Fréttatíminn - 24.11.2016, Qupperneq 78
46 | FRÉTTATÍMINN | Fimmtudagur 24. nóvember 2016Jólablað 2016
Jóladagskrá Árbæjarsafns er
skemmtileg að vanda og óhætt að
segja að hún sé ómissandi hluti að-
ventunnar. Það er einstaklega gam-
an að heimsækja safnið á þessum
árstíma og fá jólastemninguna beint
í æð. Jóladagskráin hefst sunnu-
daginn 4. desember og verður í boði
alla sunnudaga fram að jólum á
milli klukkan 13 - 17.
Dagskráin er á öllu safnsvæð-
inu og geta ungir sem aldnir rölt á
milli húsanna og fylgst með undir-
búningi jólanna eins og hann var í
gamla daga. Hrekkjóttir jólasvein-
ar gægjast á glugga og kíkja í potta.
Börn og fullorðnir dansa í kringum
jólatréð og syngja vinsæl jólalög.
Í Árbænum sitja fullorðnir og
börn með vasahnífa og skera út
laufabrauð en uppi á baðstofulofti
er spunnið og prjónað. Í Kornhús-
inu búa börn og fullorðnir til músa-
stiga, jólapoka og sitthvað fleira. Í
Hábæ er hangikjöt í potti sem gestir
fá að bragða á. Í Nýlendu má fylgjast
með tréútskurði og í Miðhúsum er
hægt að fá prentaða jólakveðju. Í
Efstabæ er jólaundirbúningurinn
kominn á fullan skrið og skatan
komin í pottinn. Í hesthúsinu frá
Garðastræti eru búin til tólgarkerti
og kóngakerti eins og í gamla daga.
Jólahald heldra fólks við upphaf
20. aldar er sýnt í Suðurgötu 7
og í Krambúðinni er kramarhús,
konfekt og ýmis jólavarningur til
sölu.
Fastir liðir:
Kl. 14 Guðsþjónusta í safnkirkj-
unni.
Kl. 15 Sungið og dansað í kring-
um jólatréð.
Kl.14–16 Jólasveinar skemmta
gestum og taka þátt í
söng og dansi í kringum
jólatréð.
Að vanda býður Dillonshús
upp á ljúffengar og hefðbundnar
jólaveitingar.
Nóg framboð af afþreyingu ef fólk vill koma sér í
jólagírinn. Hér er brot af því besta en hægt er að
kynna sér framboðið betur á miðasöluvefjum á
borð við Tix.is.
Fjölbreyttir jóla
tónleikar í desember
Skemmtileg jóladagskrá á Árbæjarsafni fyrir alla fjölskylduna.
Upplifðu jólin í gamla daga
Árlegir aðventutónleikar Karlakórs
Reykjavíkur í Hallgrímskirkju verða
haldnir laugardaginn 17. desem-
ber og sunnudaginn 18. desember.
Tvennir tónleikar verða hvorn dag,
klukkan 17 og 20. Aðalgestur kórsins
þetta árið er tenórsöngvarinn Elmar
Gilbertsson. Miðaverð er 5.990 krón-
ur.
Jólatónleikar Siggu Beinteins verða
haldnir í Eldborgarsal Hörpu 9. og 10.
desember en þetta er áttunda árið
sem Sigga heldur sína eigin jólatón-
leika og þriðja árið í röð sem þeir
verða haldnir í Eldborgarsal Hörpu.
Sérstakir gestir eru söngvararnir Páll
Óskar Hjálmtýsson, Egill Ólafsson og
Greta Salóme. Miðaverð er frá 5.490
til 9.990 kr.
