Fréttatíminn

Issue

Fréttatíminn - 24.11.2016, Page 54

Fréttatíminn - 24.11.2016, Page 54
Jólablað 2016 ÍSLE N SK A /SIA .IS LYF 82248 11/16 Lyfja.is Jólagjafahandbók Lyfju er komin út. Skoðaðu úrval fallegra gjafavara fyrir alla fjölskylduna í næstu verslun Lyfju eða í nýju netversluninni á lyfja.is. Fallegar gjafir fyrir jólin 22 | FRÉTTATÍMINN | Fimmtudagur 24. nóvember 2016 Sólrún Lilja Ragnarsdóttir solrunlilja@frettatiminn.is g hekla mig í gegnum lífið. Ég hekla allt sem gerist í lífi mínu og þetta er í fullu samhengi við það,“ seg- ir Tinna Þórudóttir Þorvaldar sem sendi nýlega frá sér Havana heklbók, sem er ekki bara innblásin af Kúbu heldur eru allar myndirnar í bókinni teknar í Havana. Tinna hefur mikil og sterk tengsl við Kúbu og er sann- færð um að hún hafi búið þar í fyrra lífi. Hún er nýgift kúbverskum eig- inmanni sínum og á tvo drengi sem eiga kúbverskan föður. Eiginmaður- inn er væntanlegur til Íslands fyrir jólin og vonast þau til að geta haldið sín fyrstu jól saman hér heima. Tinna situr að sjálfsögðu og hekl- ar á meðan við tölum saman, enda leggur hún heklunálina sjaldan frá sér. Garndokkur eru í stæðum í hill- unum í stofunni og hvert sem litið er má sá hekluð listaverk eftir hana. Hún heklar sig svo sannarlega í gegn- um lífið. Havana heklbók er þriðja bók Tinnu en þar að auki hefur hún rit- stýrt einni heklbók. Bækurnar hefur hún unnið í samstarfi við þær Ingi- björgu og Lilju Birgisdætur, en sú fyrrnefnda er hönnuðurinn og sú síðarnefnda myndasmiður. „Mig hafði langað til þess, alveg frá því ég gaf út fyrstu bókina, að gera bók þar sem allar myndirnar væru teknar á Kúbu. Þetta var pínu langsóttur draumur því ég vissi að það væri bras að framkvæma þetta,“ segir Tinna sem lét það þó á endan- um ekki stoppa sig. Kom heim með kúbverskan mann Tinna fór fyrst til Kúbu fyrir ellefu árum í skiptinám frá Háskóla Ís- lands. Hana hafði alltaf langað til Suður-Ameríku og hafði lengi ver- ið að leiðinni þangað. Hún bjó í Barcelona um tíma þegar hún var rúmlega tvítug, þar sem hún kynnt- ist Suður-Ameríkubúum og þegar hún kom aftur heim til Íslands ætlaði hún að safna sér fyrir ferð þangað. „Mamma tældi mig á mjög snyrtilegan hátt til að skrá mig í Há- skólann, enda gæti ég þá farið út í skiptinám. Mér fannst það sniðug hugmynd. Þá var nýkominn á skipti- samningur á milli háskólans í Ha- vana og HÍ og prófessorarnir hvöttu mig til að fara þangað og prófa nám- ið, en háskólinn þar þykir mjög góð- ur. Ég var að hugsa um Venesúela en Kúba var líka heillandi. Svo er ég líka vinstrisinnuð og það hafði sín áhrif, en ég hafði gott af því að fara þangað og sjá hvað margt er erfitt. Ég er auð- vitað ekki hlynnt stjórnvöldum þar, því á Kúbu er harðstjórn og komm- únisimi, sem er ekki það sama og sósíalismi.“ Tinna kom heim úr skiptináminu með kúbverskan mann upp á arm- inn og eignuðust þau tvo syni. Þau eru nú skilin en Tinna hefur alltaf haldið tengslunum við Kúbu, bæði vegna sonanna og svo kann hún vel að meta menninguna og litagleðina sem þar er ríkjandi. Mæðginin hafa því reglulega heimsótt landið á síð- ustu árum. Í skiptináminu eignað- ist hún líka marga góða vini og einn þeirra er eiginmaður hennar í dag. Eiginmaður ekki á dagskrá „Bókin mín er tileinkuð honum. Við höfum auðvitað þekkst lengi og vorum fyrst saman fyrir mörgum árum en það tók hann töluverðan tíma að sannfæra mig um þetta allt saman, í ljósi þess að ég hafði áður verið í sambandi með Kúbverja. Ég Með litla Havana í stofunni heima Tinna Þórudóttir Þorvaldar er hrifin af latínó menningu, hún vill geta dansað salsa heima hjá sér og málað stofuveggina bleika. Hún passar ekki vel inn í ákveðna kassa og viðurkennir að það sé stundum erfitt að vera á skjön við það sem eðlilegt þykir. Hún hefur sterk tengsl við Kúbu, er nýgift kúbverskum manni og sendi nýlega frá sér Havana heklbók. ætlaði ekki aftur í þann pakka. Það er alltaf erfitt þegar fólk í sambandi er af sitt hvoru þjóðerni og þetta var svo sannarlega ekki á dagskrá,“ seg- ir Tinna og skellir upp úr. „Hann tók nokkur ár í að sannfæra mig um að gefa sér séns, sem ég gerði á síðasta ári þegar við fluttum út. Ég ákvað að fara og prófa þetta og það var alveg yndislegt,“ segir Tinna en hún flutti til Kúbu með syni sína í byrjun árs 2015 og bjuggu þau í Havana í tæpt ár. „Mig langaði líka að breyta til, og vildi að synir mínir fengju að upp- lifa Kúbu og næðu betri tengingu við ræturnar. Mér líður sjálfri rosalega vel á Kúbu.“ Ákvörðunin um að flytja út átti sér þó ekki langan aðdraganda. „Svona hluti verður maður að gera með áhlaupi og ekki hugsa þá of mikið. Ég ákvað þetta með tveggja mánaða fyrirvara. Ég kláraði mastersritgerðina mína úti þannig ég var á námslánum fyrri hluta ársins og svo var ég bara að hekla. Ég segi ekki að ég hafi séð fyrir okk- ur með heklinu en ég var alveg farin að selja eitthvað, sem er mjög erfitt þarna úti. Strákarnir fóru í skóla og þetta var alveg yndislegur tími,“ segir Tinna dreymin þegar hún rifj- ar þetta upp. „Strákarnir voru rosa hamingjusamir með þetta. Þeim fannst reyndar erfitt í skólanum. Það var svolítið sjokk fyrir þá að Tinna ásamt sonum sínum, Úlfi Emilio og Þorvaldi José, en eiginmaðurinn er væntanlegur til Íslands fyrir jólin. Hún er mjög spennt að halda jólin með honum á Íslandi í fyrsta skipti. Mynd | Hari É

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.