Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 24.11.2016, Blaðsíða 32

Fréttatíminn - 24.11.2016, Blaðsíða 32
Ódýrt Þú átt örugglega nóg af grænmeti í ísskápnum sem þú veist ekkert hvað skal gera við. Hvernig væri að henda því á pönnu, pipra og salta, steikja vel og lengi og hella síðan skál af eggjum yfir, bíða í nokkrar mínútur og viti menn: Kominn með afbragðsgóða ommilettu og einfaldan kvöldmat. Árstíðarbundið Tómat-karríkjúkling- ur. Nú er tími tómatanna svo það er um að gera að henda í einn tómatakarrírétt. Tómatar, þrjár teskeiðar karrí, pipar og chilli, kjúklingabitar, rjómi og saxað- ur kóríander. Hrísgrjón með. Nammi namm. Vegan Klassíska Mexíkósúpan klikkar sjald- an og vel er hægt að hafa hana vegan. Kjúklingnum sleppt og mjólkurvörunum. Auðvelt að nálgast uppskriftir um vegan- mexíkósúpur. Líka hægt að bjóða kjötætunum í fjöl- skyldunni með því allir elska mexíkóskan mat. Muna flögurnar! GOTT Í MATINN Tölum um… Westworld Herdís Ásgeirsdóttir Geðveikir þættir. Ég er yfirleitt ekki hrifin af vestrum en hvernig söguþræðirnir eru fléttaðir inn í stóru myndina, skemmti- garðinn Westworld, heldur manni sannar- lega við efnið. Góðir leikarar, áhuga- verðar pælingar, vélmenni sem líkj- ast svo fólki að þú veist ekki hvað snýr upp og hvað niður. Gestir Westworld mega síðan gera íbúum hans hvað sem þeim sýnist. Einhvers konar „next level“ tölvuleikur þar sem allt má og þitt sanna sjálf kemur loks í ljós. Mæli með! Stefán Halldórsson Upphaflega kvik- myndin er vel geymd í nostalgí- unni og var ég því hikandi við að gefa þáttunum séns. Þær áhyggjur hurfu fljótt og eftir sitja fantagóðir þættir sem krefjast athygli og launa hana með skarpri persónu- sköpun, þéttri fléttu og óaðfinnan- legri tæknilegri vinnslu. Það vottar ekki fyrir feilnótu í leikarahópnum, valin kona og maður í hverri rullu og sérstaklega er hressandi að sjá Sir Anthony Hopkins í rullu sem er hon- um verðug. Björn Grétar Baldursson Ég hef fylgst með Westworld frá því fyrsti þáttur kom út. Skemmtileg blanda framtíðar- tækni til þess að skapa heim sem er löngu liðinn. Það sem kemur á óvart er að maður fylgir ekki einni sögu eftir heldur mörgum. Það er síður en svo ruglandi og gaman að sjá hvernig sögurnar tvinnast rólega saman. Á sama tíma koma nýja upp- lýsingar í ljós svo maður getur varla beðið eftir næsta þætti. Mikil vinna er lögð í söguna og tölvubrellur. Leik- araval ekki af síðri endanum eins og Anhtony Hopkins og ný andlit sem meiriháttar er að fylgjast með. Fæst í apótekum og heilsubúðum P R E N T U N .IS Virkar lausnir frá OptiBac „One Week Flat“ Minnkar þembu og vindgang
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.