Fréttatíminn - 16.12.2016, Qupperneq 46
46 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 16. desember 2016
Tvær af bestu bókum ársins eru
ekki tilnefndar til Bókmennta-
verðlauna Íslands og áttu aldrei
möguleika. Hvorki Steinunn
Sigurðardóttir né Vigdís Gríms
fengu tilnefningu fyrir ævisögur
sínar enda hinir freku og athygl-
issjúku karlrithöfundar búnir að
sannfæra okkur um að ævisögur
séu ómerkilegar en skáldævisög-
ur ekki. Mikael Torfason rithöf-
undur er ekki með í jólabókaflóð-
inu að þessu sinni en las mikið
2016 og telur okkur eiga við
skilgreiningarvanda að stríða.
Mikael Torfason
mikael@frettatiminn.is
Skáldævisagan og nonfiction
dollara eftir til að sjá fyrir sér og
tveim sonum sínum þegar hún
hefur greitt leigu fyrir grenið sem
litla fjölskyldan býr í.
Það tók Matthew átta ár að
skrifa bókina og er hún afrakstur
vandaðrar rannsóknarvinnu.
Höfundur starfar sem kennari við
Harward háskóla en flutti inn í
hjólhýsahverfi til að kynnast að-
stæðum fólksins sem hann skrifar
um og svo elti hann þessar fjöl-
skyldur í verstu hverfi Milwaukee.
Við getum heimfært margt úr
Evicted yfir á Ísland. Bókin er um
fólk sem nær ekki endum saman,
er á vergangi og hefur ekki efni á
að borga leigu. Miklu fleiri en við
viljum kannast við búa við þær
aðstæður hér á landi. Samkvæmt
nýjustu rannsóknum versna að-
stæður fátækra barna á Íslandi ár
frá ári. Samkvæmt útreikningum
ASÍ ætti húsnæðiskostnaður ekki
að vera meira en 20-25% prósent
af tekjum. Í nýjustu launakönnun
Flóabandalagsins, verkalýðsfélaga
á höfuðborgarsvæðinu, eru með-
allaun félagsmanna 357 þúsund
fyrir skatt en það gera 262.500.-
útborgað. Þú færð þriggja her-
bergja íbúð hjá Gamma í gegnum
Almenna leigufélagið þeirra –
nýja Verkó – fyrir um 200 þús-
und krónur á mánuði í Kötlufelli.
Auðveldur hugarreikningur segir
manni hvað stendur eftir.
Evicted er á lista New York
Times yfir bestu bækur ársins.
Susan Faludi
Femínsta-
hetjan Susan
Faludi hef-
ur skrifað
eftirminni-
legar bækur
á borð við
Backlash
og Stiffed.
Fyrrnefnd
bók fjallar
um bakslag
kven-
réttindabaráttunn-
ar og sú síðarnefnda fjallar um
stöðu karlmennskunnar í Banda-
ríkjunum sem er með miklum
ósköpum.
Báðar þessar bækur standa vel
fyrir sínu en í ár kom besta bók
Susan Faludi út: In the Darkroom.
Hún er á lista New York Times yfir
bestu bækur ársins. Þetta er ótrú-
lega saga um samband Susan við
föður sinn, Steven, nú Stephanie.
Hér er verið að takast á grund-
vallarspurningar sem snúa að
stöðu okkar í nýjum heimi sem
lúta fjölþættari skilgreiningum á
kynhlutverkum. Ofbeldisfullur
faðirinn flytur til Ungverjalands
einmitt þegar fasisminn er aftur
að ná þar fótfestu en þegar Steven
Faludi flúði þaðan, sem ungur
maður, hafði hann lifað af helför
nasista sem var dyggilega studd
af ungversku fasistahreyfingunni.
En nú er hann sem sagt snúinn
aftur og ferðast þaðan til Tælands
til að leiðrétta kyn sitt.
Susan eltir hann eftir að hafa
fengið ímeil frá Stephanie og hún
reynir að skilja þessa fyrrum
gegnheilu karlrembu, afsprengi
umhverfis síns sem hafði geng-
ið í gegnum svo margt hræðilegt
sem karlmaður en er nú orðinn
transkona. Umskiptin eru alger.
