Fréttatíminn

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttatíminn - 16.12.2016, Qupperneq 34

Fréttatíminn - 16.12.2016, Qupperneq 34
Landsdóms­ málið Eitt umdeildasta og mest um- talaða mál eftirhrunsáranna á Ís- landi er Landsdómsmálið þar sem meirihluti þingmanna á Al- þingi Íslendinga tók þá ákvörðun að ákæra Geir H. Haarde, fyrr- verandi forsætisráðherra, í sept- ember árið 2010. Ísland varð þar með fyrsta og eina landið í heim- inum sem dró einn æðsta ráða- mann þjóðar fyrir dóm vegna þeirra atburða sem áttu sér stað í fjármálahruninu um haustið 2008. Þeir sem töldu ákæruna og dóm- inn réttmætan gætu kallað Lands- dómsmálið skandal vegna þess sem Geir var ákærður og dæmdur fyrir, formlega ábyrgð sína á því að hafa ekki reynt að bregðast við hrun- inu áður en það skall yfir Ísland, á meðan gagnrýnendur ákærunn- ar geta haldið því fram að málið sé skandall út af því ákæruvaldið í málinu var flokkspólitískt og þar með að Geir hafi verið beittur sögu- legum órétti. Mannréttindadómstól Evrópu ákvað að taka mál Geirs fyr- ir árið 2013 en n iðu r- staða liggur ekki fyrir hjá dómnum. Mál Geirs er í raun ekki ennþá útrætt. Vafningsmálið og sala Bjarna Benediktssonar á Glitnisbréfum Í febrúar 2008 tók Bjarni Bene- diktsson, þáverandi þingmaður og formaður allsherjarnefndar, þátt í viðskiptasnúningi sem sýndi svart á hvítu að íslenska bankakerfið var á brauðfótum. Glitnir þurfti að lána einum hluthafa sínum, Þætti International eh., sem ættingjar Bjarna áttu með annars, rúma tíu milljarða króna til að borga er- lendum banka lán sem þeim hafði verið veitt fyrir hluta- bréfunum. Ekki einn banki í veröldinni, annar en Glitnir, var reiðubúinn til að veita þetta lán þar sem hlutabréfaverð í bankanum hafði hrunið. Þannig tók Glitnir við ábyrgð á tíu milljarða láni sem enginn annar banki vildi. Stjórnendur Glitnis voru hræddir um að ef það fréttist að enginn vildi lána fyrir hlutafé í Glitni myndi hlutabréfaverð í bankanum hrynja. Í sama mánuði seldi Bjarni Bene- diktsson hlutabréf sem hann átti persónulega í Glitni og faðir hans, Benedikt Sveinsson, gerði slíkt hið sama. Bjarni seldi fyrir 126 milljónir króna en faðir hans fyrir um 850 milljónir en þannig björguðu þeir sam- tals tæpum milljarði króna sem þeir annars hefðu tap- að í íslenska bankahruninu nokkrum mánuðum síðar. Al Thani­málið Þó dæmt hafi verið í Al Thani-mál- inu í Hæstarétti Íslands í ársbyrjun 2015 og allir fjórir sakborningarnir, Ólafur Ólafsson, Hreiðar Már Sig- urðsson, Sigurður Einarsson, og Magnús Guðmundsson, hafi hlot- ið þunga fangelsisdóma þá er mál- inu ekki endanlega lokið. Málið var eitt það stærsta sem embætti sér- staks saksóknara rannsakaði eftir hrun enda snérist það um mark- aðsmisnotkun með ríflega 25 millj- arða króna hlut í Kaupþingi fyrir hrun og blekkingar gegn almenn- ingi um stöðu íslenska bankakerf- isins. Fjórmenningarnir hafa nú lokið fangelsisafplánun sinni eftir umdeilda lagabreytingu fyrr á ár- inu sem eykur möguleika fanga á að afplána dóma sína undir raf- rænu eftirliti. Í sumar kallaði Mann- réttindadómstóll Evrópu eftir svör- um frá íslenska ríkinu um vissa þætti í meðferð Al Thani-málsins og Hreiðar Már hefur stefnt íslenska ríkinu vegna þess og vill fá greiddar skaðabætur fyrir óréttláta og spillta málsmeðferð. Fjórmenningarnir af- plána nú eftirstöðvar