Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 16.12.2016, Blaðsíða 4

Fréttatíminn - 16.12.2016, Blaðsíða 4
Stjórnmál „Það er ekkert að ger- ast“ segir Benedikt Jóhannesson, formaður Viðreisnar, um stjórn- armyndun. Hann hefur haldið sig til hlés eftir að eitruð skeyti fóru að ganga á milli forystumanna Pírata og VG um hvað fór úrskeið- is í viðræðunum flokkanna fimm um ríkisstjórn miðju- og vinstri flokkanna. Þóra Kristín Ásgeirsdóttir tka@frettatiminn.is „Ég ætla ekki að blanda mér í þetta, að öðru leyti en því að það dró ekki sérstaklega í sundur með okkur og VG,“ segir Benedikt Jóhannesson. „Flokkarnir náðu einfaldlega ekki saman og það er ekki við neinn að sakast,“ segir hann. „Það er mikilvægt að stilla væntingum sínum í hóf og ganga hóflega bjartsýnn til svona við- ræðna. Ég farin að læra eftir þrjár lotur. Núna tek ég einn dag í einu.“ En hvað tekur við? Ætlið þið að ræða við Sjálfstæðismenn eða eru þeir að reyna að nálgast ykkur? „Ég stend hérna í stiganum á Al- þingi og hef alla hina þingmennina meira og minna fyrir augunum. Þeir eru ýmist á leið frá mér eða að mér. Bjarni Benediktsson er búin að fara niður og Óttar Proppé upp. Ég hef enga sérstaka ósk um við hvern verður rætt í næstu lotu. Þingmenn eru þessa stundina uppteknir í nefndarstörfum í þinginu. Það er nóg að gera og þessi mál verða að bíða. Það eru líka að koma jól hjá þingmönnum, eins og öðrum. Það þarf að kaupa gjafir og skreyta hús, baka og skrifa jólakort. Svona er bara þetta líf. Ég ætla ekki að hafa áhyggjur af þessu. Það batnar ekk- ert við það.“ Þið hafið hingað til ekki tekið í mál að verða þriðja hjól undir vagni í ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknar. Á það enn við? „Svo sannarlega. Það kemur ekki til greina.“ 4 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 16. desember 2016 Berglind Kristinsdótt- ir, framkvæmdastjóri Sambands sveitarfé- laga á Suðurnesjum, vill að Strætó fái að stoppa nær flugstöð- inni. Almenningssam- göngur séu ódýrari og prinsippmál fyrir marga ferðamenn. Arinbjörn Jóhannes- son óttast að ferða- þjónustufyrirtæki á landsbyggðinni verði gjaldþrota. Hann segir ástandið aldrei hafa verið verra. Samgöngur Bæði flugrútufyrir- tækin hækkuðu stök fargjöld frá Keflavík í nóvember. Leigubílafar- gjald til Keflavíkur hækkaði í október. Nú er orðið ódýrara að fara á bíl út á flugvöll, ef tveir eða fleiri eru að fara í stutta ferð. Strætó vill fá að stoppa nær flug- stöðinni. Þóra Tómasdóttir thora@frettatiminn.is Kynnisferðir hækkuðu stakt fargjald sitt frá Keflavíkurflugvelli í bæinn úr 2.200 krónum í 2.500 krónur þann 1. nóvember. Gray Line vildi ekki upplýsa Fréttatímann um hvenær síðasta verðhækkun fyrirtækisins var, en stakt fargjald er nú 2.400 frá flugvellinum í bæinn. Bæði fyrirtæk- in veita þó afslátt ef keyptur er far- miði báðar leiðir í einu. Þann 1. október hækkaði fast gjald á leigubíl Hreyfils Bæjarleiða milli Keflavíkur og Reykjavíkur úr 15 þús- und í 16 þúsund fyrir venjulegan bíl. Stór leigubíll hækkaði úr 19.500 krónum í 21.500 krónur. Ef fólk er á sparneytnum bíl getur því margborgað sig að fara á hon- um út á völl, leggja í langtímastæði á meðan ferðalaginu stendur. Þrír dagar á bílastæðinu kosta 3.750 krónur. Það er þó alltaf umhverfis- vænna að vera margir saman í einu farartæki. Berglind Kristinsdóttir hjá Sam- bandi sveitarfélaga á Suðurnesjum hefur barist fyrir því að strætó fái að stoppa nær flugstöðinni. „Við sendum Isavia formlegt erindi í maí en fengum ekkert svar. Þess vegna ítrekuðum við erindið aftur í síð- ustu viku. Eins og staðan er í dag fær strætó að stoppa 200 metrum frá flugstöðinni og það er óþægi- legt fyrir farþega að ganga með farangurinn þessa óupplýstu leið í myrkri. Við myndum vilja fá að vera sýnilegri valkostur. Hjá mörgum er prinsipp mál að ferðast með almenn- ingssamgöngum, þó Íslendingar noti þær ekki mikið. Strætó ekur á klukkutíma fresti frá flugstöðinni, ferðin tekur um klukkustund og fargjaldið í bæinn er um 1680. En það er ódýrara fyrir þá sem eiga strætókort.