Fréttatíminn

Eksemplar

Fréttatíminn - 24.11.2016, Side 56

Fréttatíminn - 24.11.2016, Side 56
24 | FRÉTTATÍMINN | Fimmtudagur 24. nóvember 2016Jólablað 2016 fara úr Barnaskóla Hjallastefn- unnar yfir í kommúníska skólakerf- ið. En í fríunum þá ultu þeir fram úr rúmunum á morgnana og léku sér í fótbolta úti á götu, berir að ofan í sandölum. Það er mjög öruggt að vera í Havana og gott að búa þar með börn. Þetta er bara svipað og hérna heima, krakkarnir leika sér saman úti í hverfinu og eru mjög frjálsir. Það er svo gaman að prófa að búa úti með börn því maður kemst meira inn í samfélagið. Mað- ur kynnist foreldrum í skólanum og hverfinu. Það er öðruvísi en þegar maður er einn.“ Tældu módel úti á götu Eftir Kúbudvölina í fyrra togaði það enn fastar í Tinnu að gera heklbók með myndum frá Kúbu og hún ákvað að kýla á verkefnið í byrj- un þessa árs. „Lilja, yndislegi ljós- myndarinn minn, var tilbúin að fara í þetta ferðalag til Kúbu með mér. Þetta var þvílíkt ævintýri. Við fórum út með fulla ferðatösku af hekli, en ég fékk margar góðar kon- ur með mér í lið til að hekla, því það var ekki möguleiki á að ég næði því sjálf á þeim tíma sem við höfðum. En allar uppskriftirnar og hönnun- in er mín. Við byrjuðum á því að taka myndir í mínu hverfi og þar sem ég þekkti til, en svo fórum við með ferðatöskuna inn í gömlu Ha- vana og tældum fólk úti á götu til að vera módel. Kúbverjar eru sem betur fer ekki feimnir við mynda- vélar og það voru því mjög fáir sem sögðu nei. Einstaka sinnum þurfti maður að beita smá skjalli. Erfið- ast var að fá fólk í stórar lopapeys- ur í 30 stiga hita,“ segir Tinna og hlær. „Þetta var mjög skemmtilegt en rosa mikil vinna. Við unnum frá morgni til kvölds því það þurfti að ná öllu í hús. Það var ekki hægt að redda neinu seinna. Við pössuðum þó að enda vinnudagana með góð- um kokteilum og dansi, svo þetta var ekkert smá skemmtileg ferð.“ Tinna segir það vissulega pínu fyndið að gefa út bók með svona suð- rænu ívafi í svartasta skammdeginu, en flíkurnar henta engu að síður vel íslensku veðurfari. Þar má til dæmis finna kúbverska lopapeysu. Þá segir hún myndirnar hverja og eina vera algjört listaverk sem sé gaman fyr- ir alla að skoða. Meira að segja þá sem hafa ekki áhuga á hekli. „Það sem ég vildi gera með bókinni var að taka allt þetta sem ég ann svo heitt, öll mynstrin, litina og tónlistina Tinna og Maikel giftu sig á ströndinni í Havana í sumar. og koma þessu frá mér á hekluðu formi.“ Tinna vann mikið af uppskriftun- um þegar hún bjó úti á síðasta ári og sumar hugmyndinar kviknuðu einfaldlega því hana vantaði eitt- hvað. „Það eru þarna margnota hreinsiklútar, en það er ekki hægt að kaupa einnota hreinsiklúta til að taka af farða þarna úti,“ tekur hún sem dæmi. Með óskalista út í búð Hún viðurkennir að það hafi verið ansi erfitt að koma heim í grátt og drungalegt umhverfið á Íslandi fyrir síðustu jól, eftir að hafa eytt heilu ári í litadýrðinni í Havana. „Það er allt svo grátt og hornrétt hérna heima og það er ekkert fólk úti á götu. Það sem er skemmtilegast þarna úti er hvað það er ofgnótt mynstra og lita og öllu blandað saman. Í Havana þykir líka mjög eðlilegt að dansa úti á götu og það ómar tónlist alls stað- ar. Hérna heima er ég litin hornauga ef ég dansa úti á götu, en ég geri það nú samt,“ segir Tinna kímin. „Það var að vísu huggulegt að hafa aftur rennandi vatn, klósettsetur, þvotta- vél og þurrkara,“ bætir hún við. Það var því ekki bara dans á rós- um að búa úti og ýmsar áskoranir sem þurfti að takast á við. „Ástandið á Kúbu erfitt, það er neyð þar og mikill vöruskortur. Maður fer ekki með innkaupalista út í búð, mað- ur fer með óskalista og kaupir það sem er til.