Fréttatíminn - 24.11.2016, Page 28
28 | FRÉTTATÍMINN | Fimmtudagur 24. nóvember 2016
Túlkar á pólsku
úti á götu
Oliwia Czerwonka er 14 ára unglings
stelpa sem búsett er í Breiðholti. Hún
flutti hingað til lands fimm ára gömul,
talar bæði reiprennandi íslensku og
pólsku og segist ekki muna eftir sér
öðruvísi. Hún ræðir við Fréttatímann
um hvernig það er að vera tvítyngd
og hvort hún alist upp við aðra siði
og venjur en foreldrar hennar gerðu
í Póllandi.
Birna Guðmundsdóttir
birna@frettatiminn.is
Ég fæddist í Póllandi og flutti hingað til lands 5 ára með foreldrum mínum sem bæði eru pólsk. Mamma vinnur
í Húsasmiðjunni og pabbi hjá
Samskip. Ég man eiginlega ekk-
ert eftir að kunna ekki íslensku.
Það sem ég man er bara hvað
það var erfitt að koma hingað til
lands fyrst, verandi ekki nema
fimm ára.“
Hún segist tala íslensku í
skólanum en pólsku heima við.
„Ég tala mest við vini mína á
íslensku en pólsku við þá sem
eru pólskir. Vinir mínir eru bæði
íslenskir og pólskir. Mamma og
pabbi tala bara smá íslensku
en skilja eiginlega allt. Ég hef
ekki þurft að hjálpa foreldrum
mínum með tungumálið. Aldrei
þurft að þýða heimilisbókhald
eða læknisheimsóknir. Það er
frekar í skólanum. Margir pólsk-
ir krakkar eiga erfitt með að
skilja íslensku eða tala, sérstak-
lega þeir sem eru nýir, og þá
bregð ég mér oft í hlutverk túlks-
ins. Líka þegar ég er úti á götu,
þá túlka ég á pólsku og íslensku
fyrir þá sem eru eitthvað týndir.
Reyni að hjálpa.“
Ég er mjög þakklát fyrir að
kunna tvö tungumál.
Oliwia segist ekki langa að búa
í Póllandi heldur annars staðar.
Fjölskyldan hennar býr öll þar
í landi og hún reynir að heim-
sækja þau einu sinni á ári með
foreldrum sínum. „Ég myndi
segja að Pólland og Ísland séu
ekki svo ósvipuð lönd. Kannski
er ástæðan sú að ég hef hoppað
dálítið inn í íslenska menningu
og sé ekki muninn. Það eina er
kannski að það er allt strangara
í Póllandi. Maður á alltaf að þéra
eldra fólk og segja herra eða frú.
Sýna virðingu. Pólskir krakk-
ar eru kurteisari. Ég gleymi
stundum að vera kurteis við
eldra fólk.“
Oliwia hefur búið á Íslandi frá fimm ára aldri og talar reiprennandi íslensku. Mynd | Rut
Ég ákvað að fara í hárgreiðslunám
aðallega því það liggur vel fyrir
mér. Afi minn á rakarastofu og
mamma mín er hárgreiðslukona,“
segir Elísabet Rut Diego, nemi á
þriðja ári í hárgreiðsluiðn, sem nú
er í vinnustaðanámi. Hún hefur
nóg að gera þó hún sé enn ekki út-
skrifuð en margir dagar eru upp-
bókaðir hjá henni.
„Ég ætlaði aldrei að verða hár-
greiðslukona, vildi gera eitthvað
öðruvísi en afi og amma. Byrjaði
á fataiðnbraut í Tækniskólanum
en fór svo yfir á þessa braut fyrir
einhverjum þremur árum. Ég vissi
ekkert hvað mig langaði að gera en
var bara: Hey! Ég útskrifast bara
með sveinspróf í hárgreiðslu enda
alltaf mjög sniðugt að vera með
iðnnám. Svo get ég líka unnið hvar
sem ég vill í útlöndum. Allir til í að
taka mig inn því það þarf að klippa
hár alls staðar í heiminum.“
Aðspurð segir hún kennsl-
una sem hún fær í vinnustaða-
námi henta sér betur en að sitja í
skólastofu. „Ég er með brjálaðan
athyglisbrest. Ég get alveg lært
en það hentar mér betur að gera
eitthvað svona í höndunum. Það
liggur bæði vel fyrir mér og mér
finnst það líka ógeðslega gaman.