“ Ódýrara að fara á bíl út á flugvöll Bæði flugrútufyrirtækin hækkuðu stök fargjöld frá Keflavík í nóvember. Mynd | Rut Það er mikilvægt að stilla vænting- um sínum í hóf og ganga hóflega bjartsýnn til svona viðræðna, segir Benedikt Jóhannesson, formaður Viðreisnar. Mynd | Hari Ekki þriðja hjólið hjá Sjálfstæðs- og Framsóknarflokki Ferðaþjónusta „Ástandið er alveg gersamlega vonlaust,“ segir Arin- björn Jóhannsson á Brekkulæk í Húnavatnssýslu sem hefur rekið ferðaþjónustu sína frá árinu 1979 og tekur árlega á móti um fimm hundruð gestum, aðallega í hesta- og gönguferðir. Þóra Kristín Ásgeirsdóttir tka@frettatiminn.is „Það hefur alltaf verið erfitt að búa við þetta ótrygga gengi en ástandið hefur aldrei nokkurn tímann ver- ið verra,“ segir Arinbjörn. „Helstu viðskiptavinir okkar eru evrópskt millistéttarfólk sem býr við stöð- ugan gjaldmiðil og það eru takmörk fyrir því hvað við getum hækkað mikið milli ára án þess að vera sök- uð um okur.“ „Ég er hræddur um að með þessu áframhaldi bítum við af okkur þessa ferðamenn, sem hafa verið Ástandið hefur aldrei verið verra Bandaríkjadollar kostaði 129 krónur fyrir ári – kostar 112 krónur núna. Það er lækkun upp á rúm 13 prósent. Evran kostaði 141 krónu fyrir ári en kostar 119 krónur núna. Það er veiking evru gagnvart krónu um 15,8 prósent. Sterlingspundið hefur lækkað um hátt í 30 prósent á árinu gagnvart krónu. Arinbjörn í hestaferð með erlenda ferðamenn. Ódýrt flug og AirBnB Már Guðmundsson seðlabankastjóri segir að mikill og hraður vöxtur ferða- þjónustunnar setji mikinn þrýsting á hagkerfið og styrking krónunnar sé aðallega til komin vegna hans. „Það er mikið framboð af ódýru flugi til landsins og stefnan varðandi AirBnb er miklu frjálslyndari en víða annars staðar og stuðlar að gjaldeyrisinn- flæði,“ segir Már. „Stjórnvöld geta vel brugðist við sterkri krónu, ef þau vilja það. Það er ekki við peningastefnuna að sakast.“ Már Guðmundsson segir ekki við peningastefnuna að sakast. kjölfestan í starfsemi okkar alla tíð eða að við förum hreinlega á haus- inn,“ segir Arinbjörn. „Staðan er sú að við þurfum að verðleggja okkur langt fram í tím- ann, eitt til tvö ár. Það er ómögu- legt að sjá fram í tímann í þessu ástandi. Við þurfum að kaupa ferð- ir og gistingu hér heima og verðið hækkar stöðugt, við erum að reyna að taka sveiflurnar á okkur en það gengur ekki til lengdar. Evrópubúar skilja ekki þennan óstöðugleika.“ Arinbjörn segir að þetta lykti af því að hér verði annað hrun. Hann hafi talið að þegar höftum yrði aflétt færu peningar úr landi og það létti á þrýstingnum. Það hafi ekki gerst, Þegar evrópska milli- stéttarfólkið, sem sé vel mennt- að og undirbúið, hætti að koma, komi sterkefnaðir Ameríkanar og Asíubúar í staðinn. Þetta séu ferða- menn með allt aðrar þarfir og önn- ur áhugamál. Litlar ferðaskrifstof- ur sem byggi á náttúruskoðun og upplifun höfði ekki til þeirra að sama marki. Þær séu líklegar til að fara fyrst á hausinn. Lengst lifi þeir sem starfi í höfuðborginni því þeir þurfi ekki að skipuleggja sig jafn langt fram í tímann. JÓLALEIKUR GEVALIA Klipptu tvo toppa af Gevalia ka pokum og sendu inn til að taka þátt. Þú finnur þátttökuumslag í næstu verslun. Dregið 20. desember.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.