Þessi bók er listilega vel skrif-
uð, bókmenntagildið sem slíkt
er ótvírætt auk þess sem hún
varpar fram stórum og mikil-
vægum spurningum. Hún krefur
okkur svara án þess að kaupa sér
allibí með því að fela sig bak við
hugtakið skáldævisögu. Þetta er
nonfiction. Við eigum öll að lesa
þessa bók.
Hvernig varð Isis til?
Pulitzerinn í nonfiction þetta
árið fór til blaðamannsins Joby
Warrick en bók hans heitir Black
Flags og fjallar um það hvernig
Isis varð til.
Joby skrifar
fyrir Was-
hington Post
og hefur
áður feng-
ið Pulitzer
fyrir blaða-
skrif. Það
er auðvitað
með miklum ólíkindum að lesa
um það hvernig aðstæður í Írak
og vanhæfni Bush og hans félaga
leiddu til þess að Jórdaninn al-
-Zarqawi náði að skáka sjálfum
Bin Laden í illvirkjum. Isis, eða
Daesh, ráða nú yfir stórum lands-
hluta í Írak, Sýrlandi og víðar.
Ég hef venjulega ekki gaman af
svona herbókum. Bróðir minn,
fyrrverandi sérsveitarhermaður
í breska hernum, hefur stundum
gefið mér svona bækur – aðallega
þegar hann hefur komið fyrir í
þeim sjálfur – og þetta eru yfirleitt
leiðinlegar bækur. Black Flags er
ekki leiðinleg. Hún er vel skrifuð,
stórskemmtileg og áhugaverð.
Jólin 1997 birtist okkur fyrst
hugtakið skáldævisaga í hinu
séríslensku jólabókaflóði. Guð-
bergur Bergsson var þá að gefa út
endurminningar sínar og honum
og Jóhanni Páli Valdimarssyni út-
gefanda dugðu ekki fyrri hugtök.
Ævisaga Guðbergs var auðvitað
miklu merkilegri en hefðbundn-
ar íslenskar ævisögur. Allar götur
síðan hafa flestir lærisveinar
Guðbergs skilgreint sínar bækur
samkvæmt þessu tæplega tuttugu
ára gamla hugtaki. Sem grund-
vallast ekki á öðru en því að innri
átök Guðbergs eru svo miklu
merkilegri en búksorgir sendi-
herrafrúa. Meðan þessu fer fram
á Fróni hefur hins vegar orðið
sú þróun úti í hinum stóra heimi
að endurminningar og ævisögur
þykja góðra gjalda verðar. Þar hef-
ur verið að rísa bylgja sem gæti
verið undir slagorðinu: NonFict-
ion Is the New Fiction.
Fátækt fólk
Evicted eftir Matthew Desmond
er mikilvæg bók sem kom út í
upphafi árs en í henni rekur hann
sögu átta fátækra fjölskyldna í
Milwaukee í Bandaríkjum nútím-
ans. Þetta er fólk eins og Arleen
sem er einstæð móðir sem á 20
Mynd | Getty
Við getum heimfært
margt úr Evicted yfir á
Ísland. Bókin er um fólk
sem nær ekki endum
saman, er á vergangi og
hefur ekki efni á að borga
leigu. Miklu fleiri en við
viljum kannast við búa
við þær aðstæður hér á
landi.
Sjáumst á
Jólatorginu
MIDBORGIN.IS
FACEBOOK.IS/MIDBORGIN
OPIÐ TIL KL. 22 Á JÓLATORGINU
OG Í VERSLUNUM TIL JÓLA
Fáðu hátíðarskapið beint í æð á Jólatorginu á
Hljómalindarreitnum og gerðu jólainnkaupin
í skemmtilegu umhverfi. Við minnum á nýtt
Gjafakort Miðborgarinnar okkar, fáanlegt
í öllum bókaverslunum miðborgarinnar.
Bergstaðir
Kolaport
Ráðhúsið
Stjörnuport
Traðarkot
Vesturgata
Vitatorg
NÆG BÍLASTÆÐI OG MUNIÐ BÍLASTÆÐAHÚSIN