Fréttatíminn - 24.11.2016, Qupperneq 74
42 | FRÉTTATÍMINN | Fimmtudagur 24. nóvember 2016Jólablað 2016
Einstakar vörur í
Safnbúðum Reykjavíkur
Handverk, íslensk hönnun, leikföng og póstkort.
Unnið í samstarfi við
Safnbúðir Reykjavíkur
Safnbúðir Reykjavíkur eru í öll-
um söfnum Reykjavíkurborgar.
Hver safnbúð endurspeglar
safnið sem hún er staðsett í og
þar er hægt að finna úrval af ís-
lenskri hönnun og handverki, ný-
stárlega erlenda hönnunarvöru,
bækur, kort, leikföng og minja-
gripi ásamt safn- og sýningar-
tengdri vöru. Allt er þetta kjörið
til gjafa við ýmis tilefni eða sem
framlenging á safnupplifuninni.
Vöruframboðið í safnbúðunum
er fjölbreytt og misjafnt á milli
safnbúða. Margar vörur, sérstak-
lega þær sem tengjast safnkosti
og sýningum eru hvergi fáan-
legar annars staðar. Í safnbúð-
um Listasafns Reykjavíkur er að
finna fallega íslenska hönnun
og er meira af minjagripum og
handverki í safnbúðum Borg-
arsögusafnsins en líka margar
skemmtilegar vörur sem teng-
ast viðfangsefni safnanna eins
og vörur sem tengjast sjónum á
einhvern hátt eða sögu Reykja-
víkur. Í safnbúð Ljósmyndasafns
Reykjavíkur er mikið úrval af
póstkortum með ljósmyndum úr
safnkosti. Í Hafnarhúsi eru vörur
innblásnar af Erró vinsælar, bæði
meðal ferðamanna og íslendinga.
Nefna má að í Ásmundarsafni er
til lopapeysa sem er eftirmynd af
peysu sem Ásmundur Sveinsson
var mikið í við listsköpun sína.
Nýverið komu fallegar vörur í
safnbúðir Listasafns Reykjavík-
ur sem eru innblásnar af verkinu
Náttúruöflin eftir Ásmund og var
unnið í samstarfi við hönnuðina
Elísabetu Jónsdóttur og Jó-
hönnu Erlu Jóhannesdóttur. Það
er bakki í tveimur stærðum og
viskustykki.
Menningarkort Reykjavíkur er árskort að söfnum Reykjavíkurborgar og er einnig í samstarfi við ýmsa aðila, há-
tíðir og aðrar menningarstofnanir í Reykjavík um fríðindi, afslætti og tilboð til handhafa.
Kortið veitir ótakmarkað aðgang söfnum Reykjavíkurborgar. Söfnin eru Listasafn Reykjavíkur (Hafnarhús, Ás-
mundarsafn, Kjarvalsstaðir), Borgar sögusafn Reykjavíkur og Borgarbókasafn Reykjavíkur
(með framvísun kortsins er hægt að fá bókasafnsskírteini).
Á söfnunum er fjölbreytt starfsemi. Samtals eru þau 14 og á þeim eru 50+ sýningar og 150+ viðburðir á ári.
Handhafar Menningarkorts njóta margvísilegra fríðinda hjá fjölmörgum samstarfsaðilum. Korthafar fá afslátt
af aðgöngumiðum á ýmsar hátíðir, til dæmis Listahátíð í Reykjavík, Reykjavík Dance Festival og Secret
Solstice auk þess sem stærstu leikhúsin. Íslenska óperan, Íslenski dansflokkurinn, Bíó Paradís og Tjarnabíó
bjóða korthöfum fastan afslátt á bilinu 10-25%. Handhafar kortsins fá 10% afslátt í Safnbúðum Reykjavíkur.
Allt um sýningar og viðburði á vefum safnanna:
www.listasafnreykjavikur.is
www.borgarbokasafn.is
www.borgarsogusafnreykjavikur.is
www.safnbud.is
www.facebook.is/safnbuðir
Instagram: safnbudir
Menningarkort ReykjavíkurVeggspjöldin okkar verið mjög
vinsæl en þau prýða myndir
úr safnkosti Ljósmyndasafns
Reykjavíkur.
Línu Langsokkur, Einar Áskell
og fleiri sögupersónur úr barna-
bókmenntum eru áberandi í
safnbúðum Borgarbókasafnsins.
Í tengslum við sýningu Yoko Ono
í Hafnarhúsi eru til sölu bolir og
töskur með áprentað Imagine
Peace/Hugsa sér frið á mörgum
tungumálum og hafa þær vörur
verið virkilega vinsælar enda
með fallegan boðskap og það
hefur slegið í gegn.
Síðastliðin ár hefur safn- og
sýningartengd framleiðsla verið
aukin og efld til muna. Um er að
ræða vörur sem tengjast safn-
kosti á hverjum stað. Til dæmis
er ein af vinsælastu vörunum
tækifæriskort (afmælis, jóla,
nýárs, sumar o.s.frv.) sem er
endurprentun á gömlum kortum
frá 20. öld sem kemur úr safn-
kosti Árbæjarsafns.