Fréttatíminn - 16.12.2016, Page 27
| 27FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 16. desember 2016
Berglind Laxdal bakar alltaf köku
á aðfangadagsmorgni sem á að
vera eftirréttur jólamáltíðarinnar.
Það hefur ekki alltaf endað vel.
„Ég baka alltaf sömu kökuna og
hristi hana svona fram úr erminni.
Það er vissulega pínu stress og
spenningur í loftinu þennan dag.
Maður þarf að gera marga hluti
í einu. Einu sinni var ég bara að
raula með jólalögunum og skera
döðlur í kökuna þegar ég varð
fyrir því að skera framan af einum
fingri. Úr varð gott splatteratriði
í eldhúsinu, rauður jólaliturinn
flæddi úr fingrinum um allt og
aldrei ætlaði blæðingin að hætta.
Ég fór upp á bráðamóttöku og sá
þá að þar voru að minnsta kosti 10
aðrar konur að bíða eftir aðstoð.
Allar með blæðandi fingur! Við
brostum hver til annarrar en samt
var þetta ansi vandræðalegt. Ég
fór – aftast í röðina og beið eftir
því að gert væri að enn einum
fingrinum, en þetta er víst ansi
algengt á aðfangadag, að húsmæð-
ur fari fram úr sér á þennan hátt.
Eftir að búið að tjasla fingrinum
saman kláraði ég kökuna sem
smakkaðist betur en oft áður!“
Berglind vill bæta því við að
í raun sé mun betra og áhættu-
minna að klippa döðlurnar en
skera þær, að minnsta kosti á að-
fangadag!
Splatteratriði
í eldhúsinu
Berglind Laxdal bendir fólki á að betra sé að klippa döðlur með skærum en að
skera þær. Það geti endað illa. Mynd | Teitur
Síðumúla 30 - Reykjavík
Hofsbót 4 - Akureyri
Dönsk hönnun á
frábæru verði.
Base, hvítur og svartur
Verð nú:
191.920
20%
JÓLAAFSLÁTTUR
Opið alla
daga til kl.
20.00
fram að jólum
Glæsilegar jólagjafir
Tradition úrin eru glæsileg íslensk hönnun og fást þau í ýmsum litasamsetningum.
Kíktu á allt úrvalið í vefversluninni okkar á michelsen.is
Laugavegi 15 og Kringlunni - sími 511 1900 - www.michelsen.is