Jólagestir Björgvins Halldórssonar
verða haldnir í tíunda sinn þann 10.
desember 2016 í Höllinni. Fyrri tón-
leikarnir eru kl. 16 en þeir seinni eru
kl. 21. Með Björgvini stíga á svið lista-
mennirnir Ágústa Eva Erlendsdótt-
ir, Eyþór Ingi Gunnlaugsson, Friðrik
Dór Jónsson, Gissur Páll Gissurarson,
Jóhanna Guðrún Jónsdóttir, Ragga
Gísla og Svala Björgvins. Miðaverð er
frá 5.990 til 14.990 kr.
Bubbi Morthens varð sextugur í
ár og af því tilefni heldur hann Þor-
láksmessutónleika víðsvegar um
land. Bubbi verður í Edinborgarhús-
inu á Ísafirði hinn 15. desember, 17.
desember verður hann í Valaskjálf á
Egilsstöðum, 19. des. í Bíóhöllinni á
Akranesi og 21. des. í Hofi á Akureyri.
Á Þorláksmessu treður hann svo upp
í Hörpu. Miðaverð er frá 3.900 krón-
um upp í 9.900.
Söngkonan Jóhanna Guðrún held-
ur tvenna jólatónleika, í Grundar-
fjarðarkirkju fimmtudaginn 22.
des- ember klukkan 20 og
Þorláksmessutón-
leika í Vídalíns-
kirkju föstu-
daginn 23.
desember
kl 20. Með
Jóhönnu
verður
gítarleikarinn Davíð Sigurgeirsson.
Miðaverð er 2.990 krónur.
Jólatónleikar Margrétar Eirar í
ár verða lágstemmdir og hátíðlegir
en með sinni einstöku túlkun ætlar
hún, ásamt Berki Hrafni Birgissyni
og Daða Birgissyni, að flytja vetrar
og jólalög úr ýmsum áttum. Tón-
leikarnir verða á Hólmavík, Sauðár-
króki, Reykholti og í Guðríðarkirkju
í Grafarholti dagana 14.-18. desember.
Miðaverð er 3.500 til 4.500 krónur.
Jólatónleikar Croon & Swoon verða
á Gauknum við Tryggvagötu fimmtu-
dagskvöldið 22. desember. Þar troða
söngvarinn Daníel Hjálmtýsson og
gítarleikarinn Benjamín Náttmörður
Árnason upp ásamt Andreu Gylfa-
dóttur og fleirum. Á dagskránni eru
meðal annars jólalög sem Frank
Sinatra, Dean Martin, Bing Crosby
og Nat King Cole fluttu á sínum tíma.
Miðaverð í forsölu er 2.000 krónur
en 2.500 krónur við hurð.
Söngvarinn Friðrik Ómar syng-
ur jólin inn helgina 17-18. desem-
ber í Salnum í Kópavogi. Uppselt er
á þrenna tónleika og sala í gangi á
þá fjórðu. Gestasöngkona Friðriks
er samstarfskona hans og vinkona
Guðrún Gunnarsdóttir. Saman flytja
þau lög af einni vinsælustu jólaplötu
síðari ára, Ég skemmti mér um jólin,
sem er orðin sígild. Miðaverð frá
2.000 til 5.990 kr.
Stefán Hilmarsson heldur árlega
jólatónleika sína í Silfurbergi í Hörpu
8.og 9. desember. Sérstakir gestir
verða Jón Jónsson, Jóhanna Guðrún
og Ísold Wilberg, ung söngkona sem
er að stíga sín fyrstu skref. Á tón-
leikunum verða að vanda flutt lög af
jólaplötum Stefáns, „Í desember“ og
„Ein handa þér“, í bland við sérvalin
stemnings- og hátíðarlög af ýmsum
toga. Miðaverð er 6.990 krónur.
Blásarakvintett Reykja-
víkur og félagar halda sína
árlegu tónleika „Kvöld-
lokkur á jólaföstu“ í Frí-
kirkjunni 6. desember
klukkan 20. Fluttar verða
blásaraserenöður eftir
Mozart, Beethoven og
Krommer. Tónleik-
arnir enda alltaf á
hinni himnesku
mótet tu Moz-
arts „Ave verum
corpus“.