Fréttatíminn

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttatíminn - 24.11.2016, Qupperneq 46

Fréttatíminn - 24.11.2016, Qupperneq 46
14 | FRÉTTATÍMINN | Fimmtudagur 24. nóvember 2016Jólablað 2016 Jólakortamynd fjölskyldunnar frá því í fyrra. Katrín, ásamt eiginmanni sínum Tjörva, og börnum þeirra, Eddu Brynju, Kára Karli og Önju Valborgu. Hugurinn leitar heim Fjölmargir Íslendingar eru búsettir erlendis. Sumir hverjir koma til Íslands til að fagna jólunum, en aðrir leita leiða til að halda íslensk jól í útlöndum og þá stundum í bland við siði heimamanna. Börn sem setja skóinn út í glugga fá íslensku jólasveinana í heimsókn, jafnvel þó þeir þurfi að ganga yfir sjó og land. Hjálpar að geta stillt á RÚV Katrín Sigurðardóttir hefur búið í 17 ár í Bandaríkjunum ásamt fjölskyldu, rétt utan við Minneapolis í Minnesota fylki. Katrín og fjölskylda hennar hafa haldið í þanni íslenska sið að fagna jólunum á aðfangadag, reyndar með smá fráviki. „Við breyttum kvöld- matnum í hádegismat því maðurinn minn, Tjörvi, var á vakt frá klukkan sex eitt aðfangadagskvöld. Það virk- aði svo vel að við héldum því áfram. Krakkarnir eru ekki yfirspenntir þannig að við náum að sitja lengur við matarborðið og kvöldsvæfir fjöl- skyldumeðlimir njóta sín líka betur. Auk þess getum við hringt í ættingja á Íslandi og þakkað fyrir okkur áður en nóttin skellur á þar. Við hlustum alltaf á messuna á netinu yfir matn- um og felum möndlu í eftirmatnum. Það er engin föst regla á því hvað er í matinn, nema ég verð að gera einn ákveðinn sætan kartöflurétt ef ég vil halda öllum góðum. Við höfum verið grænmetisætur síðustu 10 ár svo við erum ennþá að velja „okk- ar“ jólamat,“ segir Katrín. Bandarískar jólahefðir hafa að sjálfsögðu ratað inn til fjölskyldunn- ar sem setur meðal annars upp tréð í kringum þakkargjörðarhátíðina og sokkar eru hengdir á arinhill- una. Hinsvegar setja börnin skó- inn út í glugga 11. desember og bíða spennt eftir íslensku jólasveinunum víðförlu. „Kvenfélagið Hekla sér um jóla- Áslaug Hersteinsdóttir Höltta hefur búið í Helsinki í sautján ár. Hún blandar saman íslensk- um og finnskum jólum sem eru að mörgu leyti svipuð, en sakn- ar áramótagleðinnar á Íslandi sem hún segir einstaka. „Á aðfangadag erum við með fjöl- skyldu mannsins míns á lítilli eyju í nokkra daga. Þar hjálpast allir að við undirbúninginn, aðallega fyr- ir borðhaldið. Aðalrétturinn á að- fangadag er kinku sem er skinka og innbakað grænmetismauk sem er kallað laatikko. Jólagjaf- irnar eru gefnar af jólabokka eða joulupukki og eru þær ekkert endi- lega frá mömmu og pabba eða afa og ömmu,“ segir Áslaug. Börnin hennar fá líka litlar gjafir frá ís- lensku jólasveinunum sem koma og gefa þeim í skóinn og er ein þeirra hefða sem hafa fylgt Áslaugu frá Ís- landi. Auk þess fær hún sendingu af íslensku jólaöli og mat um hver jól. „Finnarnir í minni fjölskyldu eru mjög hrifnir af jólaölinu og íslenska lambinu og fiskinum. En það tíðkast að borða fisk á jólunum hér og þykir herramannsmatur.“ „Ég hef algjörlega tekið finnsku jólin í sátt með þeirri blöndu af íslenskum mat og drykk sem ég taldi upp. Rólegheitin sem fylgja því að jólafriði sé lýst yfir í beinni útsendingu frá Turku á hádegi og jólasaunan sem fylgir í kjölfarið eru dásamleg fyrirbæri. Ég sakna hinsvegar hræðilega mikið ára- mótanna á Íslandi og allra þeirra hefða sem þeim fylgja, en það vant- ar alveg í Finnlandi. Í fyrsta lagi er ekki hefð fyrir því að vera í faðmi fjölskyldunnar, og það eru engar brennur og ekki mikið lagt upp úr matnum. Það eina skemmtilega við áramótin í Finnlandi er þegar skeif- ur úr tini eru bræddar í sjóðandi heitu vatni og síðan spáð fyrir um komandi ár út frá lögun þeirra.