þetta er mjög íþyngjandi fyr- ir okkur og eiginlega bara hættu- legt,“ segir Arnþrúður en Frétta- tíminn greindi frá því fyrir nokkru að svipta ætti útvarpsstöðina tíðn- inni á þeirri forsendu að ekki væri heimilt að gefa stöðinni tvær tíðn- ir. Ástæðan er meðal annars sú að tíðnir eru takmörkuð auðlind. Arnþrúður bendir þó á að Bylgj- an hafi yfir fleiri tíðnum að ráða, en í úrskurðinum er þeim rökum beitt að þeim hafi verið úthlutað fyrir árið 2000. Arnþrúður gefur reynd- ar lítið fyrir það, enda ákvörðunin staðfest fyrir örfáum árum síðan. „Þannig að það er bara verið að mismuna okkur,“ segir Arn- þrúður sem hefur þegar leitað til Samkeppniseftirlitsins vegna máls- ins auk þess sem þau hafa áfrýjað úrskurðinum. Arnþrúður hefur krafist þess að úrskurður Póst- og fjarskiptastofn- unar verði ógildur umsvifalaust, en samkvæmt úrskurðinum þurfa þau að slökkva á sendinum ekki síðar en á föstudaginn, 25. nóvember. Geri þau það ekki eiga þau yfir höfði sér allt að 500 þúsund króna sekt á dag. Aðspurð hvort þau þurfi ekki að slökkva á sendinum á meðan málið bíður úrlausnar, svarar Arnþrúð- ur hvorki jáwtandi né neitandi. Hún vonast til þess að ákvörðun- inni verði hnekkt yfir þann tíma, þó ólíklegt sé. Því er ekki útilokað að Arnþrúður og félagar láti reyna á dagsektirnar. | vg Arnþrúður Karlsdóttir er afar ósátt við úrskurðinn og gefur ekki skýrt svar um það hvort hún muni slökkva á sendinum. Arnþrúður biðlar til umboðsmanns Alþingis Stjórnmál Katrín Júlíus- dóttir, fyrrverandi þingkona Samfylkingar, sótti um fram- kvæmdastjórastarfið hjá Samtök- um fjármálafyrirtækja. SFF taldi hana hæfasta umsækjandann en meira en 20 vildu starfið. Svíar íhuga að setja reglur um vinnu- bann þingmanna í allt að eitt ár til að koma í veg fyrir mögulega hagsmunaárekstra eftir að þeir hætta að vera fulltrúar almenn- ings á þingi. Ingi F. Vilhjálmsson ingi@frettatiminn.is „Þetta starf var auglýst og ég hafði séð þá auglýsingu. Svo þegar þing- ið var búið og ég var farin að hugsa um það hvað ég gæti gert þá var mér bent á auglýsin guna á vef Capacent og ég ákvað að sækja um þetta og ég henti CV-inu mínu því inn í púll- íuna. Þeim hefur litist vel á,“ seg- ir Katrín Júlíusdóttir, fyrrverandi þingkona Samfylkingarinnar, að- spurð um aðdraganda þess að hún var ráðin sem framkvæmdastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja (SFF) í síðustu viku. Ráðning Katrínar vakti talsverða athygli þar sem hún lét nýlega af störfum sem fulltrúi almennings á þingi í 13 ár en fer nú í vinnu hjá hagsmunasamtökum fjármálafyr- irtækja á Íslandi. Um svipað leyti og sagt var frá ráðningu Katrínar greindi Landssamband fiskeldis- stöðva frá því að Einar K. Guðfinns- son, fyrrverandi þingmaður Sjálf- stæðisflokksins og ráðherra, yrði stjórnarformaður samtakanna. Talsverð umræða hefur verið um það á Norðurlöndunum um hvort og hvernig eigi að koma í veg fyrir hagsmunaárekstra hjá fyrr- verandi þingmönnum þegar þeir hætta þingmennsku. Í Danmörku, Noregi og Finnlandi gilda reglur um það hversu langur tími þarf að líða áður en ráðherra getur ráðið sig í vinnu til annars aðila eftir að hann lætur af störfum. Í Svíþjóð hefur umræða um að koma á slík- um reglum átt sér stað ítrekað síð- astliðin ár. Samkvæmt rannsókn blaðsins Aftonbladet frá árinu 2013 verða 37 prósent fyrrverandi þing- manna í Svíþjóð lobbíistar eftir að þingmannsferli þeirra lýkur. Ástæð- an fyrir því að hagsmunaöfl vilja ráða fyrrverandi stjórnmálamenn í vinnu hjá sér eru meðal annars pólitísk tengsl þeirra sem talið er að geti nýst einkaaðilunum. Sænska ríkisstjórnin lætur nú vinna úttekt á því hvort setja skuli reglur um að stjórnmálamenn megi ekki fá sér aðra vinnu í tiltekinn tíma eftir að þeir hætta á þingi. Niðurstöðurnar verða kynntar í lok ársins. Sambærileg umræða hefur hins vegar ekki verið mikil á Íslandi. Katrín