Fréttablaðið - 11.03.2017, Qupperneq 27
l Af stríðsþjóðunum voru
Sovétríkin duglegust að nýta
starfskraft kvenna í hernaði í
seinni heimsstyrjöldinni. Líkt og
í öðrum löndum unnu flestar
konur í hergagnaiðnaði, land-
búnaði og fylltu upp í störf sem
menn höfðu yfirgefið til að
berjast á vígstöðvunum. Rétt
innan við milljón konur þjónuðu
í Rauða hernum. Þær voru flug-
menn, leyniskyttur, loftvarna-
hermenn, vélbyssuskyttur,
í áhöfnum skriðdreka, loft-
skeytamenn, læknar, hjúkrunar-
fræðingar og partisanar. Áttatíu
og níu konur voru sæmdar
hinu æðsta heiðursmerki, hetja
Sovétríkjanna.
l Eftir innrás Þjóðverja buðu
þúsundir kvenna sig fram til
þjónustu í Rauða hernum en
flestum var hafnað. Eftir hið
gífurlega mannfall fyrsta árið
opnuðust leiðir fyrir konur í
herinn. Yfirleitt voru þeim fengin
störf aftan við víglínurnar til að
geta losað karlmenn í átökin
en margar börðust samhliða
bræðrum sínum.
l Mörg afreka þeirra urðu fræg um
Sovétríkin, til að mynda hlaut
ein flugdeildin sem aðeins var
mönnuð konum viðurnefnið
Næturnornirnar hjá Þjóðverjum.
Þær flugu úreltum tvíþekjum. Af
því að vélarnar voru úreltar flugu
þær mest á nóttunni og áttu það
til að drepa á vélunum á meðan
þær flugu yfir víglínu Þjóðverja
og sleppa sprengjum sínum
fyrirvaralaust.
l Rauði herinn komst líka að því
að konur voru vel til þess fallnar
að gerast leyniskyttur. Þær voru
þolinmóðar, þoldu vel að vera
í erfiðri líkamlegri stöðu og
agaðar. Lyudmila Pavlichenko
var ein afkastamesta leyniskytta
Sovétríkjanna með 309 staðfest
dráp.
l Konur sinntu mörgum verkum
í sovéska hernum og lögðu sitt
af mörkum til lokasigursins. Á
sama tíma fyrirbauð Hitler það
alveg að konur sinntu öðrum
störfum en ritarastörfum í
þýska hernum. Að hans mati var
það hlutverk kvenna að sinna
heimilinu og ala börn.
l Framlag kvenna var þó sjaldan
að fullu metið í Rauða hernum.
Konur í yfirmannsstöðu áttu
erfitt með að fá karlmenn til
að hlýða skipunum sínum og
kynferðisleg áreitni var útbreidd.
Karlkyns yfirmenn áttu það
til að taka sér frillur og kölluð
þær vígvalla-eiginkonur. Konur
í stöðu undirmanna áttu erfitt
með að komast undan ágangi
sumra þeirra. Líkt og í flestum
menningarsamfélögum þess
tíma var það álitinn siðferðis-
brestur kvenna að slík sambönd
mynduðust í stað þess að skella
skuldinni á karlmennina. Önnur
ástarsambönd mynduðust
á milli annarra hermanna og
kvenna en það þurfti að fara
leynt með þau sambönd.
Gísli Jökull Gíslason, Föðurlandsstríðið
mikla og María. Austurvígstöðvarnar í
seinni heimsstyrjöldinni. Vinnuhand-
rit, bls. 100
Konur í Rauða hernumþrátt fyrir allt. „Þeir eru eins og ég.