Svo er þetta líka bara svo skapandi
ef maður vill. Ég fæ tækifæri til að
vera listræn, skapa mér nafn þó ég
sé enn að læra.“
Hún segir ekki hlaupið að því
að klára nám í hárgreiðsluiðn.
„Það fara rosalega margir í þetta
nám, byrja í skólanum en komast
svo ekki endilega áfram því þeir
fá ekki samning á stofu. Það eru
alls ekki margir að taka inn nema
í dag þannig af öllum sem byrja í
náminu eru ekki allir sem útskrif-
ast. Svo er annað í þessu og það er
að fólk ber ákveðna virðingu fyrir
þessu námi. Það eru heil fjögur
ár og fólk áttar sig á því að þetta
er erfitt starf. Ég gæti annars ekki
verið heppnari. Alsæl með stofuna
sem ég vinn á,“ segir Elísabet.
Af lærlingnum Það þarf að klippa hár alls staðar í heiminum
Bæði mamma og afi Elísabetar eru hárgreiðslufólk. Mynd | Hari
Allt að gerast
í Hlíðarfjalli
Skíða- og brettafólk er í starthol-
unum. Snjórinn er vinur þess. Út-
litið er bjart í Hlíðarfjalli fyrir
ofan Akureyri en það mætti vera
kaldara.
Akureyri hefur fengið ríflegan
skammt af snjó síðustu daga og það
líður þess vegna að opnun í Hlíðar-
fjalli. Guðmundur Karl Jónsson, for-
stöðumaður í fjallinu, er kátur og
bjartsýnn þessa dagana.
„Við í Hlíðarfjalli erum bjart-
sýn að eðlisfari,“ segir Guðmund-
ur Karl. „Við erum að gæla við að
okkur takist að opna eftir viku,
fimmtudaginn 1. desember. Það er
þjóðleg og góð dagsetning. Til þess
að það gangi þarf ýmislegt að falla
með okkur. Það er spáð kulda eftir
helgina sem við erum dálítið spennt
fyrir. Snjóframleiðsluvélarnar hafa
gengið hjá okkur í vikunni en núna
vorum við að slökkva á þeim. Þær
þurfa um 5-6 stiga frost til að virka
og einmitt núna er aðeins of hlýtt.“
Guðmundur segir Akureyringa
misspennta yfir snjónum. „Þeir
sem ekki eru mikið fyrir snjó horfa
stundum undarlega á mig og segja:
„Jæja, þetta vildir þú.“ Aðrir, sem
bíða eftir að fara á skíði, klappa mér
á bakið og eru kátir yfir öllum snjó
sem fellur. Tilhlökkunin yfir opnun
er alltaf mikil meðal skíðafólks.“ | gt
Bráðum fyllast brekkurnar í Hlíðar-
fjalli af skíðafólki af öllum stærðum.
Ég hef ekki þurft að
hjálpa foreldrum mín-
um með tungumálið.
Aldrei þurft að þýða
heimilisbókhald eða
læknisheimsóknir. Það
er frekar í skólan-
um. Margir pólskir
krakkar eiga erfitt
með að skilja íslensku
eða tala, sérstaklega
þeir sem eru nýir, og
þá bregð ég mér oft í
hlutverk túlksins.
7.990 kr.
Vesturgata 3B | 101 Reykjavík | www.tapas.isAðeins framreitt fyrir allt borðið
Hefst með Faustino freyðivíni í fordrykk
7 gómsætir jólatapas fylgja síðan í kjölfarið
• Hvítlauksbakaðir humarhalar
• Tvíreykt hangikjötstartar með balsamik vinaigrette
• Rauðrófu- og piparrótargrafinn lax
• Spænsk marineruð síld með koríander og mangó
• Kalkúnabringa með spænskri „stuffing“ og calvados villisveppasósu
• Steiktur saltfiskur með sætri kartöflumús
•Hægelduð grísasíða með heimatilbúnu rauðkáli, fíkjum og fjallagrasasósu
Og í lokin tveir ljúfir eftirréttir
• Rise a la mande með berjasaft
• Ekta súkkulaðiterta