Fréttablaðið - 11.03.2017, Side 12

Fréttablaðið - 11.03.2017, Side 12
 Þú nærð nýjum hæðum í Cross Polo. Frábærir eiginleikar og ríkulegur staðal- búnaður breyta akstrinum í ævintýr. Komdu og prófaðu nýjan Cross Polo. www.volkswagen.is HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ Tilboðsverð frá: 2.990.000 kr. 5 ára ábyrgð • 17,5 cm veghæð • Hraðastillir • Íslenskt leiðsögukerfi • Xenon aðalljós og LED dagljós • Nálgunarvarar að aftan og framan • 17" Canyon felgur • Hiti í framsætum • App Connect með Mirror Link og Apple Car Play • Bluetooth búnaður fyrir síma og afspilun á tónlist Tilbúinn í ný ævintýr. VW Cross Polo 400.000 kr. afslátt ur! Verðlistaverð: 3.390.000 kr. „Mér finnst mikilvægt að styðja við íbúa, bæði þá sem búa hér eða hafa gert það. Þá sem vilja tjá sig um rétt- indi sín og hag,“ segir Guðmundur Ármann Pétursson, framkvæmda- stjóri Sólheima, um gagnrýni á aðbúnað fatlaðra íbúa. Tveir fyrrverandi íbúar á Sólheim- um gagnrýndu bág launakjör, óljóst fyrirkomulag í innheimtu kostnaðar og skort á sjálfræði í viðtölum við Fréttablaðið og Átak, félag þroska- hamlaðra. Í viðtölunum kom fram að þótt þeim hefði liðið vel um tíma á Sólheimum hefði aðbúnaði hrakað eftir hrun. Þá væru samgöngur frá Sólheimum bágar og bæði erfitt og flókið væri að flytja sig frá staðnum í annað úrræði. Guðmundur segist taka umræðu og gagnrýni íbúanna fyrrverandi fagnandi. „Það er auðvitað krefjandi, stundum erfitt, en það þurfa allir að eiga sína rödd. Það er líka þannig að við verðum öll, sem gætum hags- muna fatlaðra, að vera gagnrýnin á eigin samtíma. Við erum öll í eðli okkar sjálflæg og hættir til að líta þannig á að í dag búum við í hinum fullkomna heimi. Svo þegar við lítum til baka eftir tíu ár, þá er kannski eitt- hvað sem við skiljum ekki af hverju við færðum ekki í betra horf, “ segir Guðmundur. Guðmundur segir að frá því að réttindagæslumenn hafi fyrst gert athugasemdir við aðbúnað á Sól- heimum hafi verið brugðist við. Hann líti svo á að starfsemin sé í stöðugri þróun. „Við leggjum til dæmis mjög hart að okkur núna við að auka gagnsæi. Styrktarsjóður Sól- heima á og rekur nánast allt íbúðar- og þjónustuhúsnæði. Sami lögaðili heldur ekki um eignarhald og veitir þjónustuna. Við breyttum einnig rekstri fyrirtækja á Sólheimum árið 2015 þannig að þau eru í sérstakri sjálfseignarstofnun, Sólheimasetri, þannig að þau tengjast ekki á nokk- urn hátt fjármunum sem varið er til þjónustu við fólk með fötlun.“ Réttindagæslumenn gagnrýndu að sumt húsnæði á Sólheimum væri óhentugt. Of margir íbúar byggju í hverju húsi og deildu einu salerni. „Eftir breytingu munu þrír til fjórir búa í húsinu og rúmt verður um hvern og einn. Þrjú salerni og eld- húsaðstaða fyrir hvern og einn,“ bendir Guðmundur á. Eitt af því sem fyrrverandi íbúar Sólheima deildu á var að greiðslur þeirra til Sólheima voru ekki sundur- liðaðar. „Nú er þetta sundurliðað og allur kostnaður sýnilegur. Hér greiða íbúar fyrir húsaleigu, hita og rafmagn, innkaup í búð Sólheima og mötuneyti. Hver innkaup og greiðsla í mötuneytinu er gjaldfærð.