Fréttatíminn - 24.11.2016, Blaðsíða 84
Ræman
ÍSA FOLD
Nýbýlavegur 6 s: 552 1123
52 | FRÉTTATÍMINN | Fimmtudagur 24. nóvember 2016Jólablað 2016
úlía Magnúsdóttir,
næringar- og lífsstíls-
ráðgjafi og höfundur
matreiðslubókarinn-
ar Lifðu til fulls, nýtur þess
að borða girnilegt plöntu-
miðað fæði um jólin. Frá því
Júlía breytti um lífsstíl fyr-
ir nokkrum árum hefur hún
verið að þróa uppskriftir þar
sem maturinn missir ekki góða
bragðið á kostnað hollustunn-
ar, en henni þykir mikilvægt að
fólk njóti þess að borða hollan
og góðan mat. Hún er líka alltaf
að afla sér meiri þekkingar og
prófa sig áfram með nýja rétti.
Nú er hún nýkomin heim úr hrá-
fæðisskóla í Kaliforníu og deilir
hér hátíðlegum hráfæðisréttum
ásamt uppskrift að ómótstæði-
legri sætkartöflumús.
Sætkartöflumús með
ristuðum pekanhnetum
1 meðalstór elduð
sætkartafla, afhýdd
2-4 msk kókosmjólk eftir smekk
(gerir kartöflumúsina
sérlega rjómakennda)
1 tsk kókosolía
1/4 tsk salt
Krydd (1/8 tsk kanill, 1/8 tsk
engifer, 1/8 tsk múskat)
1 tsk hlynsíróp eða hrár
kókospálmanektar, eða
notið 2-4 dropa stevia
(val)
1/3 bolli pekanhnetur muldnar
• Eldið sætu kartöflurnar með
því að sjóða þær í 20-25 mín eða
þar til auðvelt er að stinga gafli
í gegnum þær. Leyfið að kólna
örlítið. Hitið ofn við 180 gráð-
ur. Smyrjið eldfast mót með
kókosolíu.
• Hrærið saman öllum innihalda-
efnum fyrir utan pekanhnetur í
hrærivél, blandara eða skál með
handþeytara þar til blandan
verður silkimjúk. Dreifið kart-
öflublöndunni jafnt yfir eldfast
mótið. Bakið í 20 mín, takið út
og stráið pekanhnetum yfir og
bakið í 20 mín til viðbót eða þar
til pekanhneturnar eru stökkar.
Einnig má rista pekanhneturnar
úr olífuolíu, salti og hlynsírópi
fyrir sérstaklega sætar pecan-
hnetur.
Einfalt Waldorfsalat
1/2 bolli sellerístiklar
1 bolli vínber
1-3 græn epli, afhýdd og
söxuð niður
2-4 msk safi úr kreistri sítrónu
1 bolli vatn
Furuhnetudressing
1 bolli furuhnetur
4 msk ólífuolía
3 msk sítrónusafi
Salt
örlítið hlynsíróp/hunang
1/2 bolli vatn eða minna (bætið við
eftir þörfum undir lok)
• Skreytið með valhnetukjörnum
og rúsínum
• Skerðu sellerí, vínber og epli.
Látið epli liggja í sítrónuvatni
(vatn+sítrónusafi) í 10 mín og
þurrkið. Á meðan má útbúa
dressingu fyrir salatið með því
að sameina öll hráefni dressingar
í blandara eða matvinnsluvél.
• Hrærið næst saman selleríi, epl-
um, vínberjum og dressingu í
skál og skreytið.
Rauðrófur með
hnetufyllingu og sítrónu
1 stór rauðrófa eða rófa
1 tsk olífuolía
salt
Hnetufylling
11/2 bolli kasjúhnetur eða valhnetur
(lagðar í bleyti í 4 klst eða
yfir nótt)
2 msk safi úr kreistri sítrónu
1 msk vatn
salt eftir smekk
1 vorlaukur, smátt saxaður
handfylli fersk timían
handfylli fersk steinselja
Sítrónudressing
1/2 bolli olífuolía
2 tsk safi úr kreistri sítrónu og
börkurinn rifinn örlítið
1 hvítlauksgeiri, smátt
saxaður
salt og pipar eftir smekk
• Skerið rauðrófu eða rófu þunnt
með madolin. Penslið með olífu-
olíu og salti og þekjið vel báðar
hliðar. Geymið til hliðar á ofn-
plötu eða bakka.
• Útbúið hnetufyllingu með því að
sameina allt fyrir utan vorlauk
og kryddjurtir í blandara þar til
silkimjúkt. Setjið í skál og hrærið
lauk og krydd með sleif þar til vel
sameinað.
• Hrærið í sítrónudressingu með
því að setja allt saman í skál og
hræra með gaffli.
• Sameinið allt. Þurrkið af rauðróf-
unni með pappír eða viskustykki
og leggið á disk, raðið á hnetu-
fyllingu og annari rauðrófu þar
ofan á. Fegrið diskinn með papr-
íkusósu og berið fram.
Súkkulaðihúðaðar marsipankúlur
– sykurlaust konfekt
2 bollar lífrænar möndlur án hýðis,
malaðar (500 ml)
4 msk hlynsíróp eða hrár
kókospálmanektar
1 msk lífrænir vanilludropar
Súkkulaðikrem
4 msk kakó
1/4 bolli kókosolía
4 dropar stevia
• Velt upp úr kakódufti, muldum
pistasíuhnetum, kókosmjöli.
• Svo falleg hvít áferð náist er
mikilvægt að nota afhýddar
möndlur. Ef þær fást ekki keypt-
ar er auðvelt að leggja möndl-
ur með hýði í bleyti í 8 klst eða
yfir nóttu, skola af þeim. kreista
hýðið af og þerra af þeim ör-
lítið. Byrjið á að mala möndlur
í blandara eða kaffikvörn í fínt
mjöl. Bætið sætugjafa og vanillu-
dropum saman við þar til þétt
marsipandeig myndast. Notið
fingur til að mynda kúlur.
• Útbúið súkkulaði með því að
hræra öllu saman í blandara eða
potti. Mikilvægt er að kókosolí-
an sé í fljótandi formi hvort sem
kókosolíukrukkan er lögð í heitt
vatnsbað eða brædd í potti.
• Dýfið marsipankúlunum í
súkkulaðið (ég nota skeið og
fingur) og rúllið strax upp úr
kakódufti, muldum pistasíuhnet-
um eða kókosmjöli sem dæmi.
Setjið á disk og geymið í kæli eða
frysti í hálftíma áður en þeirra
er neytt.
Það eru ekki allir sem vilja kjöt á diskinn sinn um jólin, en hér
gefur Júlía Magnúsdóttir nokkrar léttar og hátíðlegar uppskriftir.
Hollari jól fyrir græna sælkera
Júlía breytir ekki út af vananum um jólin og borðar
hollan og næringarríkan mat yfir hátíðarnar. Mynd | Hari
J