Fréttatíminn - 10.12.2016, Side 44
44 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 10. desember 2016
Uppáhalds ljósmyndin
Mútað með tveimur kleinu
hringjum fyrir hæfileikakeppni
Ljósmyndir geta átt sérstakan
stað í hjarta fólks. Minningar sem
festar hafa verið á filmu sem gott
er að horfa á stöku sinnum þegar
grátt er úti eða þegar maður er
lítill í sér. Thelma Lind Waage
deilir uppáhaldsljósmyndinni
sinni með Fréttatímanum.
Ég held að ég væri ekki alveg hrein
skilin ef ég veldi ekki þessa mynd.
Ég er týpan sem er haldin einhverri
eilífðar nostalgíu, og get tapað mer
Vísindamenn við
Háskólann í Toronto
duttu í jólagírinn
og fengu
tölvu til að
semja fyrir
sig nýjasta
jólasmellinn,
eða þannig.
Gefa gamla
kjóla sem ekki
passa lengur
Hjálparstofnun kirkjunnar gefur spariföt
fyrir jólin.
Birna Guðmundsdóttir
birna@frettatiminn.is
Við söfnum alltaf sparifötum fyrir jólin en undirbúningur á sér stað árið allt árið um kring,“ segir Vilborg
Oddsdóttir fé lags ráðgjafi sem
hef ur um sjón með inn lendri
aðstoð hjá Hjálp ar starfi kirkj
unn ar. „Við tínum út spari
fötin, fínu kjólana og jakka
fötin sem okkur berast og tökum
frá fyrir jólin, út hlut um þeim
síðan sér stak lega á þessum
tíma árs.“
Hún segir mikilvægt að
allir geti fengið sparföt sem
vilja. „Við gefum fólki föt árið
um kring, alla þriðjudaga
ársins. Um jólin gefst hins
vegar annað tækifæri til að
gefa sparifötin. Alla þessa fínu
kjóla sem okkur berast. Fólk
er líka mikið að máta nýja
kjóla og spariföt og gefa okk
ur gömlu fötin sem ekki passa
lengur.“
„Sem betur fer er alltaf að
aukast að fólki gefi gömul
spariföt til Hjálparstarfs
kirkjunnar. Langmesta
þörfin er á haustin og í
kringum jólin, útiföt og
skólaföt á haustin þegar
skólinn byrjar og í kringum jólin
vegna sparifatanna. Þetta eru
álagspunktarnir hjá okkur.“
„Það eru margir sem nýta sér
þennan kost. Á venjulegum þriðju
dögum koma allt að 40 fjölskyld
ur til okkar að fá föt en það eykst
auðvitað um jólin. Í desember
er allt annað kerfi í gangi. Þá
getur fólk komið hvenær sem
er. Við erum hér með frá
bæran hóp sjálfboðaliða sem
koma, sortera fötin og að
stoða alla.“
Vilborg segir magn af
gefins fötum hafa aukist
og að þeim fjölgi sem nýti
sér þessa hjálp. „Bæði hefur
hælisleitendum fjölgað hér, sem
fengið hafa hæli af mannúðar
ástæðum. Þeir eru fatalausir,
er kalt og eiga ekki föt. Því
hefur aukist aðsókn í fötin.
Við urðum sérstaklega vör
við þetta þegar fór að kólna
í haust. Þeir sem höfðu feng
ið hæli af mannúðarástæðum
komu til að fá allt frá sokkum
til ullarnærfata. Hópurinn
sem nýtir sér aðstoð okkar
hefur því breyst og fleiri koma
til okkar. Varðandi sparifötin
er þetta þó annað. Þar eru Ís
lendingar í meirihluta.“
„Það er um að gera að láta
fötin ganga áfram. Þau
koma að góðum notum
hjá þeim sem fá þau. Það
er alltaf þvílík gleði þegar
stelpur fá fallega kjóla
sem þær hefur alltaf dreymt og
strákar fín jakkaföt, eitthvað sem
foreldrarnir höfðu ekki efni á að
kaupa.“
Textinn, í lauslegri íslenskri
þýðingu er á þessa leið:
Mikið skraut í herberginu.
Jólatréð er fullt af blómum.
Ég sver það er jólakvöld.
Ég vona að þú segir það.
Besta jólagjöf í heimi er blessun.
Ég hef alltaf verið þar, það sem
eftir er af lífi okkar.
Fyrir hundrað og hálfri
klukkustund.
Ég er glaður að hafa hitt þig.
Ég get heyrt tónlist koma úr
andyrinu.
Ævintýri.
Jólatré.
Það er fullt fullt fullt
af blómum.
Mariah Carey er einn
þeirra listamanna sem
setur mark sitt á þennan
árstíma. Hún hefur nú
fengið samkeppni frá
kanadískri tölvu.
Jólalög eru eins misjöfn og þau eru
mörg, sum ómissandi, önnur full
komlega óþolandi. Nokkrir tölvu
fræðingar við Háskólann í Toronto
mötuðu tölvuna sína á 100 tímum
af jólamúsík og settu hana síðan í
að semja nýjasta smellinn. Tölvan
var bæði látin semja lag og ljóð
sem seint verða talin til meistara
verka. Takturinn er 120 slög á
mínútu og vitvélin bætti hljómum
og trommutakti undir allt saman.
Verkefnið er til gamans gert, en
hæfileikar vitvéla eru mikið til um
ræðu, þó að þarna sé ekki fæddur
nýr snillingur, hvorki á svið tón
listar né textagerðar.
Lagið er í það minnsta fyndið,
ólíkt mörgum öðrum lélegum jóla
lögum.
Lestu meira um tölvur og skrif
þeirra á síðu 38.
Tölva syngur um jólin
Mikil gleði ríkir
þegar börn fá spari-
fötin sem þau hefur
alltaf dreymt um.
Vilborg segir um að gera að láta gömlu sparifötin ganga áfram. Mynd | Hari
í að liggja yfir gömlum myndum.
En þessi mynd hefur ekki bara
nostalgíusjarmann heldur einnig
djúpan skilning á sjálfri mér sem
hefur tekið mig gífurlega langan
tíma að komast að. Ég man hrika
lega vel eftir þessu, það var búið
að kalla mig tvisvar upp á svið til
að syngja Gamla Nóa í hæfileika
keppni. Ég fór ekki fyrr en það var
búið að lofa mér tveimur kara
mellukleinuhringjum í verðlaun,
sem ég auðsýnilega fékk.
Vildi fyrst ekki
syngja Gamla Nóa í
hæfileikakeppni