Fréttatíminn - 24.11.2016, Síða 52
20 | FRÉTTATÍMINN | Fimmtudagur 24. nóvember 2016Jólablað 2016
Bráðnar í munni
Snæfinnur sykurpúði
Vel klæddir. Kökubitar eru notaðir
sem hattar og hlaupormar sem treflar.
Með nokkrum sykurpúðum og
ímyndunarafli er hægt að búa til
heila fjöskyldu af snjókörlum, án
þess að verða kalt á puttunum.
Til að búa til snjókarlana þarf
nokkra sykurpúða, krem eða sykur-
blöndu til að líma þá saman og sæl-
gæti, saltstangir og skrautkrem til
að búa til handleggi, andlit, hnappa
og fleira. Hægt er að líma sykurpúða
saman með tilbúnu kökukremi, eða
nota sykurblöndu sem er búin til
með því að hræra saman flórsykri
og vatni. Til að búa til handleggi og
fótleggi er hægt að nota saltstangir,
sælgætismola má nota sem hatt
og skreytingargel í túpu er tilvalið
til að teikna andlit á snjórkarlinn.
Snjókarlarnir eru flottir út í heitan
kakóbolla, eða sem skraut ofan á
köku, ís, eða smákökur. Þeir geta
líka staðið við piparkökuhús eða
sem skraut á jólaborðinu. Svalur. Slakað á í heita bollanum.
Bráðnandi. Einum
sykurpúða er komið
fyrir á smáköku og
skreytt með kremi svo
það líti út fyrir að snjó-
karlinn sé að bráðna.
Með bros á vör. Snjókarlarnir kom vel
út á bollakökum.
Þýska sendiráðið
býður til tónleika í
Vídalínskirkju.
Laugardaginn 10. desember verða
haldnir aðventutónleikar á veg-
um þýska sendiráðsins til styrkt-
ar Slysavarnafélaginu Landsbjörg
en þetta er í þriðja sinn sem sendi-
herra Þýskalands býður til slíkra
tónleika til að styðja við starfsemi
félagsins.
Á tónleikunum kemur fram
sönghópurinn Fjárlaganefnd,
sem er átta manna hópur sem var
stofnaður innan Tónlistarskólans
í Reykjavík fyrir rúmu ári og hef-
ur síðan komið fram á tónleikum
bæði á höfuðborgarsvæðinu og
úti á landi, meðal annars á Óperu-
dögum í Kópavogi, Sumartónleik-
um í Skálholti og í Dómkirkjunni í
Reykjavík. Á efnisskránni eru bæði
sígild og ný aðventutónlist, þar á
meðal verk eftir Martin Luther, J.S.
Bach, Max Reger, Eriks Ešenvalds,
Sigvalda Kaldalóns og Báru Gríms-
dóttur, auk raddsetninga eftir með-
limi hópsins.
Skemmst er að minnast þess
þegar rúmlega fjögur hundruð
björgunarsveitarmenn leituðu
rjúpnaskyttu á Austfjörðum um
síðustu helgi, sem fannst á lífi eftir
einn og hálfan sólarhring í óbyggð-
um. Sýndi það sig þá glögglega hve
starf björgunarsveitanna er mikil-
vægt, en um er að ræða sjálfboða-
vinnu. Björgunarsveitirnar þurfa
því að treysta á styrki frá einstak-
lingum og fyrirtækjum til að halda
starfinu gangandi.
Tónleikarnir fara fram í Vídalíns-
kirkju í Garðabæ kl. 17 og 20. Að-
gangur er ókeypis en tekið er við
frjálsum framlögum.
Aðventutónleikar til
styrktar Landsbjörg
Sönghópur-
inn var
stofnaður
fyrir rúmu
ári og hefur
víða komið
fram. Mynd |
Aviran Avizedeq
Góðar jólagjafahugmyndir
Skjalataska
29.600 kr.
Dömutaska 22.500 kr.
Herrahanskar
10.800 kr.
Dömuhanskar
7.900 kr. Dömutaska 18.500 kr.
Seðlaveski
2.800 - 4.200 kr.
Herrataska
11.800 kr.
Bakpoki 22.900 kr.
Jólatilboðsverð kr. 75.161,-
Með fylgir Vitamix sleif og svunta fylgir á
meðan birgðir endast
Fullt verð kr. 93.952,-
Rauðagerði 25 108 Rvk Sími 440-1800 www.kaelitaekni.is
Vitamix S30
• Tvær könnur fylgja 600 ml
drykkjarkanna og 1,2 l kanna
• Stiglaus hraðastýring ásamt
pulse rofa
• Uppskriftarbók fylgir
Hann er mættur!!!