Fréttatíminn - 24.11.2016, Page 58
26 | FRÉTTATÍMINN | Fimmtudagur 24. nóvember 2016Jólablað 2016
Hamborgarhryggur er algeng-
asti rétturinn á jólamatseðli
Íslendinga og hann hentar ljóm-
andi vel til að nýta afgangana.
Það þarf ekki alltaf að henda af-
göngunum í örbylgjuna og setja
sósu út á. Jón Þór stingur upp á
veglegri jólasamloku.
„Mikilvægasti hlutur
samlokunnar er auðvitað
brauðið í þeim skilningi að ef
þú klúðrar því á samlokan ekki
séns. Þar sem bakarí eru lok-
uð á hátíðisdögum getur verið
gott að eiga forbakað brauð
í frystinum sem brúka má í
svona æfingar,“ segir Jón Þór.
Hann hvetur líka til þess að
heilsa upp á ostakaupmann-
inn og fá að smakka og velja
jólaostinn. Þá gerir það mikið
fyrir samlokuna að kaupa góð-
ar súrsaðar gúrkur og sósur að
eigin vali. Ekki skemmir fyrir
að hræra sjálf/ur í mæjónesið.
„Þetta er kannski ekki holl-
ur matur. En kjöt og brædd-
ur ostur í brauði er bara alltaf
gott. Og enn betra ef lagður er
metnaður í það,“ segir Jón Þór
Finnbogason.
Samloka með
hamborgarhrygg
Frosið snittubrauð
Þunnt skorinn hamborgarhryggur
Samlokuostur eftir smekk
Pikklaður rauðlaukur
Súrar gúrkur eftir smekk
Sinnep
Mæjónes
• Smyrjið brauðið með mæj-
ónesi og leggið ostsneiðar á sitt
hvora hliðina. Þar ofan á skal
setja laukinn og súrmeti. Legg-
ið kjötáleggið því næst ofan á
og smyrjið með sinnepi. Lokið
samlokunni og grillið, steik-
ið eða bakið að vild þannig að
osturinn bráðni og brauðið
stökkni.
Pikklaður rauðlaukur
2 dl lageredik
2 dl sykur
2 dl vatn
2 rauðlaukar, þunnt sneiddir
• Setjið allt saman í pott og sjóðið,
þar til allt hefur blandast. Setjið
rauðlaukinn í krukku/r og hellið
vökvanum yfir. Geymist í ísskáp
og hægt er að nota strax.
Jólamaturinn er meira en bara
stórsteik á aðfangadag. Hægt er að
útbúa frábæra rétti úr afgöngunum.
Við fengum Jón Þór Finnbogason til
að leggja okkur til tvær hugmyndir
en hann segir að möguleikarnir séu
endalausir. Aðalatriðið er að koma
undirbúinn til leiks.
Súpa og
samloka
á jólunum
ólamaturinn snýst um
meira en bara eina mál-
tíð klukkan sex á að-
fangadag. Það verður að
nýta afgangana líka og leggja metn-
að í það,“ segir Jón Þór Finnboga-
son, verkfræðingur og kokkur.
Jón Þór fékk snemma áhuga
á matreiðslu. Eftir að hafa lokið
námi í verkfræði lét hann gamlan
draum rætast og fluttist til Kanada
þar sem hann lauk prófi frá Pacific
Institue of Culinary Arts í Vancou-
ver. Hann borðar alltaf rjúpu á
jólunum og veiðir í matinn sjálf-
ur með föður sínum. Hins vegar
matreiðir hann rjúpurnar öðru-
vísi en gert var á æskuheimilinu.
Í stað þess að sjóða hana í potti
léttsteikir Jón bringurnar en ger-
ir soð úr afganginum. Hann deildi
einmitt uppskriftinni með lesend-
um Fréttatímans.
Að þessu sinni var leitað til
Jóns Þórs með hugmyndir um
það hvernig nýta má afganga af
jólamatnum. Það kannast allir við
letidagana sem fylgja daginn eftir
aðfangadag. Það er enn veisluhug-
ur í fólki en kannski ekki dugur til
að standa í stórræðum í eldhúsinu.
Með því að huga að máltíðum úr af-
göngunum fyrirfram er þó hægt að
töfra ótrúlegustu hluti fram.
Algengt er að rjúpuafgangar
séu settir í tartalettur en það
eru líka aðrir möguleikar í
stöðunni. Jón Þór segir að til að
mynda sé auðvelt að sjóða góða
súpu úr rjúpunum án mikillar
fyrirhafnar.
„Maður tínir bara kjötið af
beinunum og notar afgangs
soðið eða jafnvel sósuna. Við
notum hjörtu, lifur og hvað-
eina, í raun allt nema fóarnið,“
segir hann.
Rjúpusúpa fyrir 4
Afgangskjöt af beinum rjúpunnar
Soð eða afgangssósa 500 ml
Portvín 2 msk
Blóðberg saxað, 1msk
Bláberjasulta, 1 msk
Sítrónusafi, 1 tsk
Rjómi 1dl
Smjör 25 g
Salt & pipar
• Bræðið smjör á pönnu og steikið
rjúpuafgangana. Hellið portvín-
inu yfir og látið krauma. Bætið
við kryddi, sultu og sítrónusafa.
Hellið soðinu út á og látið malla
í 10 mín, kryddið með salti og
pipar. Hérna er best að færa
súpuna yfir í pott. Ef súpan er of
þunn má mylja saman smjöri og
hveiti og hræra út í. Endið á því
að bæta við rjómanum, smjör-
klípu og smakkið til með salti.
Jón Þór Finnbogason reiðir hér fram tilbrigði við hið klassíska kombó, súpu og samloku. Súpan er
gerð úr rjúpuafgöngum og á samlokuna fer afgangur af hamborgarhryggnum. Myndir | Hari
Rjúpusúpan er soðin upp úr afgöngum
af jólasteikinni.
Lykilatriði við samloku-
gerðina er að eiga gott brauð
og um jólin er vissast að hafa
það frosið snittubrauð. Svo er
notast við eftirlætis ost, súrar
gúrkur og sósur og dæmið
klárað með heimagerðum
pikkluðum rauðlauk.
J
Ferskari augu
á 5 mínútum
Púðana má nota í 10 skipti
EyeSlices® augnayndi
er tilvalin jólagjöf
Klínískar rannsóknir sýna að eyeSlices® vinnur m.a.
á þrota, baugum, fínum línum og ummerkjum
þreytu í kringum augun. Öflug suður-afrísk
jurt, Aloe Ferox, er uppistaðan í virkum efnum
augnpúðanna sem eru ofnæmisprófaðir.
ferskleiki og fegurð
án fyrirhafnar
facebook.com/Eyeslices/Iceland
Fæst í öllum helstu apótekum