Stundum hugsa ég hverjir foreldrar
þeirra voru, þegar ég hitti þá. Þeir eru
gott fólk og bera enga ábyrgð á því
sem gerðist þá.“
Sér ekki hafið
María Alexandrovna segir líf sitt hafa
verið gott. Fljótlega eftir stríð hitti
hún verðandi eiginmann sinn Júríj
Mitrofanov. Þau eignuðust dótturina
Marínu, sem gekk í háskóla og lærði
læknisfræði og útskrifaðist sem
geðlæknir. Við hrun Sovétríkjanna
breyttist líf fjölskyldunnar til hins
verra, þau bjuggu þá í borginni Ríga
í Lettlandi þar sem þeim fannst þau
ekki lengur velkomin. Eftir stofnun
Lettlands var þeim tilkynnt að fjöl
skyldan fengi ekki ríkisborgararétt.
Kvöld eitt árið 1999 héldu þau fjöl
skyldufund og ræddu hvað þau ættu
að gera. Maður Marínu vann fyrir
erlent skipafélag og litlu skipti hvar
þau myndu búa. Þau voru sammála
um að þau vildu ekki lengur ala upp
syni sína í Lettlandi. Það var á meðan
þau veltu þessu fyrir sér að gamall
vinur hringdi í þau. Sá var fluttur til
Íslands og vildi að þau flyttu þangað,
sem varð úr.
Þegar eiginmaður Maríu Alexandr
ovnu lést árið 2005 var ekkert sem
hélt henni lengur í Lettlandi og hún
fluttist til dóttur sinnar á Íslandi.
„Ég kann ekki tungumálið. Það eru
svo fáir sem tala tungumálið mitt. Svo
eru svo fáir hérna á Íslandi á mínum
aldri. Ég er því mikið ein,“ segir María
spurð um hvernig henni hafi liðið
á Íslandi. „Þegar við bjuggum í mið
bænum gat ég farið í göngutúr þegar
veður leyfði; það var hægt að fara
niður á bryggju og tala við sjómenn
ina. Stundum fékk ég í soðið hjá þeim.
Svo fór ég stundum niður að tjörn, og
í miðbænum voru ýmsar sýningar og
tónleikar. En hérna upp frá finnst mér
svolítið erfitt að vera. Í Ríga bjó ég við
fljótið – þar gat ég tyllt mér á bekkina
og spjallað við fólk á mínum aldri.
Hér veit ég að hafið er nálægt, en ég sé
það ekki,“ segir María Alexandrovna.
Spurð hvort hún hugsi oft heim, er
svarið einfalt. „Stöðugt.“
Það verður vart hjá því komist,
verandi íslenskur, að spyrja Maríu
hverju hún þakkar sinn háa aldur,
sérstaklega í ljósi sögu hennar.
„Þessu er ömmustrákurinn minn
alltaf að spyrja mig að. Foreldrar
mínir hvorki reyktu né drukku. Pabbi
og mamma fóru alltaf vel með sig og
börnin sín, þó þau væru ströng. Við
ólumst öll upp heilbrigð og hraust,
þó systir mín hafi fengið skarlatssótt
og dáið fimmtug. Reyndar hefur mig
alltaf langað til að reykja og prófaði
nokkrum sinnum. En í hvert einasta
skipti leið mér svo illa að ég hætti
við. Ég get ekki sagt að ég hafi aldr
ei smakkað vín – við fengum okkur
stundum kampavín eða kirsuberja
líkjör á stórhátíðum. En við drukkum
aldrei á hverjum sunnudegi, hvað þá
oftar. Bróðir minn, sem er fjórum
árum yngri en ég, drekkur samt
og reykir svo sterkar sígarettur að
nágranni hans kvartar stöðugt. Svo
hverju get ég svarað?“ segir María
Alexandrovna að lokum.
Jökull og María hittust vegna hátíðarhalda rússneska sendiráðsins á Íslandi;
með þeim tókst vinskapur og úr varð bók. Mynd/MagnúS Þór HafSteinSSon
89
konur voru sæmdar
æðsta heiðursmekri
sovétríkjanna.