“ En hvað með þá ásökun að íbúar væru vaktaðir með myndavélum án leyfis? „Við vorum með mynda- vélar í rými hjá öldruðum íbúum til að gæta að þjónustu til þeirra. Við tókum myndavélarnar umsvifa- laust niður eftir ábendingu og við erum mjög meðvituð um að vöktun þarfnast leyfis,“ segir hann frá. Í athugasemdum réttindagæslu- manns kom fram að persónulegur póstur til íbúa væri opnaður. „Það hefur ekki gerst án þess að eigandi bréfanna sé viðstaddur. Póstur varð- andi fjármál nokkurra íbúa hefur verið opnaður og settur í möppur sem tilheyra hverjum og einum. Við fengum þá ábendingu að þessar möppur ættu að vera staðsettar á heimilum viðkomandi. Þetta hefur verið lagfært,“ segir Guðmundur og segir staðhæfingu um að póstur sé opnaður á skrifstofu sinni alranga. Launin sem fyrrverandi íbúar Sól- heima greindu frá voru allt frá 10 til 30 þúsund krónur á mánuði. Eftir hvaða reglum er farið? „Við greiðum vasapeninga og það er svona metið eftir því hvert vinnuframlagið er hvað upphæðin er há,“ segir Guð- mundur. „Þetta er svona á fjölda verndaðra vinnustaða á Íslandi,“ bendir hann á og segir líklega betra að fara að kalla greiðsluna réttu nafni, vasapeninga. Eru íbúar á Sólheimum ekki frjálsir ferða sinna? Eiga þeir bágt með að komast til og frá Sólheimum? „Það er langur vegur frá því að hér séu íbúar frjálsir ferða sinna,“ segir Guð- mundur. „Sólheimar eiga samkvæmt lögum ekki að keyra nokkurn mann hvorki innan né utan byggðar. Það eru t.d. tæplegar 20 einstaklingar búsettir á Sólheimum sem sam- kvæmt ákvörðun velferðarþjónustu Árnesþings eiga ekki rétt á neinni ferðaþjónustu. Nokkrir þessara ein- staklinga hafa stefnt sveitarfélaginu og er það mál fyrir Hæstarétti. Svo er fjöldi einstaklinga með mjög tak- markaða ferðaþjónustu.“ Guðmundur styður réttinda- baráttu fatlaðs fólks og segist stoltur af þeim sem hafa stigið fram. „Ég er ánægður með þá sterku einstaklinga sem hafa rætt opinberlega um mál- efni sín og Sólheima.“ Stoltur af íbúum og mætir gagnrýni Guðmundur Pétursson, framkvæmdastjóri Sólheima, fagnar opinni umræðu um aðstæður fatlaðs fólks. Umræðan sé krefjandi en hann segist ætla að leggja sig fram við að bæta aðstæður íbúa á Sólheimum enn frekar og vill betri samgöngur til og frá Sólheimum. „Við verðum öll, sem gætum hagsmuna fatlaðra, að vera gagnrýnin á eigin samtíma,“ segir Guðmundur Ármann Pétursson. Fréttablaðið/Vilhelm Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjana@frettabladid.is visir.is Lengri útgáfa af greininni er á Vísi Það er auðvitað krefjandi, stundum erfitt, en það þurfa allir að eiga sína rödd. 1 1 . m a r s 2 0 1 7 L a U G a r D a G U r12 f r é t t i r ∙ f r é t t a B L a ð i ð 1 1 -0 3 -2 0 1 7 0 4 :3 2 F B 1 2 0 s _ P 1 1 6 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 1 0 9 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C 6 C -B C B 0 1 C 6 C -B B 7 4 1 C 6 C -B A 3 8 1 C 6 C -B 8 F C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 1 2 0 s _ 1 0 _ 3 _ 2 0 1 7 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.