Fréttatíminn - 24.11.2016, Qupperneq 30
30 | FRÉTTATÍMINN | Fimmtudagur 24. nóvember 2016
Allir virðast vera með flensu
þessa dagana enda flensa óhjá-
kvæmilegur hluti vetrarins. Til
að fyrirbyggja flensu er gott að
þvo sér reglulega um hendur,
drekka nóg vatn og stunda
hreyfingu reglulega. Fyrir þá
sem þegar eru komnir með
flensu eru eftirfarandi atriði
góð til að draga úr veikindun-
um og hjálpa við ná heilsunni
á ný.
Drekka cayennepiparte,
blanda cayennepipar út í
heitt vatn.
Ólífulaufþykkni. Eða pens-
ím nútímans. Það má taka
til að fyrirbyggja kvef og
flensur, þykknið er líka
virkt gegn streptókokk-
um. Virkni ólífulaufs-
þykknis er mjög góð gegn
síþreytu og skertri starf-
semi ónæmiskerfisins.
Hvítlaukur, hann
styrkir ónæm-
iskerfið.
Margt bendir
til að hann
hafi einnig
vírusdrepandi
eiginleika og er
því tilvalinn í
baráttunni gegn
kvefi og inflúensu.
Virkur gegn eyrna-
bólgum.
Drekka engiferte, við hósta og
kvefi á byrjunarstigi. Engifer
er mjög hitagefandi, setur hita
í kroppinn með því t.d. að rífa
niður ferska rót út í súpurnar og
grænmetisréttina. Einnig má rífa
niður engiferrót í fótabaðið fyrir
kalda fætur.
Góður svefn og slökun eru
nauðsyn fyrir góða heilsu. Þegar
okkur líður vel og erum í góðu
jafnvægi er líklegra að við
stöndum af okkur flensur,
kvef og umgangspestir.
Borða auðmeltanlegan
mat, eins og súpur. Ekki
brasaðan, steiktan mat
sem að líkaminn þarf að
nota mikla orku við að
melta.
Sólhattur, hann hef-
ur reynst prýðilega
sem fyrirbyggj-
andi gegn kvefi
og flensum.
Mikill kostur
við sólhatt er
að auk þess
að styrkja
ónæm-
iskerfið,
vinnur hann
á sýklum, án
þess að skaða
gerlagróður
meltingarfær-
anna.
Góð ráð gegn
blessaðri flensunni
Nenna ekki Línu
Langsokk enn og aftur
Reykjavík Dans Festival heldur hátíð sem tileinkuð er unglingnum.
Birna Guðmundsdóttir
birna@frettatiminn.is
Það að vera unglingsstelpa er skemmtilegt, skrítið og stundum erfitt,“ segir Valgerður Birna Jónsdótt-ir sautján ára sem tekur
þátt í uppfærslu á verkinu Grrrrls
á Únglingnum í Reykjavík Dance
Festival. Um er að ræða þriggja
daga dans- og sviðslistahátíð þar
sem sýnd verða dansverk, aðallega
fyrir unglinga. Ásrún Magnúsdótt-
ir er höfundur verksins og einn
skipuleggjenda hátíðarinnar.
„Það er til rosa mikið af efni fyr-
ir börn og fullorðna en ekki ung-
linga. Þeir nenna ekki að sjá enn
eina uppsetninguna á Línu Lang-
sokk. Ég og listrænir stjórnend-
ur Reykjavík Dance Festival, þau
Erna og Valdimar, höfum gengið
með þá hugmynd í kollinum að
gera hátíð tileinkaða unglingum
en það er ansi vítt hugtak. Krakka
á aldrinum 12-20 ára. Og nú er
komið að því.“
„Bæði er verkunum ætlað að
höfða til unglinga en svo eru þeir
líka þátttakendur í verkunum.
Annars vegar í Grrrrls, en 15 stelp-
ur taka þátt í þeirri uppsetningu,
og síðan eru rúmlega 15 krakkar í
sýningunni Dare Night.“
„Það er svona femínísk flóð-
bylgja á Íslandi sem hefur verið
í gangi og mig langaði að kanna
hvað yngri stelpur væru að pæla.
Þeirra pælingar snúast um að
taka pláss, láta ekkert stoppa sig,
eru mjög meðvitaðar um að vera
ungar konur og standa saman í
því,“ segir Ásrún.
Valgerður tekur til máls. „Ég
sá auglýsingu frá Ásrúnu um að
hún væri að leita eftir stelpum í
verkið og sló til. Ég æfi ekkert dans
en gerði það einu sinni. Flestar
stelpurnar í hópnum æfa þó
djassballet og eru 14 og 15 ára, við
erum tvær í hópnum sem erum
í menntaskóla,“ segir Valgerður
Birna.