↣
Það er ekki bara matur og
næringin sem hann inniheldur
sem fær einstakling til að glóa,
heldur er það líka það sem
einstaklingurinn gerir til að fá
andlega og sálarlega næringu
eða fyllingu. Þegar Gló fór af
stað fyrst snérist það vissulega
um að framreiða góðan og
hollan mat en forsendurnar
voru ástríða og kærleikur. Nú
árið 2017 eru komin um 10 ár
frá því að Gló steig sín fyrstu
skref á heilsufæðismarkaðnum
og í ár setur Gló fókusinn á að
fá fólk til að efla sig. Innra
með okkur öllum býr eitthvað
sem við öll verðum að finna á
lífsleiðinni og rækta. Og það er
okkar eigið gló.
Skilaboðin hafa loksins
skýrst
Fyrstu teiknin um að eitthvað
væri að fara að gerast voru að
finna í strætóskýlum á víð og
dreif um höfuðborgarsvæðið.
En að baki þessum
skilaboðum liggur mikil og
ígrunduð vinna. Hvernig er
viðlíka skilaboðum komið á
framfæri svo megi skilja þau
og meðtaka? Auglýsingastofan
Hvíta húsið á veg og vanda af
þeirri auglýsingaherferð sem
Gló er að fara af stað með. Það
er engu líkara en allt hafi fallið
Fókusinn er á gló
á rétta staði sem hefur leitt til
herferðar sem er sönn.
Tilgangur hennar er af
einlægni að fá fólk til að leita
inn á við og finna það sem
gefur lífi þeirra gildi, lætur
hjörtu þeirra tikka eða vekur
með þeim ómælda gleði.
Tímamót og hugrekki
Gló stóð á tímamótum bæði
vegna stækkunar og
fyrirhugaðar útrásar til
Kaupmannahafnar þar sem
staður mun opna fljótlega.
Auglýsingastofan Hvíta húsið
vann samkeppni meðal
auglýsingastofa og herferðin
Skapaðu þitt eigið gló er
fulltrúi þess tóns sem Gló
stendur fyrir. Það er
óneitanlega ákveðið hugrekki
fyrir matsölustað að tala af
einlægni og hreinskilni og
draga úr talanda
auglýsingalands. En það er
Gló: starfsfólkið sem vinnur
þar, vörurnar sem eru valdar
inn til sölu, gæði matarins,
námskeiðin sem fyrirtækið
stendur fyrir, allt þetta er
gert af einlægni.
Glóandi drottning
Ekki er nóg að finna
hugmynd heldur þarf hún að
vera framkvæmanleg. Leit
hófst að einstaklingum sem
Veitingastaðurinn Gló afhjúpar sig
Gógó Starr er sönn drottning sem glóir
vildu taka þetta verkefni að
sér og það var ekki verra að
allir þeir bjuggu yfir sama
hugrekki og glói og herferðin
snérist um. Gógó Starr er
dragdrottningin sem býr
innra með Sigurði Heimi
Guðjónssyni sem er yfirleitt
kallaður Siggi. Hann flutti til
Reykjavíkur að norðan eftir
að hafa unnið í dragkeppni
Íslands árið 2015. Hann er
einn af stofnendum framkomu-
hópsins Drag-súgur.
Hópurinn hefur stækkað
verulega frá stofnun og eru
nú rúmlega 20 listamenn að
koma reglulega fram. Hann
hefur fundið sitt innra gló og
er að rækta það. Þetta er
fyrir alla þá sem rækta það
sem þau elska í lífinu. Gefðu
lífinu lit og finndu þitt gló.
Kíktu á glo.is.
Skapandi samstarf
Ástríða og kraftur hefur
einkennt alla vinnu við
herferðina. Tónlist er í
höndum Stop, Wait, Go og
hinn ungi Ísak stígur sín
fyrstu opinberlegu skref sem
söngvari. Hið öfluga teymi
Hard & Holy voru
leikstjórar og skipulögðu
tökur. Þetta var snarpt og
tók einungis einn tökudag.
Gleðin og samheldnin var
lykilatriðið sem sá til þess að
þetta gekk upp. Gló hefur nú
verið að stíga fastar til jarðar
og er nýja útlitið og tónninn í
takti við það.