Júlíusdóttir segir aðspurð að líkurnar á hagsmunaárekstrum hjá henni í nýja starfinu séu engar. Hún hafi ekki komið að neinni nefnd á Alþingi sem fjallaði um fjármálamarkaðinn á Íslandi á síð- asta kjörtímabili. „Það má segja að ég sé búin að vera í frystingu í fjög- ur ár frá þessum málaflokki,“ segir Katrín um bankamálin en hún var fjármálaráðherra í átta mánuði á ár- unum 2012 til 2013. Sigurður Viðarsson, forstjóri Tryggingamiðstöðvarinnar og varaformaður stjórnar SFF, seg- ir að stjórn samtakanna hafi talið Katrínu hæfasta umsækjandann. „Katrín býr yfir mikilli þekkingu bæði úr námi og starfi. Hún hefur lokið MBA námi og starfaði meðal annars sem fjármálaráðherra og býr þar af leiðandi yfir mikill þekk- ingu á starfsemi fjármálafyrirtækja. Við erum sífellt að reyna að starfa í sátt við stjórnmál og samfélag og við teljum að Katrín sé manneskja sem geti leitt slíkt starf.“ Talsverð umræða hefur verið um það á Norð- urlöndunum um hvort og hvernig eigi að koma í veg fyrir hagsmunaá- rekstra hjá fyrrverandi þingmönnum þegar þeir hætta þingmennsku. Í Danmörku, Noregi og Finnlandi gilda reglur um það hversu langur tími þarf að líða áður en ráðherra getur ráðið sig í vinnu til annars aðila eftir að hann lætur af störfum. Katrín stuðli að sátt við samfélag og stjórnmál Katrín Júlíusdóttir var ráðin til framkvæmdastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja. „Það má segja að ég sé búin að vera í frystingu í fjögur ár frá þessum málaflokki,“ segir Katrín um bankamálin Samkomulag var komið um kvótann Stjórnmál Niðurstaða í sjávar- útvegsmálum, sem er blanda af markaðslausn uppboðsleiðarinnar og núverandi kvótakerfi, lá fyrir þegar viðræðum var slitið milli fimm flokkanna. „Við reyndum að mætast með þau sjónarmið sem voru uppi innan nefndarinnar um að horfa til mark- aðslegra og samfélagslegra sjónar- miða í sjávarútvegi. Afurð frá okkur lá fyrir eftir fund okkar í gær [þriðju- dag] og var send til formannanna,“ segir Lilja Rafney Magnúsdóttir, þing- maður Vinstri grænna og meðlimur í umræðuhópi um sjávarútvegsmál hjá stjórnmálaflokkanna fimm. Lilja Rafney vill ekki fara nákvæm- lega út í hvað felst í niðurstöðum um- ræðuhópsins en hún segir að reynt hafi verið brúa bilið á milli ólíkra sjónarmiða en ljóst er að tillagan fel- ur í sér einhverja útfærslu á uppboði einhvers hluta aflaheimilda en það er eitt helsta baráttumál Viðreisnar. „Markaðslausnir og samfélagslegar lausnir voru spyrtar saman en það var reynt að mætast þarna á vegasalti og við lögðum niðurstöðuna á borð formannanna.“ Formenn flokkanna fimm funduðu í gær, miðvikudag, og sagði Benedikt Jóhannesson, formaður Viðreisnar, fyrir þann fund að erfiðlega gæti gengið að „samræma öll sjónarmið.“ Eftir fundinn var viðræðum slitið. Eins og komið hefur fram voru tveir af helstu ásteytingarsteinun- um í stjórnarmyndunarviðræðum flokkanna fimm sjávarútvegsmál – sem lausn var í sjónmáli samkvæmt því sem Lilja Rafney segir – og svo efnahagsmál en Vinstri græn, Píratar og Samfylkingin vildu fara í skatta- hækkanir með upptöku eigna – og hátekjuskatts, meðan andstaða er við slíkar hugmyndir hjá Viðreisn og Bjartri framtíð. Líklegt má telja að erfitt hafi verið fyrir Viðreisn og Bjarta framtíð að samþykkja skatta- hækkanir þar sem flokkarnir tveir voru meðal annars búnir að komast að samkomulagi við Sjálfstæðisflokk- inn í skattamálum áður en slitnaði upp úr stjórnarmyndunarviðræðum þessara þriggja flokka. Oddný Harðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, vildi síðdegis á miðvikudag lítið segja um viðræður um efnahagsmál á milli flokkanna fimm en hún átti sæti í þeim viðræðu- hópi. „Viðræðurnar gengu ágætlega. Nei, það var ekki komin nein niður- staða.“| ifv Lilja Rafney Magnúsdóttir segir samkomulagi sambland markaðs- og félagslausna.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.