“ Tinna segir hins vegar ýmislegt gott líka við kommúníska kerfið. „Við gengum til dæmis inn í skólakerfið og þurftum aldrei að borga krónu fyrir strákana þar. Þá þarf ekkert að borga fyrir þjónustu á barnaspítalanum og lyfin kosta mjög lítið. Við erum vön norrænni velferð en maður þarft alltaf að borga eitt- hvað.“ Brúðkaup á ströndinni Tinna íhugaði það alvarlega að flytja alveg út með drengina, en það sem gerði útslagið varðandi ákvarðana- tökuna var hvernig hún upplifði stemninguna í mannlegum sam- skiptum fólks. Hún vildi ekki ala drengina upp í slíku umhverfi á mótunarárum þeirra. „Það er búin að vera neyð lengi og það hefur áhrif á samfélagið. Það er svo mik- ið frumskógarlögmál í gangi alls staðar, það treystir enginn nein- Tinna segist hekla sig í gegnum lífið og það eru orð að sönnu. Hún heklar hvert listaverkið á fætur öðru og leggur heklunálina sjaldan frá sér. um og það er enginn ánægður fyrir annarra hönd. Þetta er ekki fólkinu að kenna heldur hefur samfélagið þróast svona vegna þess hve neyðin hefur varað lengi. Það getur verið erfitt. Mér fannst það eiginlega erf- iðara heldur en að vera ekki með rennandi vatn. Ég er sjálf mjög trú- gjörn og á erfitt með að ljúga þannig að frumskógarlögmálið hentar mér illa. Ég gæti auðvitað brynjað mig fyrir þessu en ég vil ekki að strák- arnir læri það. Ég vil að þeir haldi áfram að trúa á það góða og að fólk sé almennt gott.“ En Tinna fór aftur með drengina sína út síðasta sumar og áttu þau dá- samlegt sumar í Havana. Rúsínan í pylsuendanum var að sjálfsögðu brúðkaup þeirra hjóna. „Við giftum okkur berfætt á ströndinni undir pálmatrjánum og slógum svo upp svaka strandveislu. Það var alveg yndislegt og mjög rómantískt,“ seg- ir Tinna einlæg með blik í augunum. Það fer ekki á milli mála að hún er ástfangin upp fyrir haus. Væntanlegur fyrir jólin Maikel, maðurinn hennar, er tónlist- armaður og deildu þau vinnustofu úti. Hún segir að tónlistin og heklið passi einstaklega vel saman. „Hann syngur og ég hekla, þetta gæti ekki verið betra. Svo er hann yndislegur við strák- ana og þeir við hann. Það er mikil ást og kærleikur þar. Hann bað mín í vor, þegar ég var úti að mynda fyr- ir bókina, og það var mjög fyndið þegar ég sagði strákunum frá því, þeir voru þvílíkt spenntir, hlupu inn í herbergi, dönsuðu og sungu: við erum að fara að gifta okkur.“ Og nú er hann á leiðinni til Ís- lands. „Við ætlum að taka stikkprufu af Íslandi, prófa að búa hér í tvö ár og ef það gengur ekki þá er Spánn plan B. Fara einhvern milliveg. Ég er búin að vara hann við eins og ég get. Hann hefur ekki komið hingað áður þannig þetta verður sjokk fyrir hann. Hann kemur vonandi heim Tinna og Lilja fóru niður í miðbæ Havana og fengu innfædd til að vera módel fyrir sig. Þessi kona tók vel í bónina og stillti sér upp. Árbæjarsafn · Kistuhyl 4 · 110 Reykjavík · www.borgarsogusafn.is Verið velkomin á jóladagskrá Árbæjarsafns sunnudagana 4. 11. og 18. desember kl. 13–17

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.