“ Saknar áramóta á Íslandi Áslaug Hersteinsdóttir Hötta segir íslenska jólaölið slá í gegn hjá Finnun- um í sinni fjölskyldu. Ofnbakað græn- meti. Á aðfangadag eru ofnbakaðir grænmetisréttir og skinka á borðum í Finnlandi. Svala Björgvinsdóttir hefur búið í rúm 7 ár í Los Angel- es ásamt eiginmanni sínum, Einari Egilssyni. „Ef ég er í L.A. yfir jólin þá hef ég haldið upp á þau með Einari og vin- um okkar þar í borg. Bróðir minn var einu sinni hjá okkur um jólin og þá héldum við upp á jólin með honum en höfum annars verið með nánum vinum okkar hérna í L.A. yfir aðfangadag og eldað saman. Við drekkum Malt og Appelsín og borðum laufabrauð. Það er hægt að kaupa það hérna og svo er vinkona mín, hún Anita Briem, svaka flink að baka þau. Og auðvitað hlustum bara á íslensk jólalög. Fyrir mér eru jólin tími til að borða rosalega mikið og vera í þægi- legum fötum í kósí stemningu með fjölskyldu eða góðum vinum og horfa á bíómyndir langt fram á nótt og spila skemmtileg spil og bara slappa af,“ segir Svala og bætir svo við: „Og sofa og lesa góðar bækur.“ Frá því hún flutti til Bandaríkj- anna hefur hún oftast haldið jólin í L.A. „Mér finnst gott að halda jól hérna, það er allt svo afslappað og allstaðar opið. Hér búa auðvitað svo margir og trúarbrögðin eru ólík og alls ekki allir sem halda upp á jólin. Veðrið er gott og ég finn ekki fyrir neinu jólastressi.“ Hún segist helst sakna fjöl- skyldunnar á Íslandi um jólin og matarins sem pabbi hennar eldar. „Hann er geggjaður kokkur og út- býr svakalegar veislur á aðfangdag,“ segir Svala. „Ég sakna líka snjósins. Sérstaklega yfir jólin, svo má hann hverfa,“ segir Svala og hlær. Hún segist alltaf hugsa til Íslands á jólunum og þá mest helst til fjöl- skyldu og náinna vina. „Það vakna alltaf yndislegar minningar um jólin með fjölskyldunni minn. Snjór og myrkur en samt allt í jólaljósum allstaðar og fólk að kaupa jólagjafir í slyddu og snjó. Pabbi að elda kalkún og fyllingu um hádegi á aðfangadag og mamma að gera allt fínt og klára að pakka inn gjöfum. Svo er það minningin að keyra út jólagjafirn- ar rétt fyrir hádegi á aðfangadegin- um. Svo man ég alltaf eftir því að ég og Krummi bróðir reyndum alltaf að halda okkur vakandi þegar við svo lítil á Þorláksmessu til að geta njósnað um mömmu og pabba vera að pakka inn gjöfunum okkar. Það var svo spennandi og maður gat ekki beðið eftir að rífa utan af öllum pökkunum og sjá hvað væri í þeim.“ Kaupir laufabrauðið í L.A. Svala nær að skapa jólastemningu heima fyrir þó hið norræna jólaveður sé víðsfjarri. barnaball á hverju ári hérna í Minneapolis og þar mætum við í okkar fínasta pússi og dönsum í kringum tréð. Mér finnst mikil- vægt að allir fái bók og jóladag- ur er alger hvíldardagur þar sem markmiðið er að vera á náttfötun- um, borða súkkulaði og afganga af jólamatnum. Sankti Kláus mæt- ir svo með smá reyting af pökkum á jóladagsmorgun og börnin skilja eftir möndlumjólk og jólakökur sem hann gæðir sér á þegar hann stoppar.“ Söknuðurinn til Íslands gerir þó alltaf vart við sig og hugurinn leit- ar heim. „Auðvitað leitar hugurinn mest heim til fólksins okkar um hátíðarn- ar. Ég sakna mest tímans með stór- fjölskyldunni; að hitta alla í jóla- boði og drekka malt og appelsín. Þar að auki er ég alin upp í kór og sakna þess að heyra jólasálmana á íslensku. Á síðasta jólaballi tók- um við okkur saman nokkur og sungum Heims um ból í kringum píanóið. Það fylgir því alltaf smá gæsahúð. Það hjálpar að geta stillt á RÚV og hlustað á jólakveðjurnar og yndislegu lesnu auglýsingarnar. Svo sakna ég laufabrauðs og þess að ganga niður Laugaveginn á Þor- láksmessu. Við erum svo heppin að við höfum oftast gesti frá Íslandi hjá okkur um jólin og þeir hafa komið með þetta nauðsynlegasta. Í gegnum ári höfum við fengið Ora grænar baunir og rauðkál, Malt og Appelsín, mölbrotið laufabrauð og auðvitað Nóa konfekt.“ www.heklaislandi.is - S: 6993366 Íslensk hönnun - fyrir þig -
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.