„Grrrrls fjallar um það að vera
unglingsstelpa, hvernig stelpur
standa saman og fyrir hvað þær
standa. Ein fyrir allar og allar fyrir
eina. Útgangspunkturinn er að ég
hef verið unglingsstelpa og veit
hvernig það er, þær eru unglings-
stelpur og vita hvernig það er en
enginn annar, sem ekki hefur ver-
ið það, veit hvað þetta þýðir,“ segir
Ásrún.
„Í verkinu byrjum við að kynna
okkur, sem gefur dálítið sterk
skilaboð, því við erum einstak-
lingar hver og ein – að dansa. Farið
er með kröftuga ræðu þar sem ein
segir: Við ætlum að dansa fyrir
allar stelpur sem hafa verið ung-
lingsstelpur, þær sem eiga það eft-
ir, þær sem verða það ekki og svo
framvegis,“ segir Valgerður.
„Verkið skiptist í sjö senur. Í
öðru atriði löbbum við fram og
leggjumst niður, erum latar og
höfum það kósí sem er lýsandi fyr-
ir raunveruleika unglingsins. Í enn
öðru atriði erum við brjálaðar því
allir hafa átt sín brjáluðu móment
sem unglingar. Svo er önnur sena
þar sem við tæklum samfélags-
miðla. Hoppum við lag sem heit-
ir Internet. Aðstæður truflandi
þannig maður verður stöðugt fyrir
áreiti, sem er lýsandi fyrir samfé-
lagsmiðlana.“
„Ég sá eitthvað rómantískt við
það að gera dansverk um ung-
lingsárin. Mig langaði ekki bara að
fjalla um mig í því samhengi held-
ur tala við þær sem eru unglingar
í dag. Fá þær til að svara þessum
spurningum, hvað það er að vera
unglingsstelpa bæði hér, hvað mig
varðar, þær og allar aðrar ung-
lingsstelpur, í Bandaríkjunum þess
vegna,“ segir Ásrún.
„Maður upplifir í raun allan til-
finningaskalann þegar maður er
unglingsstelpa. Það er erfitt að lýsa
því í orðum. Því er best lýst í þessu
verki,“ segir Valgerður.
Þess má geta að fyrir hvern
miða fyrir fullorðna fá fimm ung-
lingar frítt inn á sýningu.
Grrrrls fjallar um það
að vera unglingsstelpa,
hvernig stelpur standa
saman og fyrir hvað
þær standa.
Ásrún Magnúsdóttir
Hryllingur á Akranesi
Lovísa Lára Halldórsdóttir heldur fyrstu hryllings-
myndahátíð Íslands um helgina. Lovísa ólst upp við
hryllingsmyndir og segir Akranes fullkomna staðsetn-
ingu fyrir hátíðna, með sitt gamla bíóhús á drungaleg-
um stað við sjóinn.
„Kvikmyndaáhugi minn vaknaði með hryllings-
myndum því ég á eldri systur sem var alltaf að láta
okkur yngri systkinin horfa á hryllingsmyndir. Þegar
hún passaði okkur horfðum við bara á hryllingsmynd-
ir og ég held að við höfuð leigt allar þær sem voru í
boði á vidjóleigunni,“ segir Lovísa Lára Halldórsdótt-
ir, kvikmyndagerðakona og skipuleggjandi Hryllings-
myndahátíðarinnar Frostbiter sem haldin verður í
fyrsta sinn um helgina.
„Eftir kvikmyndanámið og að hafa unnið við kvik-
myndagerð var ég dálítið smeyk við að fara út í hryll-
ingsmyndirnar sjálf,“ segir Lovísa sem komst yfir
hræðsluna og hefur nú gert þrjár hryllingsstuttmyndir
sem hafa ferðast um hryllingshátíðir erlendis. „Mér
fannst aldrei vera vettvangur til að sýna þær hér og
ég veit að aðrir eru í sömu sporum, svo við ákváðum
að stofna bara okkar eigin hátíð. Við fengum sendar
um 200 myndir að utan að velja úr og svo verða líka
íslenskar myndir.“
Frostbiter verður haldin á Akranesi og segir Lovísa
það vera mjög rökréttan stað fyrir hryllingshátíð.
„Maðurinn minn er frá Akranesi og okkur datt þessi
staðsetning strax í hug. Það er rosalega flott gamalt
bíóhús þarna sem stendur við sjóinn á stað sem getur
orðið dálítið drungalegur, með öldum og „spúkí“ vita í
bakgrunninn. Það er ekki í leiðinni fyrir neinn að fara
á Akranes svo nú er komin góð ástæða til að kíkja í
þennan frábæra bæ.“ | hh
Lovísa valdi fimm bestu
hryllingsmyndir allra tíma:
1. Don’t look now eftir Nicolas Roeg
2. The Brood eftir David Cronenberg
3. Rosemary’s baby eftir Roman Polanski
4. Evil Dead 2 eftir Sam Raimi
5. The Shining eftir Stanley Kubrick
Ásrún segir mikilvægt að halda hátíð
fyrir unglinga líka.
Valgerður Birna dansar í verkinu Grrrrls sem sýnt verður um helgina. Myndir | Hari
9
dagar