dómsins með ökklaband undir rafrænu eftirliti en ljóst er að umfjöllun um þetta stóra dómsmál er ekki lokið og enn birtast reglulega greinar í blöðum þar sem hagsmunaðilar fjalla um málið frá sínum sjón- arhóli. Makrílmálið Eitt umdeildasta mál liðins kjör- tímabils var makrílfrumvarp Sigurð- ar Inga Jóhannssonar sjávarútvegs- ráðherra sem hann kynnti á Alþingi um vorið 2015. Frumvarpið hefði falið í sér að kvóta í makríl hefði verið úthlutað til þeirra útgerða sem hafa veitt þessa fisktegund, sem er ný í ís- lenskri fiskveiðilögsögu, til sex ára í senn og án þess að það kæmi fram í frumvarpinu að makrílkvótinn væri þjóðareign. Einn af þeim gagnrýndi frumvarpið hvað harðast var Jón Steinsson hagfræðingur sem sagði að það treysti stöðu útgerðarmanna gagnvart þjóðinni og fæli í sér grund- vallarbreytingu í sjávarútvegsmálum sem væri þeim í hag en ekki almenn- ingi. „Með þessu frumvarpi er því stigið risastórt skref í þá átt að festa varanlega í sessi það fyrirkomulag að útgerðarmenn þurfi ekki að greiða eðlilegt leigugjald til þjóðarinnar fyrir afnot af sameign þjóðarinnar.“ Tekist var á um frumvarpið á Alþingi og víðar í samfélaginu og skrifuðu 30 þúsund manns undir áskorun til forseta Íslands að samþykkja ekki frumvarpið heldur vísa því í þjóðaratkvæði. Vegna deilna um frum- varpið og óánægju víða í samfélaginu hætti Sig- urður Ingi svo við að leggja það fram og hefur ekki heyrst af því síðan. Brúneggjamálið Sjaldan hafa viðbrögð almennings við einu hneykslismáli eftir hrun verið eins hávær og afgerandi og eftir að Kastljósið sýndi þátt sinn um eggjaframleiðandinn Brúnegg í lok nóvember árið 2016. „Neyt- endur blekktir um árabil,“ sagði Kastljós en í ljós kom að brúnu „vistvænu“ eggin, sem íslenskir neytendur höfðu keypt um árabil á 40 prósent hærra verði en önnur egg, eru ekki vistvæn að mati Mat- vælastofnunar. Fjöldi fólks sagði á samfélagsmiðlum eftir þáttinn að það teldi sig hafa verið haft að fífli og margar verslanir tók brúnu eggin úr sölu hjá sér, meðal annars Melabúðin en einn eigandi hennar, Pétur Guðmundsson, sagði meðal annars: „Eins og er teljum við okk- ur ekki geta verið með þessi egg í sölu.“ Eigendur Brúneggja báru sig hins vegar illa í kjölfarið og sagði Kristinn Gylfi Jónsson, annar eig- andinn: „Þetta hefur verið mjög erfitt fyrir okkur persónulega, bræðurna, vegna þess að við erum búnir að vera í landbúnaði alla ævi.“ Ljóst er að erfitt verður fyr- ir Brúnegg að byggja upp rekstur sinn á nýjan leik eftir þetta enda traust neytenda í garð fyrirtækis- ins horfið. Ólafur Ólafsson. Sigurðar Ingi Jóhannsson. Bjarni Benediktsson. Geir H. Haarde. Kristinn Gylfi Jónsson. Mynd | Rúv 16. desember Opnar 10:00 Lokar 20:00 20. desember Opnar 10:00 Lokar 21:00 24. desember Opnar 10:00 Lokar 12:00 17. desember Opnar 10:00 Lokar 21:00 21. desember Opnar 10:00 Lokar 21:00 25. desember Lokað 18. desember Opnar 13:00 Lokar 21:00 22. desember Opnar 10:00 Lokar 21:00 19. desember Opnar 10:00 Lokar 21:00 23. desember Opnar 10:00 Lokar 23:00 Opnunartími verslana til jóla Í Glæsibæ eru fjölmargar verslanir og þjónustuaðilar og tilvalið að gera jólainnkaupin. Næg bílastæði. Frábær jólastemning! Gerðu jólainnkaupin í Glæsibæ 34 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 16. desember 2016
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.