Fréttablaðið - 11.03.2017, Page 10

Fréttablaðið - 11.03.2017, Page 10
INTERSPORT BÍLDSHÖFÐA / SÍMI 585 7220 / OPIÐ: MÁN. - FÖS. 10 - 18. LAU. 10 - 18. SUN. 13 - 17. BÍLDSHÖFÐA / AKUREYRI / SELFOSSI AF ÖLLUM ÆFINGAFATNAÐI TAX FREE TAX FREE JAFNGILDIR 19,36% VERÐLÆKKUN. DAGANA 9. – 13. MARS 2017. GILDIR EKKI UM VÖRUR Á ÁÐUR LÆKKUÐU VERÐI. *GILDIR AÐEINS Á FATNAÐI. 9.-13. MARS Ástralía Sumarið í Ástralíu varð það heitasta og blautasta síðan mælingar hófust. Sums staðar fór hitinn yfir 35 stig 54 daga í röð. Alls voru meira en 200 veðurmet slegin sumarmánuð- ina þrjá, sem þar eru desember, janúar og febrúar. Þetta kemur fram í skýrslu Lofts- lagsráðs Ástralíu, þar sem fullyrt er að Ástralíubúar hafi aldeilis fengið að kenna á loftslagsbreytingum af mannavöldum þetta sumarið. Skýrslan nefnist Angry Summer, eða reiða sumarið. Mikill munur var þó á veðrinu eftir því hvar í Ástralíu borið er niður. Í austurhluta álfunnar voru miklar hitabylgjur, steikjandi heitir dagar og mikið um gróðurelda. Í vesturhlutanum var hins vegar úrhellisrigning með miklum flóðum. Meðal annars er nefnt að íbúar borgarinnar Adelaide hafi ekki upp- lifað meiri hita á jóladag í sjötíu ár, en nú í sumar komst hitinn þar upp í 41,3 gráður á Celsius. Og í Sydney varð hitinn meiri en nokkru sinni hefur mælst, eða 2,8 stigum hærri en meðaltalið. Fullyrt er að þessi þróun eigi eftir að halda áfram. Búast megi við meiri öfgum í veðri með tíðari hitabylgj- um og nýjum hitametum. Alls gerðist það á að minnsta kosti nítján stöðum í Ástralíu að hitinn komst yfir 40 stig fleiri daga en áður hefur mælst, og er þá miðað við að minnsta kosti 40 ára tíma- bil. Alvarlegasta hitabylgjan þetta sumarið hófst 31. janúar og stóð til 12. febrúar. Þessir miklu hitar kosta þjóð- félagið stórfé. Enn eigi að vísu eftir að meta kostnaðinn af sumrinu sem var að líða, en vitað sé að sumarið 2013 til 2014 hafi kostað ástralska skattborgara um það bil átta millj- arða dala, eða nærri 650 milljarða króna. Hitabylgjurnar í Ástralíu hafa veruleg áhrif á heilsu margra. Lofts- lagsráð Ástralíu telur að á tíma- bilinu 1890 til 2013 hafi hitabylgjur kostað um 2.900 manns lífið, en það eru fleiri dauðsföll en urðu samtals af völdum gróðurelda, fellibylja, jarðskjálfta, flóða og ofsaveðurs á þessu sama tímabili. gudsteinn@frettabladid.is Sumarveðrið varð Áströlum dýrkeypt Miklar hitabylgjur voru í austurhluta Ástralíu sumarmánuðina þrjá, desember til febrúar, en úrhellisrigning og flóð í vesturhlutanum. Loftslagsráð Ástralíu talar um „reiða sumarið“ og spáir fleiri slíkum. Búast megi við meiri öfgum i veðrinu með tíðari hitabylgjum. Gróðureldar eyðilögðu tugi heimila í austurhluta Ástralíu. Nordicphotos/AFp © GRAPHIC NEWSHeimild: Climate Council Kimberley-svæðið Metrigning í desember á ýmsum stöðum HELSTU VEÐURMET Brisbane: Meðalhiti sumarsins hærri en nokkru sinni. Y‡r 30 stiga hiti 30 daga í röð. Queensland: Næstheitasta sumrið Moree 35 stiga hiti eða hærri mældist 54 daga í röð, sem er met í Nýja Suður-Wales Sydney Heitasta sumar sögunnar Canberra Mesti daghiti að sumri til Perth: Heildarúrkom a sumarsins varð meiri en nokkru sinni Adelaide Heitasti jóladagur í 70 ár (41,3°C) Nýja