Boðskapurinn er að hvetja
fólk til að finna sitt gló, alveg
sama af hvaða tegund það er.
Ef það er leiklist, myndlist,
eldamennska, hlaup, söngur
eða stærðfræði, þá hvetur
Gló einstaklinga til að
umfaðma það og rækta.
Skál fyrir alla
Þrátt fyrir að Gló hafa
starfað í nærri 10 ár hefur
þessi boðskapur verið
fljótandi með í öllu starfi
fyrirtækisins og nú er hann
dreginn fram. Gló er þannig
fyrirtæki að það tekur vel á
móti öllum einstaklingum og
er ekki veitingahús eða
matsölustaður einhvers
einsleits hóps. Á Gló er að
finna margar týpur ef svo
mætti segja, bæði í starfsfólki
og í viðskiptavinum. Allir eru
velkomnir og þeir sem eru að
stíga sín fyrstu skref inn um
dyr Gló þurfa ekki að óttast
að reykelsisilmur eða
áruhreinsun taki á móti
þeim. Það þarf kjark að
breyta um stefnu og ætla að
sinna líkama sínum betur og
veita honum aðeins góða
næringu. Þeir sem hafa
kannski mikið sóst í
skyndibita vita ekki að
Skálin er t.d. skyndibiti og
tekur enga stund að útbúa.
Sneisafull af þeirri hollustu
sem þú kýst, bæði hægt að
velja grænmetis eða með
kjöti. Þú ræður hvað fer í
Skálina og stjórnar alfarið
samsetningunni. Þeir sem
eru að feta sín fyrstu skref í
Skálinni ættu ekki að óttast
úrvalið. Starfsfólkið á Gló er
reiðubúið til leiðsagnar um
vinsælar samsetningar eða
hvað þau mæla með. Gerðu
líkamanum gott með því að
fá þér Skál.
Opna fyrir hæfileika
Gæðin í matnum skila sér
inn í minnstu frumur og
leiða til þess að fólk fer
ósjálfrátt að glóa. Þegar
líkaminn er kominn á góðan
stað næringarlega er
auðveldara að snúa sér að
ræktun þess sem býr innra
með fólki. Með því að finna
sína ástríðu, drifkraft og
hæfileika vex
einstaklingurinn og glóir
innan frá. Það er eitthvað
sem Gló vill handa öllum.
Saklaus bón en svo áræðin
fyrir samfélagið sem er ef til
vill ekki tilbúið til þess að
meðtaka boðskapinn.
Þeir sem eru tilbúnir, það
eru þeir sem koma á Gló og
næra musterið svo það geti
hýst einstaka sköpun. Án
þess að vera of andleg þá er
það ætlun Gló að hvetja alla
til að hugsa vel um sig og vel
til sín. Það að horfa í spegil
og segja eitthvað neikvætt
um sig eða líkamsímynd
hefur margfeldisáhrif á
sjálfsálitið. Fyrsta skrefið í
átt að sköpun er sjálfselska.
Sjálfselska á þann hátt að
einstaklingurinn elskar
sjálfan sig. Þannig nærðu að
glóa. Þú getur fundið þitt
eigið gló á svo marga vegu. Þú
þarft bara að finna það. Þetta
er fyrir alla þá sem rækta það
sem þau elska í lífinu. Gefðu
lífinu lit og finndu þitt gló.
Við erum á glo.is og höfum
góða sögu að segja.
glo.is/mittglo
Ljósmynd/Guðmundur Þór
Dansað af innlifun Ljósmynd/Guðmundur Þór
H
VÍ
TA
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
–
17
-0
72
7
h e l g i n ∙ F R É T T A B l A ð i ð 27l A U g A R D A g U R 1 1 . m A R s 2 0 1 7
1
1
-0
3
-2
0
1
7
0
4
:3
2
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
6
C
-C
B
8
0
1
C
6
C
-C
A
4
4
1
C
6
C
-C
9
0
8
1
C
6
C
-C
7
C
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
1
2
0
s
_
1
0
_
3
_
2
0
1
7
C
M
Y
K