Suður- Wales Heitasta sumarið í nærri 45 prósentum fylkisins Gróðureldar á nærri hundrað stöðum samtímis í febrúar, að minnsta kosti 30 heimili eyðilögðust í eldi Loœslagsbreytingar valda því að ofurhitar að sumarlagi eru nærri 50 sinnum líklegri en áður Hitamet Staðreynd um hitastig Úrkomumet Staðreynd um skógarelda Staðreynd um loœslag 89 staðir Mesta úrkoma að sumri til 66 staðir Mesti hiti að sumri til 50 staðir Aldrei ¤eiri sumardagar með hita y‡r 35 gráðum Alls féllu meira en 205 veðurmet sumarið 2016-17 (des-feb) VESTUR- ÁSTRALÍA NORÐUR- HÉRAÐIÐ QUEENSLAND NÝJA SUÐUR- WALES SUÐUR- ÁSTRALÍA VIKTORÍA TASMANÍA Á S T R A L Í A Hvert veðurmetið á fætur öðru Sumarið í Ástralíu hefur verið óvenju svæsið, með steikj- andi hita sums staðar, gríðarlegu úrhelli annars staðar og gróðureldar hafa eyðilagt tugi húsa. samfélag Íbúar Árborgar þann 1.  mars voru 8.517 og hefur þeim fjölgað um 249 síðan í mars á síð- asta ári eða um rúm þrjú prósent. Tölurnar voru lagðar fram á bæjar- stjórnarfundi í Árborg. Alls eru 33 íbúar óstaðsettir en 7.152 búa á Selfossi, 294 í dreif- býli, 516 á Eyrarbakka og 17 í dreif- býli þorpsins. Alls eru 522 íbúar á Stokkseyri og 75 í dreifbýli. – bb Íbúum Árborgar fjölgar um 249 suður-Kórea Park Geun-hye hefur endanlega verið rekin úr embætti forseta Suður-Kóreu vegna hneyksl- ismáls sem tengist trúnaðarvinkonu hennar, Choi Soon-sil. Stjórnarskrárdómstóll landsins staðfesti í gær niðurstöðu þjóðþings landsins, sem ákvað í desember síðastliðnum að svipta hana emb- ættinu, tæplega fjórum árum eftir að hún tók við því. Um leið er hún svipt þinghelgi þannig að nú verður hægt að draga hana fyrir dómstóla. Hún er sökuð um að hafa not- fært sér stöðu sína sem forseti til að hjálpa vinkonunni að hagnast. Þetta á hún að hafa gert með því að þrýsta á fyrirtæki til að fá þau til að gefa stórfé til tvennra samtaka, sem vinkonan stofnaði. Park hefur viðurkennt að hafa sýnt af sér kæruleysi og barnaskap, en neitar að hafa þröngvað fyrir- tækjunum til eins eða neins. Hún þvertekur einnig fyrir að hafa látið vinkonu sína hafa áhrif á störf sín eða gert henni kleift að hafa áhrif á ríkismálefni. Stjórnlagadómstóllinn komst hins vegar að þeirri niðurstöðu að vinkonan hefði í raun blandað sér í málefni ríkisins. Park hafi hins vegar gert allt til að fela það að mati dómstólsins. Mótmæli hafi verið tíð í Seúl, höfuðborg Suður-Kóreu, eftir að hneykslismálin komu upp. En Geun-Hye á sér líka stuðningsmenn. Þeir þustu út á götur borgarinnar og létu í sér heyra eftir að niðurstaðan varð ljós í gær. – gb Forseti Suður-Kóreu sviptur embætti park Geun-hye viðurkenndi barnaskap og kæruleysi. FréttAblAðið/EpA 7.152 búa á Selfossi samkvæmt tölum sem kynntar voru. 1 1 . m a r s 2 0 1 7 l a u g a r D a g u r10 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð 1 1 -0 3 -2 0 1 7 0 4 :3 2 F B 1 2 0 s _ P 1 1 4 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 1 1 1 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C 6 C -D 0 7 0 1 C 6 C -C F 3 4 1 C 6 C -C D F 8 1 C 6 C -C C B C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 A F B 1 2 0 s _ 1 0 _ 3 _ 2 0 1 7 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.